Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar 5. ágúst 2026 08:33 Ný könnun Maskínu sýnir að 77% landsmanna segjast ekki taka mikilvægar ákvarðanir nema hafa allar upplýsingar fyrir framan sig. Aðeins 8% eru ósammála. Ég held að þessi niðurstaða segi meira um okkur sem þjóð en margt annað. Við viljum vita hvað við erum að ákveða áður en við ákveðum okkur. Þetta kemur mér ekki á óvart. Flest okkar nálgumst stórar ákvarðanir með þessum hætti. Við kaupum ekki hús án þess að skoða það, stofnum ekki fyrirtæki án þess að greina forsendurnar og fjárfestum ekki ævisparnaði okkar án þess að vega og meta áhættu og ávinning. Við reynum að afla sem mestra upplýsinga áður en við tökum ákvörðun sem getur haft áhrif á líf okkar til lengri tíma. Þess vegna velti ég því fyrir mér hvers vegna við eigum að nálgast eina stærstu ákvörðun sem Ísland gæti staðið frammi fyrir á annan hátt. Undanfarnar vikur hef ég tekið þátt í fjölmörgum umræðum um Evrópusambandið. Það sem hefur komið mér mest á óvart er hversu auðveldlega umræðan festist í einstökum atriðum á meðan heildarmyndin gleymist. Við ræðum sjávarútveginn, sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna, hlutfallslegan stöðugleika, evruna eða einstök ákvæði samnings sem hefur ekki enn verið saminn. Allt eru þetta mikilvæg atriði sem eiga skilið vandaða umræðu. En áður en við getum metið einstök atriði þurfum við fyrst að vita hvaða samningur er yfirhöfuð í boði. Þegar þjóð stendur frammi fyrir ákvörðun sem getur mótað framtíð hennar um áratugi finnst mér eðlilegt að við byrjum á stærri spurningunum. Hvernig tryggjum við sem best lífskjör landsmanna? Hvernig styrkjum við samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs? Hvernig stuðlum við að stöðugleika í efnahagsmálum, öryggi landsins og tækifærum komandi kynslóða? Og hvernig tryggjum við að Ísland hafi sem sterkasta stöðu í síbreytilegum heimi? Í þessum umræðum hefur mikið verið talað um svokallaðar rauðar línur, sérstaklega þegar kemur að sjávarútvegi. Auðvitað á Ísland að fara í hugsanlegar samningaviðræður með skýr markmið og verja hagsmuni sjávarútvegsins af festu. Það myndi engin ábyrg ríkisstjórn gera öðruvísi. En rauðar línur eiga að styrkja samningsstöðu Íslands, ekki koma í veg fyrir að samið sé. Tilgangurinn hlýtur að vera að kanna hvort hægt sé að ná niðurstöðu sem þjónar hagsmunum Íslands – en ekki að hafna þeirri vegferð áður en hún hefst. Ég hef varið stórum hluta starfsævi minnar í alþjóðlegar samningaviðræður. Aldrei hef ég farið að samningaborði með það að markmiði að gefa eftir. Þvert á móti. Markmiðið hefur alltaf verið að ná sem bestri niðurstöðu fyrir þann sem ég vinn fyrir. Og stundum hefur besta niðurstaðan einfaldlega verið að standa upp frá borðinu. En það veit maður ekki fyrr en búið er að reyna. Samningaviðræður eru ekki uppgjöf heldur leið til að kanna hvort hægt sé að ná betri niðurstöðu en ella. Það sem veldur mér jafnframt áhyggjum er hvernig umræðan hefur þróast. Hún hefur of oft einkennst af skotgrafahugsun þar sem menn virðast þurfa að velja sér lið áður en þeir mega spyrja spurninga. Ég held að við séum betri þjóð en það. Þegar stór mál eru til umræðu eigum við að ræða þau af yfirvegun, afla staðreynda og leyfa síðan þjóðinni að taka upplýsta ákvörðun. Hvort sem niðurstaðan verður já eða nei skiptir mestu máli að hún byggist á því sem raunverulega liggur á borðinu, en ekki því sem menn óttast eða vona að kunni að liggja þar. Ég er ekki að segja fólki hvaða niðurstöðu það eigi að komast að. Ég er heldur ekki að halda því fram að aðeins ein niðurstaða sé rétt. Ég er einfaldlega að halda því fram að áður en þjóð tekur jafn stóra ákvörðun eigi hún að hafa allar upplýsingar í höndunum. Það er ekkert annað en sú nálgun sem 77% Íslendinga segjast sjálfir fylgja þegar þeir taka mikilvægar ákvarðanir í eigin lífi. Fyrir mér snýst „Já til að sjá“ ekki um að segja já við Evrópusambandinu. Það snýst um að segja já við upplýsingum. Já við því að kanna alla möguleika áður en endanleg ákvörðun er tekin. Þannig tek ég mikilvægar ákvarðanir í mínu eigin lífi – og ég treysti íslensku þjóðinni til að gera hið sama. Höfundur er fjárfestir og frumkvöðull. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar