Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. ágúst 2026 09:53 Leikfangabyssurnar voru keyptar í Kids Cool Shop á Glerártorgi í gær samkvæmt heimildum fréttastofu. Aðsend Fimmmenningarnir sem voru handteknir í gær í aðgerðum lögreglu og sérsveitarinnar á Akureyri reyndust ekki vera með alvöru skotvopn í fórum sínum heldur „nákvæma eftirlíkingu af skotvopni“ að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Fimm voru handteknir síðdegis í gær í aðgerðum lögreglu og sérsveitar en í tveimur bílum fannst það sem virtist vera skotvopn. Sjá einnig: Miðaði byssu á annan mann Í gær var greint frá því að samkvæmt heimildum fréttastofu hafi verið um leikfangabyssur en ekki alvöru skotvopn að ræða. Börkur Árnason, varðstjóri Lögreglunnar á Norðurlandi eystra, staðfestir að vopnin hafi ekki verið alvöru skotvopn og segir þær hafa verið „nákvæmar eftirlíkingar“. Aðspurður hvort um leikfangabyssur hafi verið að ræða segist hann ekki hafa séð eftirlíkinguna sjálfur en geri ráð fyrir því. Mennirnir sem handteknir voru síðdegis í gær voru látnir lausir að skýrslutöku lokinni í gærkvöldi. Þeir fái væntanlega sekt fyrir brot á vopnalögum en Börkur segist ekki vita hvort málið fari fyrir dóm í framhaldinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru leikfangabyssurnar keyptar í leikfangaversluninni Kids Coolshop á Glerártorgi í gær. Viðvera lögreglu og sérsveitarinnar var töluverð og umferð var lokað um Þingvallastræti á Akureyri um hríð. „Við göngum alltaf út frá því að um alvöru vopn sé að ræða, við getum ekki verið að taka neina sénsa,“ segir Börkur um aðgerðir gærdagsins. „Síðan kemur það bara í ljós að um eftirlíkingar er að ræða sem eru bara mjög líkar.“
Akureyri Lögreglumál Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira