Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Sunna Sæmundsdóttir skrifar 2. ágúst 2026 22:35 Anna Laufey Stefánsdóttir, sérfræðingur hjá Stafrænni velferð, telur að miða ætti samfélagsmiðlabann unglinga við sextánda aldursár en ekki það fimmtánda, líkt og gert er í áformum stjórnvalda. vísir/samsett Meirihluti landsmanna er fylgjandi samfélagsmiðlabanni unglinga samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Sérfræðingur hjá Stafrænni velferð telur að skilgreina þurfi í frumvarpi hvaða þættir miðlanna séu varasamir.
Í könnun Maskínu var spurt hverstu hlynnt eða andvígt fólk sé því að sextán ára aldurstakmark verði sett á notkun samfélagsmiðla. Alls sögðust um sextíu og sex prósent annað hvort mjög hlynnt eða frekar hlynnt slíku banni. Tuttugu og tvö prósent sögðust hvorki fylgjandi né andvíg en ellefu prósent sögðust frekar eða mjög andvíg. Mennta- og barnamálaráðuneytið birti í júlí í samráðsgátt áform um lagafrumvarp um aldurstakmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum en þar er lagt til að börn fái aðgang að miðlunum 1. janúar á fimmtánda aldursári. Anna Laufey Stefánsdóttir, sérfræðingur hjá Stafrænni velferð, er ein þeirra sem hefur skilað umsögn við áformin. Hún segir þau skref í rétta átt en telur ekki rétta nálgun að fella einungis lista af samfélagsmiðlum undir bannið. Betur færi á því að tilgreina hönnunarþætti líkt og algoriþma, fylgjenda og læk-kerfi og sjálfvirka spilun efnis. „Það verður náttúrulega að vera ienhver fræðsla í fyrirrými fyrir foreldra, börn og samfélagið í heild sinni um það hvað það er sem er skaðlegt í þessum miðlum, hvaða hönnunarþættir það eru sem ber að varast og af hverju þeir eru svona ávanabindandi,“ segir Anna. „Eins og kemur fram í frumvarpinu að þá er þetta í takti við útivistartímann þannig að það eru foreldrar sem bera áfram ábyrgð á því að gefa ekki börnum aðgang að þesum miðlum, en þá þurfum við líka bara að skilgreina það mjög skýrt hvað það er sem við viljum ekki að börnin séu í.“ Samkvæmt könnun Maskínu eru foreldrar leikskóla- og grunnskólabarna auk þeirra sem ekki eiga börn frekar fylgjandi banninu en foreldrar framhaldsskólanema, þrátt fyrir að meirihluti hópanna sé þó alltaf hlynntur. Anna Laufey telur réttara að miða bannið við sextánda aldursár en það fimmtánda, líkt og gert er í áformum stjórnvalda. „Persónulega myndi ég vilja sjá að þessu væri breytt í 1. júní árið sem þau verða sextán ára þannig að í stað þess að þau séu að fá samfélagsmiðla um mitt skólaár níunda bekkjar að þá sé þetta meira í takti við grunnskólagönguna, þannig að í lok hennar séu þau með aðgang að samfélagsmiðlum,“ segir Anna. „Þegar við erum með einhverjar stafrænar vörur, í rauninni sama hver varan er, ef hún er hönnuð til þess að vera ávanabindandi og hönnuð til þess að hámarka notkun og er skaðleg börnum, að þá eigum við að sjálfsögðu að stíga inn í og hleypa ekki börnum þangað inn.“
Börn og uppeldi Samfélagsmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira