Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar 7. ágúst 2026 08:00 Ólafur Ragnar Grímsson hefur lagt fram nýja heimild í Evrópuumræðunni: hlátur tveggja nafnlausra manna í París. Í nýlegu viðtali sagði hann frá samtölum við tvo menn sem hann segir „gjörþekkja" starfsemi og eðli Evrópusambandsins. Samkvæmt Ólafi er annar háttsettur fyrrverandi embættismaður sem starfaði „um árabil" innan framkvæmdastjórnar sambandsins. Hinn mun vera blaðamaður sem sérhæfir sig í málefnum ESB í Brussel. Hvorugan þessara dularfullu huldumanna vildi Ólafur Ragnar nafngreina. Ólafur lýsti fyrir þeim þeirri afstöðu sem forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, hefur kynnt heimsbyggðinni í einu áhrifamesta podcasti í veröldinni: The Rest is Politics. Trúverðug og glæsileg forsætisráðherra hefur vakið mikla athygli. Kristrún sagði að já-atkvæði 29. ágúst feli ekki endilega í sér vilja til inngöngu heldur aðeins heimild til að kanna hvað sé í boði [21]. Ólafur Ragnar segir okkur að svar hinna dularfullu huldumanna hafi verið afdráttarlaust: „Þeir hlógu." Hugmyndin væri „út úr kú og í engum tengslum við eðli Evrópusambandsins." [1][2] Gott og vel. Skoðum þá eðli Evrópusambandsins. Það er nefnilega skjalfest. Hlógu þeir líka að Sviss? Svisslendingar héldu þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2001 um hvort hefja ætti aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þessi atkvæðagreiðsla var haldin á þeim forsendum að önnur atkvæðagreiðsla yrði um lokaniðurstöðuna [3][4]. Flutningsmennirnir vildu sjálfir aðild. Líkt og forsætisráðherra Íslands litu þeir samt á ákvarðanirnar tvær sem aðskildar: já við viðræðum var ekki já við inngöngu [4]. Svissneska þjóðin sagði nei. En framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hló ekki. Daginn eftir sagði talsmaður hennar, Luc Veron, að Svisslendingar hefðu ekki sagt nei við Evrópu. Svisslendingar hefðu ákveðið að svara spurningunni síðar og að framkvæmdastjórnin virti þá ákvörðun [5]. Hlógu þeir að Rúmeníu? Í miðjum aðildarviðræðum, haustið 2003, greiddu Rúmenar þjóðaratkvæði um víðtækar stjórnarskrárbreytingar sem meðal annars lögðu grunninn að aðild: framsal valdheimilda og forgang Evrópuréttar [6]. 91 prósent sögðu já [7]. Rúmenía er aðildarríki í dag. Hlógu þeir að Moldóvu? Í október 2024, tæpum fjórum mánuðum eftir að aðildarviðræður hófust formlega [8], gengu Moldóvar að kjörborðinu í miðju ferli. Og hver voru viðbrögð Evrópusambandsins við hugmynd sem Ólafur Ragnar segir vera „út úr kú"? Það sendi frá sér formlega yfirlýsingu, fagnaði niðurstöðunni og kallaði hana sögulegt val moldóvsku þjóðarinnar [9]. Á meðan nafnlausir huldumenn Ólafs Ragnars hlæja í París sendir Brussel hamingjuóskir. Hlógu þeir að Norður-Makedóníu, þar sem 94 prósent gildra atkvæða féllu með ESB- og NATO-aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2018, fjórum árum áður en aðildarviðræður hófust [10][11]? Að San Marínó, sem kaus árið 2013 um hvort yfirhöfuð ætti að hefja aðildarferli? Sú tillaga náði ekki tilskildum þátttökuþröskuldi [12]. Að Frakklandi, sem hélt þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1972 um hvort hleypa ætti fjórum nýjum ríkjum inn í Efnahagsbandalagið, forvera ESB [13]? Að Ítalíu, sem fól Evrópuþinginu stjórnlagaumboð í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1989, áður en Maastricht-ferlið hófst [14]? Og hvað þá með Armeníu? Stjórnarskrá landsins áskilur að aðild að yfirþjóðlegum alþjóðastofnunum verði ráðin í þjóðaratkvæðagreiðslu [15]. Í apríl 2025 tóku gildi lög um að hefja aðildarferli að Evrópusambandinu. Þetta gerðist að undangenginni undirskriftasöfnun tugþúsunda almennra borgara [16]. Í maí síðastliðnum gerðist svo dálítið athyglisvert. Forsetar Rússlands, Hvíta-Rússlands, Kasakstans og Kirgistans kröfðust þess sameiginlega að Armenía héldi einmitt slíka þjóðaratkvæðagreiðslu sem allra fyrst [17][18]. Þegar bæði Brussel og Moskva taka þjóðaratkvæðagreiðslur af þessu tagi grafalvarlega, koma viðhlæjendur Ólafs óneitanlega á óvart. Pútín, forseti Rússlands, virðist vera í sérstöku uppáhaldi Ólafs Ragnars líkt og oft hefur komið fram [22][23]. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst er þannig hvorki íslensk sérviska né nýmæli [19]. Evrópskar þjóðir hafa greitt atkvæði á öllum stigum þessa ferlis: um hvort hefja eigi aðildarferli (San Marínó), um hvort ganga eigi til viðræðna (Sviss, Armenía), í miðjum viðræðum (Rúmenía, Moldóva). Og um aðildina sjálfa að loknum viðræðum, eins og Austurríki, Finnland og Svíþjóð gerðu 1994, níu af tíu ríkjum stækkunarinnar 2004 árið áður og Króatía árið 2012 [11]. Ísland fetar troðna slóð: þjóðin veitir umboðið og þjóðin fellir dóminn um niðurstöðuna [20]. Það er ekki „út úr kú". Það er eðli lýðræðis í Evrópu. Þetta ætti ekki að vera framandi hugtak fyrrum forseta íslenska lýðveldisins til tuttugu ára. Og þá vandast sagan frá París. Embættismaður sem starfaði „um árabil" innan framkvæmdastjórnarinnar hlýtur að hafa verið innanhúss í einhverjum þessara mála. Kannski þegar framkvæmdastjórnin svaraði Svisslendingum af virðingu? Kannski þegar Rúmenar kusu í miðjum viðræðum og Brussel hélt ótrautt áfram? Og blaðamaður sem sérhæfir sig í málefnum ESB í Brussel? Getur verið að þjóðaratkvæðagreiðsla Moldóva og hamingjuóskir sambandsins í kjölfarið hafi farið fram hjá honum? Hlógu þeir þá líka hástöfum á eigin vinnustað eða þegar þeir voru að skrifa blaðagreinar um þessi efni? Menn sem gjörþekkja Evrópusambandið hlæja ekki að sögu þess. Allra síst þeirri sögu sem þeir lifa og hrærast í sjálfir. Nafnlaus hlátur í París er ekki heimild um eðli Evrópusambandsins. Hann kann hins vegar að vekja tilteknar spurningar um málflutning sögumanns. Höfundur er prófessor í hagfræði við Brown háskóla í Bandaríkjunum. Heimildir [1] Vísir (2026) Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðgengilegt á: www.visir.is/g/20262917286d/ (sótt 6. ágúst 2026). [2] Spjallið með Frosta Logasyni (2026) Viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson. Aðgengilegt á: www.youtube.com/watch?v=JkEvypOIlgM (sótt 6. ágúst 2026). [3] Svissneska utanríkisráðuneytið (FDFA) (2026) Popular votes and chronology. Aðgengilegt á: www.europa.eda.admin.ch/en/popular-votes-and-chronology (sótt 6. ágúst 2026). [4] Evrópuþingið (án árs) Briefing No 28: Switzerland and the enlargement of the European Union. Aðgengilegt á: www.europarl.europa.eu/enlargement/briefings/28a2_en.htm (sótt 6. ágúst 2026). [5] Associated Press / Deseret News (2001) Swiss reject talks on joining the EU, 5. mars. Aðgengilegt á: www.deseret.com/2001/3/5/19573209/swiss-reject-talks-on-joining-the-eu/ (sótt 6. ágúst 2026). [6] Forsetaembætti Rúmeníu (án árs) The Constitution of Romania. Aðgengilegt á: www.presidency.ro/en/the-constitution-of-romania (sótt 6. ágúst 2026). [7] Wikipedia (2026) 2003 Romanian constitutional referendum. Aðgengilegt á: en.wikipedia.org/wiki/2003_Romanian_constitutional_referendum (sótt 6. ágúst 2026). [8] Ráð Evrópusambandsins (2026) EU relations with the Republic of Moldova. Aðgengilegt á: www.consilium.europa.eu/en/policies/moldova/ (sótt 6. ágúst 2026). [9] Ráð Evrópusambandsins (2024) Republic of Moldova: Statement by the High Representative on behalf of the European Union on the constitutional referendum and the first round of the presidential elections, 22. október. Aðgengilegt á: www.consilium.europa.eu/en/press/press-releases/2024/10/22/ (sótt 6. ágúst 2026). [10] Framkvæmdastjórn ESB (2019) North Macedonia 2019 Report. Aðgengilegt á: enlargement.ec.europa.eu/system/files/2019-05/20190529-north-macedonia-report.pdf (sótt 6. ágúst 2026). [11] Wikipedia (2026) Referendums related to the European Union. Aðgengilegt á: en.wikipedia.org/wiki/Referendums_related_to_the_European_Union (sótt 6. ágúst 2026). [12] Elezioni San Marino (2013) Referendum: Avvio procedura adesione all'Unione Europea. Aðgengilegt á: www.elezioni.sm (sótt 6. ágúst 2026). [13] Vie Publique (án árs) Les référendums de la Ve République et leurs résultats. Aðgengilegt á: www.vie-publique.fr/fiches/23970 (sótt 6. ágúst 2026). [14] Innanríkisráðuneyti Ítalíu (án árs) Referendum consultivo 18 giugno 1989: Conferimento del mandato costituente al Parlamento Europeo. Aðgengilegt á: elezionistorico.interno.gov.it (sótt 6. ágúst 2026). [15] Forsetaembætti Armeníu (2015) Constitution of the Republic of Armenia, 205. gr. Aðgengilegt á: www.president.am/en/constitution-2015/ (sótt 6. ágúst 2026). [16] Reuters (2025) Armenia adopts law to launch EU accession process, 4. apríl. Aðgengilegt á: www.reuters.com/world/asia-pacific/armenia-adopts-law-launch-eu-accession-process-2025-04-04/ (sótt 6. ágúst 2026). [17] Public Radio of Armenia (2026) EAEU leaders call for referendum in Armenia to choose between EU and EAEU, 29. maí. Aðgengilegt á: en.armradio.am/2026/05/29/ (sótt 6. ágúst 2026). [18] Euronews (2026) Russia-led Eurasian Economic Union urges Armenian referendum, 29. maí. Aðgengilegt á: www.euronews.com/2026/05/29/russia-led-eurasian-economic-union-urges-armenian-referendum (sótt 6. ágúst 2026). [19] Alþingi (2026) Þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu, þskj. 1245, 516. mál, 157. löggjafarþing. Aðgengilegt á: www.althingi.is/altext/157/s/1245.html (sótt 6. ágúst 2026). [20] Alþingi (2026) Nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar, þskj. 1183, 516. mál, 157. löggjafarþing. Aðgengilegt á: www.althingi.is/altext/157/s/1183.html (sótt 6. ágúst 2026). [21] The Rest Is Politics: Leading (2026) Is Trump’s Chaos Pushing Iceland Towards the EU? (Prime Minister of Iceland, Kristrún Frostadóttir), 199. þáttur, júlí 2026. Aðgengilegt á: www.youtube.com/watch?v=dbRCjtCw4LM (sótt 7. ágúst 2026). [22] Vísir (2022) Veltir því fyrir sér hvort Ólafur Ragnar afsaki gjörðir Pútíns. Aðgengilegt á: www.visir.is/g/20222237997d/ (sótt 7. ágúst 2026). [23] Forsetaembætti Rússlands (2002) President Vladimir Putin held a meeting with President Olafur Ragnar Grimsson of Iceland, 19. apríl. Aðgengilegt á: en.kremlin.ru/events/president/news/27014 (sótt 7. ágúst 2026). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Gauti B. Eggertsson Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar