Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Árni Sæberg skrifar 24. júlí 2026 16:07 Sævar og Kastriot eru taldir hafa skipulagt innflutninginn og fengið tvo skipverja Dettifoss til að framkvæma verknaðinn. Annar tveggja skipverja Dettifoss, sem ákærðir hafa verið fyrir að hafa komið að innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa, segir þá hafa átt að fá 2,5 milljónir króna fyrir ómakið. Ætla má að götuvirði efnanna gæti numið allt að 280 milljónum króna og skipverjarnir gætu átt yfir höfði sér langa fangelsisvist.
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði Landsréttar yfir skipverjanum, sem kveðinn var upp þann 9. júlí síðastliðinn. Hann hefur þegar verið ákærður ásamt hinum skipverjanum og þeim Sævari Erni Hilmarssyni og Kastriot Pepaj. Kastriot og Sævar Örn eru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa staðið að skipulagi innflutnings til landsins með gámaflutningaskipinu Dettifossi í eigu Eimskips í apríl. Skipverjarnir eru ákærðir fyrir að hafa flutt efnin til landsins en af ákæru og fyrri gæsluvarðhaldsúrskurðum má merkja að þeir hafi verið fengnir í innflutninginn en ekki skipulagt hann. Í nýjasta gæsluvarðhaldsúrskurðinum yfir öðrum skipverjanum segir að þrjár skýrslur hafi verið teknar af honum í apríl og maí. Hann hafi þá greint frá aðkomu sinni að málinu og að einhverju leiti frá þætti samverkamanna. Hann greint frá því að hann og samstarfsmaður hans hafi farið í land [í Bramerhaven í Þýskalandi] þar sem þeir hafi hitt tvo menn og eina konu sem hafi afhent þeim efnin og þeir hafi svo farið með þau um borð í skipið. Óttaðist Sævar Örn og vildi lítið segja um hann Við komuna til Íslands hafi hann farið með efnin frá borði. Samverkamaður þeirra, sem í úrskurðinum er kallaður Z en heitir Sævar Örn, hafi séð um að skipuleggja innflutninginn og sagt þeim í gegnum samskiptaforritið Signal hvað þeir ættu að gera. „Þá greindi hann frá því að þeir hafi átt að fá 2.500.000 krónur á mann greiddar fyrir verknaðinn. Hann kvaðst óttast samverkamanninn og vilji því ekki tjá sig um atriði er hann varða.“ Í fyrri málum hefur lögregla miðað við að úr einum lítra af amfetamínbasa megi vinna um fjögur kíló af fíkniefnum. Sé sama viðmið lagt til grundvallar gætu fjórtán lítrar numið um 56 kílóum af tilbúnu efni. Miðað við fimm þúsund krónur grammið væri götuvirðið um 280 milljónir króna. Þannig má reikna út að skipverjarnir hafi átt að fá 1,7 prósent af heildarsöluandvirði efnanna sem þeir fluttu til landsins. Allt að tólf ára fangelsi Samkvæmt almennum hegningarlögum skal hver sá sem andstætt ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni flytur inn fíkniefni sæta fangelsi allt að tólf árum. Ólíklegt verður þó að teljast að skipverjarnir yrðu dæmdir til svo þungrar refsingar en til samanburðar má nefna að einn sakborninga í saltdreifaramálinu svokallaða, sem kom aðeins að innflutningi amfetamínbasa, hlaut átta ára fangelsisvist í Hæstarétti. Hann tók þátt í innflutningi á mun meira magni amfetamínbasa, eða heilum 53 lítrum. Niðurstaða Landsréttar var að staðfesta úrskurð héraðsdóms um gæsluvarðhald yfir skipverjanum til 2. ágúst næstkomandi. Landsréttur komst að sömu niðurstöðu í úrskurðum um gæsluvarðhald yfir hinum skipverjanum og Sævari Erni. Á vef Landsréttar er ekki að finna nokkurn gæsluvarðhaldsúrskurð varðandi Pepaj.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Fíkniefnabrot Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira