Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar 26. júlí 2026 11:01 Kannastu ekki við svipinn á stríðstrúðnum? „Hvað er í pakkanum?“ Viltu ekki örugglega sjá það? Sennilega hefur enginn auglýsingasálfræðingur hannað betri áróðursherferð en þetta. Því að hver man ekki eftir því að hafa langað að kíkja í pakkann, þegar við vorum börn að bíða eftir jólunum? Er það þá ESB sem kemur með jólin í þetta sinn í stað Coca Cola? Auglýsingin nær inn að beini. Að kíkja í pakkann var alltaf svo spennandi, en maður gerði það ekki af því að þá myndi maður svíkja mömmu og pabba, ömmu og afa, og jafnvel skemma jólin sjálf. Milli forvitni og að falla í freistni var millistig: að þreifa á pakkanum. Af lögun og áferð gátum við okkur til um innihaldið. Það gat verið skemmtilegur leikur. Var það bók eða leikfang? Eða bara enn eitt sokkaparið frá frænku? Mjúku pakkarnir gátu valdið vonbrigðum. Aldrei náðu þau þó að rista jafn djúpt og þau sem við höfum fundið sem höfum þreifað nógu vel og vandlega á ESB pakkanum til að vita að við munum segja nei. Nýjar tilskipanir ESB boða mismunun eftir þjóðerni og að Úkraínumenn borgi í blóði fyrir landvist. Nú eru miklar sviptingar að eiga sér stað í Evrópusambandinu. Almennt fá þeir sem flýja stríð hæli. Enginn hefur hingað til ætlast til þess að neinn borgaði fyrir skjólið með blóði. Nú er það að breytast í Evrópusambandinu. Sambandið ætlar ekki lengur að veita Úkraínumönnum sem vilja ekki drepa menn, dvalarleyfi. Það vill að þeir séu sendir aftur á vígvöllinn. Slík er virðing ESB fyrir einstaklingsfrelsi, mannhelgi og mannslífi. Fyrirhugaðar reglur sambandsins vega að grunnstoðum menningar okkar og gildum sem fyrir flestu fólki eru ekki umsemjanleg, eins og samviskufrelsi. Þessi óhugnaðartilskipun liggur nú á borðum íslenskra stjórnvalda og þau beðin að samþykkja. Sennilega myndu þau seint samþykkja þessa afmennskandi tilskipun fyrir sjálf sig eða sín eigin börn. Hver veit þó nema þau verði einn daginn krafin slíks ef þau verða við beiðninni? Eitt það góða við að vera ekki í ESB er að við eigum enn val um hvort við tökum þátt í svona löguðu eða ekki. Á að slökkva friðarljós? Þetta er óhuggulegt í sjálfu sér, en er ekki ennþá óhuggulegra að friðareyjan Ísland taki þátt í þessu? Er ekki sérlega ljótt þegar ríkur maður sparkar í fátækan eða heilbrigður maður hrindir farlama? Á maður ekki að þakka fyrir sín forréttindi með því að reyna að deila þeim með öðrum og láta þau verða þeim til góðs, eins og þegar leiðtogafundurinn var haldinn í Höfða á sínum tíma, og kalda stríðinu lauk? Ísland var valið af því það var ekki aðeins brúin milli þessara ríkja heldur eitt friðsamasta landið, þrátt fyrir allt, í sögu veraldarinnar, hingað til. Menn tala um ættjarðarstolt en tilfinningin sem ég finn þegar ég hugsa um þennan fund er ekki stolt, heldur djúpt þakklæti fyrir forréttindi þjóðarinnar og að eygja von um að breiða þau út. Landinu okkar í ysta norðri, undir Pólstjörnunni, upprunalegum vita sæfarenda sem vísaði þeim leið um höfin, ekki með boðum og bönnum, reglum og siðum, heldur með því að skína ljósi sínu, var ætlað að vera staður sátta. Við skulum taka þetta hlutverk alvarlega. Kannastu ekki við svipinn? Tilskipunin frá ESB sem liggur á borðum íslenskra stjórnvalda um að neita friðarsinnum um landvist, og við hefðum enga valkosti um að samþykkja ef við gengjum í ESB, brýtur ekki aðeins á frelsi og mannvirðingu Úkraínumanna, heldur okkar allra. Ég hef nú þreifað vel og vandlega á þessum ESB pakka nokkuð lengi og ég vil ekki opna hann, því að ég tel mig vita hvað er inni í honum. Hefurðu séð óhuggulega trúðinn sem skýst upp úr pakkanum á gormi þegar maður opnar hann? Það er þannig trúður inni í þessum pakka. Þú breytist sjálfur í stríðstrúð þegar þú opnar hann. Það yrði eins og að líta í spegil. Verst af öllu er að, líkt og í hrollvekjunum, þá er þetta pakki sem lokast aldrei aftur. Nei fyrir Ísland. Nei fyrir framtíðina. Nei fyrir mannkynið. Heimild: Úkraínskir karlar fá ekki hæli í ESB nema þeir hafi uppfyllt herskyldu - RÚV.is Höfundur er listamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar