Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 13:21 Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja Vísir/Bjarni Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segir að það komi í ljós eftir hálfan mánuð hvort hægt verði að nota nýja vatnslögn til Eyja sem nú er verið að leggja. Lögnin skemmdist við útlagningu síðustu helgi. Vestmanneyjarbær hafi nú þegar greitt yfir milljarð vegna verkefnisins en samningar við ríkið um hver beri heildarkostnaðinn standi yfir.
Neysluvatnslögn til Vestmannaeyja skemmdist fyrir þremur árum eftir að akkeri Hugins VE fór í hana. Málaferli vegna þess standa yfir. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja segir að í kjölfarið hafi verið ákveðið að flýta því að láta gera nýja neysluvatnslögn, svokallaða almannavarnarlögn sem sé til vara ef eldri lögn gefur sig. Verkefnið var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu og var m.a. samið var við alþjóðlega fyrirtækið Subsea 7 sem sérhæfir sig í lögnum neðansjávar fyrir orkugeirann. Samningurinn kveður á um flutning og útlagningu 12,7 kílómetra langrar vatnslagnar frá Bakkafjöru til Skansfjöru sem á að auka öryggi vatnsöflunar til Eyja. Um síðustu helgi kom í ljós að lögnin skemmdist þegar Subsea 7 var að leggja hana og nú er óljóst hvort hægt verði að nota hana. „Við vitum að lögnin skemmdist við útlagningu um síðustu helgi. Við höfum fengið forskýrslu um atvikið en ekki endanlega um hvað nákvæmlega gerðist og hvernig. Við teljum um svokallað altjón að ræða,“ segir Íris. Subsea sé ábyrgt fyrir tjóninu Subsea 7 beri ábyrgð á tjóninu að mati sveitarfélagsins. „Útlagningaraðilinn er að leggja út lögnina og við teljum að ábyrgð á atvikinu liggi þar. Við erum líka með mjög víðtækar tryggingar. Við teljum því að kostnaðurinn vegna þessa sé ekki að falla á sveitarfélagið,“ segir hún. Það hafi þó verið ákveðið að klára verkefnið. „Það er ákveðið að klára að leggja lögnina þó að hún sé skemmd, við eigum í rauninni engan annan kost. Hún verður þrýstiprófuð þegar búið er að tengja hana til að sjá hvort hægt sé að taka eitthvað vatn í gegn. Ég reikna með að það verði gert eftir um tvær vikur. Það eru hins vegar allar líkur á að við þurfum að fara í nýja lögn eins og staðan er í dag. Það ferli getur tekið tvö ár,“ segir hún. Ríkið eigi að greiða fyrir nýja lögn Íris segir að heildarkostnaður við nýju lögnina hafi verið áætlaður um þrír milljarðar króna. Samningurinn við Subsea 7 nemi um einum milljarði króna. Fyrirtækið hafi þegar fengið helming þeirrar fjárhæðar greiddan. Hún segir að í heild hafi Vestmanneyjarbær þegar lagt út einn komma tvo milljarða króna í verkefnið og ríkið átta hundruð milljónir. „Það er ekki búið að klára samkomulagið um að ríkið greiði algjörlega fyrir lögnina. Okkur finnst það eðlilegt þar sem um almannavarnalögn er að ræða. Það er góður andi í samtalinu og við klárum það vonandi fljótlega,“ segir Íris.
Vestmannaeyjar Orkumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skemmd neysluvatnslögn í Eyjum Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira