Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. ágúst 2026 09:47 Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju. Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Þáttur dagsins er helgaður Evrópumálum en þau verða rædd frá ýmsum hliðum.
Fyrst ræðir Kristján við Stefán Má Stefánsson, prófessor emerítus, um fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar en hann er einn helsti sérfræðingur okkar um Evrópumál. Hann leggur mat á umfang framsals ríkisvalds til ESB ef af inngöngu verður. Því næst ræðir Kristján við Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóra Vinnslustöðvarinnar. Hann mun sitja fyrir spurningum um sjávarútveginn og Evrópusambandið, meðal annars hvers vegna sjávarútvegurinn vilji ekki ganga í ESB og draga úr gjaldmiðlaáhættu og auka tollfrjálsan aðgang að stórum mörkuðum? Gauti B. Eggertsson, prófessor við Brown-háskóla í Bandaríkjunum, og Jón Helgi Egilsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, koma þar næst til Kristjáns og ræða hagkerfið og Evrópusambandið. Báðir þessir menn hafa verið áberandi í umræðu um hagkerfið og þróun þess á síðustu vikum, en hver eru hin hagrænu rök fyrir því að leita eftir inngöngu i ívrópusambandið, hvað mælir með og hvað gegn? Að lokum ræðir Kristján við Margréti Ágústu Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, um Evrópumálin og landbúnað. Bændasamtökin hafa yfirfarið hina sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB og telja hana tæpast samræmast íslenskum landbúnaði enda flytjist ákvörðunarvald að stórum hluta úr landi með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir innlenda matvælaframleiðslu.
Sprengisandur Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira