Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar 7. ágúst 2026 06:30 Frá því að ég var 16 ára gamall hef ég haft óþolandi tilhneigingu til að blanda mér í allt sem tengist pólitík. Ég hef hins vegar verið hikandi við að blanda mér í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Ekki vegna þess að mér finnist hún ekki mikilvæg heldur vegna þess hvað umræðan er fljót að detta í skotgrafahernað og upphrópanir þar sem fólki er ætlaður illur ásetningur eða annarlegir hagsmunir. Á samfélagsmiðlum sér maður já-sinna vera kallaða föðurlandssvikara, þeir vilji selja landið og fullveldið til Brussel. Þegar maður skrollar neðar les maður að þeir sem segi nei séu, vitandi eða óafvitandi, að þjóna „auðvaldinu“ eða hagsmunum hinna fáu, eða bara vitlausir. Í útvarpinu heyrir maður svo kjörna fulltrúa frá virðulegum stjórnmálaflokkum halda því fram að ríkisstjórnin sé, með því einu að leyfa þjóðinni að kjósa, að reyna að smygla okkur öllum inn í Evrópusambandið í svefni. Kannski ættum við bara að anda aðeins ofan í maga. Íslenska þjóðin er ekki saman sett af fólki sem reynir að ljúga að hvort öðru. Fólk hefur sínar skoðanir og ástæður til að kjósa já eða nei og það er bara allt í lagi. Það er hægt að færa gild rök fyrir því að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið og það er líka hægt að færa gild rök fyrir hinu gagnstæða. Þessar kosningar skipta vissulega máli en sama hver niðurstaðan verður mun ekkert hræðilegt gerast. Ísland verður áfram Ísland og okkur mun áfram vegna vel. Að því sögðu þá ætla ég að kjósa JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni og fyrir því eru helst þrjár ástæður: Í fyrsta lagi eru að eiga sér stað miklar breytingar í alþjóðakerfinu. Bandaríkin eru að rekja upp alþjóðakerfið sem þau smíðuðu eftir seinni heimsstyrjöld. Það hefur kallað á að allur heimurinn endurhugsi sína stöðu, sérstaklega smáríki eins og Ísland. Þá er spurningin: hvernig verjum við fullveldi okkar best í breyttum heimi? Í öðru lagi held ég að það felist alveg gífurleg tækifæri fyrir íslensk heimili og fyrirtæki í að verða hluti af stærra myntsvæði. Íslensku krónunni fylgir í dag mikil smæðar- og gengisáhætta sem gerir langtímafjármögnun erfiðari og dregur úr samkeppni. Auk þess sem okkur hefur því miður alla tíð gengið illa að halda aftur af verðbólgu og vöxtum. Í þriðja lagi sýnir sagan okkur að þegar við tökum skrefið og aukum alþjóðasamstarf græðum við á því. Síðastliðna áratugi hafa lífsgæði á Íslandi tekið risa stökk fram á við vegna þess að við höfum stóraukið alþjóðasamstarf og eflt tengingar við aðra. Þess vegna finnst mér borðleggjandi að skoða hvort við ættum að gera meira af því. Við ættum öll að kynna okkur málin, finna hvað skiptir okkur máli og kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Ég vona að þjóðin segi JÁ í atkvæðagreiðslunni en sama hver niðurstaðan verður mun ég ábyggilega bara mæta í skólann á mánudeginum, drekka minn hvíta monster og hafa áhyggjur af hljóðinu í Yarisnum mínum. Höfundur er forseti Ungs jafnaðarfólks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar