Fagnaði sigri með því að kyssa ljósmyndarann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2026 23:02 Sam Williamson fagnar sigri og er greinilega búinn að koma augum á kærustu sína sem var með myndavélina á lofti. AP/Manish Swarup Ástralski sundmaðurinn Sam Williamson átti frábæra Samveldisleika og er greinilega að blómstra bæði innan og utan sundlaugarinnar.
Williamson er að koma til baka eftir erfið hnémeiðsli en vann gull í bæði 50 og 100 metra bringusundi á leikunum. Frábær árangur Williamson vakti líka athygli á ástarsambandi hans enda vakti hann sjálfur á því athygli með því að fagna sigri með því að kyssa einn ljósmyndarann. Þetta var ekki hvaða ljósmyndari sem er heldur sænskur íþróttaljósmyndari sem er einnig kærasta hans. Williamson kynntist hinni sænsku Linneu Lindberg þegar hann tók þátt í Ólympíuleikunum í París 2024. View this post on Instagram A post shared by The Olympic Games™️ (@olympics) „Ég átti ekki endilega þá Ólympíuleika sem ég ætlaði mér að eiga en í mínum augum er ég sigurvegari því ég kom heim með hana,“ sagði Sam Williamson í viðtali eftir sigurinn. Um leið og Williamson kom fyrstur í mark í 100 metra bringusundi Samveldisleikanna þá hoppaði hann upp úr lauginni og hljóp beint að ljósmyndarahópnum og í fangið á kærustu sinni. Hann gaf henni einn góðan sigurkoss. Eftir það þekktu allir sögu þeirra. Lindberg vinnur fyrir ástralska sundliðið á Samveldisleikunum. „Þetta er ævintýri og eitthvað sem við tvö munum muna að eilífu. Ég held að hún sé með fleiri tár í augunum en ég í augnablikinu,“ sagði Williamson. „Ef við fáum eina góða mynd frá því í kvöld, þá er það allt þess virði. Bara það að hafa hana á sundlaugarbakkanum sem og að hafa mömmu, pabba, systur mína í stúkunni, alla heima að horfa. Þetta er fyrir okkur öll. Ég elska ykkur öll,“ sagði Williamson. Parið fagnaði sigrinum á Instagram með því að deila mynd sem Lindberg tók af Williamson og gullverðlaununum hans við sundlaugarbakkann. Það má sjá myndir af þessu með því að fletta hér fyrir ofan og neðan. View this post on Instagram A post shared by Sam Williamson OLY (@sam_likesjam)
Sund Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Fattaði ekki að hann hefði fótbrotnað Hljóðnema á dómarana og hvar er Kane? Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Wirtz sé búinn að missa trúna Þekkir ekkert annað en pressu Djús en ekki bjór Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Dagskráin í dag: Bónus-deildin hefst með látum Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Tarik framlengir við Víking Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Leikmaður ársins missir af landsleikjum Áföllin halda áfram að dynja á Russell Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira