Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 10. ágúst 2026 08:03 „Markmiðið er ekki ESB, heldur að tryggja íslensku ungu fólki sambærileg lífskjör og Norðurlandaþjóðirnar búa við,“ sagði Þorvaldur Ingi Jónsson, stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar, í grein á Vísi um helgina. Merkilegt er að hann skuli hafa nefnt hin norrænu ríkin sérstaklega í ljósi fullyrðinga hans og annarra Evrópusambandssinna um það að helzti ávinningurinn af því að ganga í sambandið væri evran sem leiða ætti til lægri vaxta sem og þess að aðeins eitt ríkjanna hefur tekið hana upp, Finnland. Hin þrjú, Danmörk, Svíþjóð og Noregur, hafa öll kosið að halda sínum sjálfstæðu gjaldmiðlum. Bæði Danir og Svíar hafa þannig hafnað evrunni í þjóðaratkvæðagreiðslum og Norðmenn hafnað inngöngu í Evrópusambandið. Húsnæðismál ungs fólks voru einkum umfjöllunarefni Þorvalds og því rétt að fjalla um nýlega skýrslu Evrópusambandsins um stöðu húsnæðismála innan þess þar sem dregin upp vægast sagt dökk mynd í þeim efnum og sérstaklega í tilfelli ungs fólks. Til að mynda kemur fram í skýrslunni að mikill og vaxandi skortur sé á íbúarhúsnæði og húsnæðisverð fyrir vikið hækkað mjög mikið. Sums staðar þrefaldast. Á sama tíma hefðu laun ekki fylgt þeirri þróun. Þá einkum í tilfelli ungs fólks sem væri gjarnan bæði á lágum launum og í óöryggri vinnu sem þýddi að það ætti oft erfitt með að standast greiðslumat og að safna fyrir hárri útborgun sem tekið gæti mörg ár tækist það á annað borð. Þar hafa lágir vextir dugað skammt. Fram kemur að húsnæðiskrísan innan Evrópusambandsins hafi meðal annars neikvæðar afleiðingar fyrir ungt fólk þegar komi að menntunar- og atvinnutækifærum sem og möguleikum þeirra á því að stofna heimili. Margt ungt fólk neyðist þannig til þess að búa í foreldrahúsum langt fram á fullorðinsár. Vandamálið hafi orðið útbreiddara á undanförnum árum vegna hærra orkuverðs, skorts á vinnuafli, umhverfisreglugerða, skipulagsmála og skorts á lóðum sem takmarkað hafi byggingu nýs húsnæðis. Þá hafi kaup fjárfesta á húsnæði aukizt og einstaklingar og fjölskyldur því þurft að keppa við fjárfesta á sífellt erfiðari húsnæðismarkaði. Við það bættist síðan mjög erfiður leigumarkaður, einkum fyrir ungt fólk. Fyrir vikið hafi margt ungt fólk innan Evrópusambandsins, jafnvel þó það hafi vinnu, ekki efni á því að flytja að heiman. Á sama tíma hafi heimilisleysi aukist í mörgum ríkjum sambandsins. Ungt fólk í borgum sé á meðal þeirra hópa sem hafi sérstaklega orðið illa úti í þeim efnum. Jafnvel þó ungu fólki takist að koma þaki yfir höfuðið haldi erfiðleikarnir áfram. Það sé til að mynda líklegra til þess að vera í vanskilum með greiðslur af húsnæði og öðru því tengdu og eins að þurfa að flytja úr húsnæði vegna þess að það geti ekki lengur staðið í skilum. Þá kemur fram að ungt fólk þurfi að verja stærri hluta af tekjum sínum í húsnæði en fólk í öðrum aldurshópum og sé líklegra til þess að eiga erfitt með að ráða við þann kostnað. Fram kemur að þrátt fyrir að eyða stærri hluta af tekjum sínum í húsnæðiskostnað sé ungt fólk líklegra til þess að búa við lakara húsnæði. Sömuleiðis segir að almennt sé mjög lítið af húsnæði í ríkjum Evrópusambandsins til leigu sem ungt fólk með miðgildistekjur hafi efni á að leigja. Þannig sé leiguverð á Írlandi, Búlgaríu, Póllandi, Spáni og Portúgal og sums staðar í Austurríki og á Ítalíu svo hátt að 80% miðgildistekna þurfi tilað greiða kostnaðinn af því að leigja einfalda tveggja herbergja íbúð. Ef reynt sé að leigja minni íbúðir fylgi því aðrar áskoranir auk þess sem fermetraverð þeirra sé hærra. Margt ungt fólk sé fyrir vikið í þeirri stöðu innan sambandsins að geta ekki búið við ákjósanlegar aðstæður. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Sjá meira
„
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar