Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar 14. ágúst 2026 07:30 Dagur B. Eggertsson þingmaður skrifaði grein hér á Vísi undir fyrirsögninni „Nýtt mat AGS á upptöku evru fyrir Ísland. Þar segir hann að undarleg þögn hafi ríkt um nýja greiningu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á kostum og göllum evrunnar fyrir Ísland. Það gladdi mig að lesa því sama morgun og grein hans birtist hafði ég einmitt rakið þetta sama mat hér á Vísi í grein um gjaldmiðlaskýrsluna og athugasemdir Seðlabankans. Þögnin var þá þegar rofin. En Dagur á þakkir skildar fyrir að beina athyglinni að skjalinu sjálfu því sú umræða batnar við hvern lesanda. Byrjum á því sem Dagur fer rétt með. Kostirnir sem hann telur upp standa í skjalinu. Afnám gengisáhættu milli krónu og evru og horfur á lægri fjármagnskostnaði eru þar kallaðir skýrir kostir evruaðildar (e. clear advantages). Lægri viðskiptakostnaður, dýpri fjármálamarkaðir og sterkara verðbólguakkeri eru það líka. Þessu hefur enginn neitað og engum greiða gerður með því að gera lítið úr því. Dagur velur að draga tilvitnunina sína úr miðri efnisgrein og efnisgreinin segir mun meira. Hún hefst á þessum orðum: „Overall, Iceland's initial conditions present a mixed picture", þ.e. staðan gefi blandaða mynd fyrir val á gengisfyrirkomulagi. Í sömu efnisgrein segir að evran myndi jafnframt „eliminate the exchange rate as a stabilizer", þ.e. fjarlægja krónuna sem sveiflujafnara. Efnisgreinin endar í kjölfarið á skilyrðinu sem allt hitt hvílir á. Það er að jafnvægið á milli kosta og galla ráðist á endanum af því hvort innlendar stofnanir, einkum launaþróun og umgjörð ríkisfjármála, geti skilað innri aðlögun þegar áföll ríða yfir og aðstæður hér þróast öðruvísi en á evrusvæðinu. Upphaf og endir efnisgreinarinnar, sem Dagur vitnar í, bera sem sagt fyrirvarana sem fyrirsögn hans sleppir. Fáeinum blaðsíðum síðar í sama viðauka standa svo efnisgreinarnar sem Dagur velur að nefna ekki. Verði Ísland fyrir stórum séráföllum, t.a.m. í ferðaþjónustu, sjávarútvegi og álframleiðslu, þ.e. áföllum sem evrusvæðið verður ekki fyrir, er það augljós áhætta og undirstrikar enn frekar gildi sveigjanlegrar krónu sem höggdeyfis. Undir evru hyrfi sá sjálfvirki höggdeyfir og aðlögun færi fram gegnum laun og verðlag, þ.e. með innri gengisfellingu t.d. í formi atvinnuleysis á íslenskum vinnumarkaði. Krónan er þar ekki metin sveiflukenndari en sambærilegir gjaldmiðlar. Evruupptaka á of háu gengi myndi læsa inni samkeppnistap og knýja fram kostnaðarsama innri gengisfellingu, þ.e. atvinnuleysi á Íslandi. Þetta þekkjum við frá Spáni og Grikklandi. Þetta stendur allt í skjalinu sem grein Dags byggir á en hann velur að draga ekki fram. Þá að niðurstöðunni. „Gríðarlegur velferðarábati" er ályktun Dags, ekki AGS. Dagur segir sjálfur, réttilega, að AGS taki ekki afstöðu. AGS leggur kosti og galla á borðið og segir að ákvörðunin velti á því hvort ávinningur stöðugleika og samþættingar vegi þyngra en missir gengistækisins, þ.e. krónunnar, þegar sveiflur verða. Sjóðurinn gerir þarna ekki upp á milli. Sá sem les eindregna afstöðu úr skjalinu er að lesa sína eigin afstöðu inn í það sem og Dagur gerir. Um vextina, sem skipta heimilin mestu, þarf að segja það sem sjaldnast fylgir sögunni. Vaxtamunurinn er raunverulegur en lágu vextirnir eru verðmiði, ekki gjöf. AGS metur sjálfur að jafnvægisraunvextir á Íslandi verði um 2,5% til meðallangs tíma á meðan þeir eru nærri núlli á evrusvæðinu, munur sem endurspeglar meðal annars meiri vöxt og fólksfjölgun hér. Seðlabankinn benti höfundum gjaldmiðlaskýrslunnar einmitt á að snögg aðlögun að lægri evruvöxtum gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir fjármagnsflæði, skuldsetningu og eignaverð á Íslandi. Lykilskilyrði AGS stendur því óhaggað. Það er að án umbóta á íslenskri launaþróun yrðu lágir vextir eldsneyti á þenslu sem enginn innlendur seðlabanki gæti lengur svarað. Reikningurinn fyrir slíka vegferð var sendur launafólki Suður-Evrópu í formi atvinnuleysis. Það er þekkt og Íslendingar vita hvað slíkt þýðir. Að lokum er það fallegasta setningin sem Dagur vitnar í, að Ísland geti metið evruna „from a position of strength", þ.e. úr sterkri stöðu. Hún er rétt og hún segir meira en hún sýnist. Sterka staðan, sem sjóðurinn lýsir, er staðan sem Ísland er í nákvæmlega núna, þ.e. með krónu, nægan gjaldeyrisforða og sjálfbærar skuldir. Það er aðeins hið opinbera, þ.e. ríki og sveitarfélög, sem þurfa að gæta betur að launaþróun innan sinna vébanda. Veldur hver á heldur. Það er fagnaðarefni að umræðan sé komin ofan í skjölin sjálf, þ.e. staðreyndirnar og forsendur skynsamrar og opinnar umræðu. Þar á hún heima en mikilvægt er öllum að tína ekki aðeins það lesefni úr hillunum sem virðist í fyrstu sýn glitra í ofbirtunni en endist illa. Skjöl þarf að lesa til enda og þar með líka blaðsíðurnar þar sem fyrirvararnir búa. Mat AGS er blönduð mynd sem veltur á launaþróun og skynsemi varðandi ríkisfjármálin. Sömu blaðsíður segja að höggdeyfir krónunnar hafi gildi fyrir hagkerfi sem verður fyrir áföllum sem evrusvæðið verður ekki fyrir. Krónan er því augljóslega mikilvæg Íslendingum hér eftir sem áður og hefur staðist álagið. Það tilgreindi AGS líka, það var bara ekki dregið fram. Ekki er séð að ríkisstjórnin hafi gert það. Nei takk. Jákvætt nei fyrir Ísland. Höfundur er bæjarfulltrúi Miðflokksins í Mosfellsbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar