Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar 13. ágúst 2026 12:32 Það eru afar ánægjuleg tíðindi að Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), skuli lýsa því yfir að samtökin setji sig ekki gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Í viðtali í Bítinu á Bylgjunni þann 11. ágúst undirstrikaði hún að forsendan væri skýr samningsmarkmið og að dregin væri rauð lína um íslenskt eignarhald á fiskveiðiauðlindinni. Þetta er skynsamleg og uppbyggileg afstaða. Ef vel er á málum haldið liggja mikir hagsmunir í að kanna þessa leið, sérstaklega þegar kemur að aukinni fullvinnslu sjávarafurða hér á landi. Aðild að ESB er nefnilega ekki ógn við fullvinnslu, hún gæti þvert á móti orðið sterkasta stökkbretti hennar. Vanýtt tækifæri í verðmætasköpun Í áratugi hefur ríkt mikill einhugur um mikilvægi þess að fullvinna sjávarafurðir á Íslandi. Með því að búa til tilbúnar neytendavörur og byggja upp sterk vörumerki getum við skapað fleiri störf, eflt byggðir landsins og aukið útflutningsverðmæti til muna. Þrátt fyrir frábæran árangur og tækniframfarir í veiðum og vinnslu sýna gögnin að við eigum enn mikið inni þegar kemur að fullvinnslu neytendavara. Samkvæmt nýjustu tölum eru tilbúnar neytendavörur og verðmætaukin framleiðsla um 1,4% af heildarútflutningsverðmæti sjávarafurða. Stærsti hluti aflans fer enn yfir hafið sem hráefni eða hálfunnin vara, svo sem frosin flök (47%), ísaðar afurðir (25%) eða mjöl og lýsi (14%), þar sem lokavinnslan fer fram í löndum eins og Póllandi, Bretlandi eða Kína. Tækifærið til að gera þetta heima er gríðarlegur. Tollalækkun myndi snúa hvatanum okkur í hag En af hverju færum við ekki meiri lokavinnslu hingað heim? Svarið liggur fyrst og fremst í tollalöggjöf Evrópusambandsins. Í núverandi kerfi leggur ESB hærri tolla á fullunnar neytendavörur en á óunnið hráefni. Frosin flök fara inn á Evrópumarkað á lágum tollum, en tilbúin máltíð framleidd úr sama fiski mætir hærri tollvegg. Þetta fyrirkomulag skapar hvata til að flytja hráefnið úr landi og ljúka vinnslunni innan ESB. Með fullri aðild að ESB myndu allir tollar á íslenskar sjávarafurðir falla niður. Það myndi breyta leikreglunum Íslandi í hag: ·Jöfn samkeppnisstaða: Enginn tollmunur verður á milli hráefnis og fullunnar vöru, sem gerir vinnslu á Íslandi mun samkeppnishæfari. ·Sérstaða ferskleikans: Nálægð okkar við miðin verður enn stærra samkeppnisforskot þegar hægt er að fullvinna ferskan fisk á staðnum. ·Aukin verðmæti til landsins: Íslensk fyrirtæki geta selt vörur sínar undir eigin vörumerkjum beint til 450 milljóna neytenda án tollahindrana, sem gerir fjárfestingu í fullvinnslustöðvum á Íslandi enn arðbærari. Eins og Úlfar Hauksson benti réttilega á í sama viðtali: „Með inngöngu gætu allir tollar fallið niður og þá er mikill hagur að vinnslan sé á Íslandi og að hún myndi aukast hér heima.“ Reynsla grannþjóða og skýr samningsmarkmið Við sjáum svipaða sögu hjá grannþjóðum okkar. Í Noregi, sem stendur utan ESB líkt og við, fer nánast allur lax í auknum mæli til vinnslu í Evrópulöndum eins og Póllandi og Danmörku vegna tollahindrana. Norsk stjórnvöld finna fyrir þessum takmörkunum en eiga erfitt með að breyta þeim utan sambandsins. Skaðar aðild óskorðuð yfirráð okkar yfir auðlindinni? Heiðrún Lind hitti á kjarna málsins: Samningsmarkmiðin þurfa að vera skýr. Að tryggja eignarhald og stjórn Íslendinga á eigin fiskveiðiauðlind er sjálfsögð og eðlileg krafa. Það er einmitt í samningaviðræðum sem reynir á þessi atriði. Ef niðurstaðan þjónar ekki hagsmunum okkar er alltaf hægt að segja nei. En með því að stíga skrefið og hefja viðræður fáum við svörin í hendurnar frekar en að giska á þau. Tökum upplýsta ákvörðun Með því að hefja aðildarviðræður opnum við á möguleikann á að breyta umgjörð íslensks sjávarútvegs og nýta loksins þau tækifæri sem búa í fullvinnslu afurða okkar. Afstaða SFS er mikilvægt skref í átt að málefnalegri umræðu. Næsta skref er að nýta tækifærið, kjósa Já þann 29. ágúst og fá skýr svör um hvað er í boði fyrir Ísland. Höfundur er sérfræðingur í samstarfi og smíðaði verdbolga.net. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar