Mourinho hringdi í Ferguson og grét Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2026 07:00 José Mourinho sést hér við hliðina á Sir Alex Ferguson á leik á Evrópumótinu í fótbolta 2024. Getty/Sebastian Frej Ýmislegt kemur fram í nýrri heimildarmynd um knattspyrnustjórann umdeilda José Mourinho, þar á meðal athyglisvert símtal fyrir þrettán árum síðan og sú staðreynd að hann átti að taka við af Sir Alex Ferguson en ekki David Moyes.
Mourinho átti að taka við Manchester United af Alex Ferguson. Nokkrum klukkustundum eftir að Portúgalinn hafði samþykkt að taka við starfinu hringdi hann og grét. „Alex, ég get ekki tekið við starfinu því ég hef lofað Chelsea að taka við þeim og ég get ekki svikið loforð mitt,“ sagði hann samkvæmt Netflix-heimildarmyndinni „Mourinho“. José Mourinho var á leiðinni að taka við Manchester United árið 2013. Forveri hans, Alex Ferguson, segir frá samkomulaginu. „Honum var boðið starfið, já. Ég settist niður með honum og útskýrði stöðuna og eftir því sem ég best veit þáði hann það. En eftir nokkrar klukkustundir breyttist það,“ segir Ferguson samkvæmt The Telegraph. Mourinho staðfestir einnig að þeir hafi verið sammála eftir að hann yfirgaf Real Madrid. „Ég var auðvitað mjög upp með mér því Manchester United hefur ótrúlegt aðdráttarafl. Þegar ég segi að Real Madrid sé stærsta félag heims verð ég að segja að Manchester United er mjög, mjög nálægt. Eitt er ást á fótbolta, annað er ást á ákveðnu félagi. Ég held að þetta sé sterkara en ást á fótbolta, og í grunninn þurfti ég að finna að ég væri elskaður eftir Real Madrid,“ sagði José Mourinho. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible) Það varð mjög tilfinningaþrungið fyrir hann að neyðast til að hafna Manchester United. „Að ég missti af tækifærinu til að verða stjórinn sem tæki við af Sir Alex var dramatískt, en ég sé ekki eftir því, því það var ákvörðun sem ég tók með hjartanu. Ég held að það hafi verið Nietzsche sem sagði að þegar maður gerir eitthvað af ást gerir maður aldrei neitt rangt. Ég gerði það af ást,“ sagði Mourinho. Þess í stað fékk David Moyes, sem var annar kostur, starfið en hann var rekinn eftir níu mánuði af sex ára samningi sínum. Mourinho tók við Chelsea í annað sinn og vann ensku úrvalsdeildina tímabilið 2014/2015. Að lokum endaði Mourinho hjá Manchester United þegar hann tók við af Louis van Gaal árið 2016. Nú er Mourinho snúinn aftur til Real Madrid í annað sinn.
Enski boltinn Manchester United Chelsea FC Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira