Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2026 11:32 Sænska handboltastjarnan Jim Gottfridsson spilar með IFK Ystad í sænsku B-deildinni í vetur. IFK Ystad Sænska handboltastjarnan Jim Gottfridsson er kominn aftur heim til Svíþjóðar og hefur samið við uppeldisfélagið sitt. Það voru samt mörg önnur félög áhugasöm og val hans kom nokkuð á óvart.
Gottfridsson segist hafa hafnað „mörgum góðum tilboðum frá toppfélögum í Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi“ til að snúa aftur heim í uppeldisfélag sitt, IFK Ystad. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á heimasíðu félagsins. Þetta vakti mikla athygli þó Ystad sé vissulega gamalt stórveldi í sænskum handbolta en eins og er spilar félagið í sænsku B-deildinni. Bombernas bomb.https://t.co/Rmf2TrGVuj— Skånesport (@skanesportse) July 21, 2026 Hinn 33 ára gamli Gottfridsson hefur gert þriggja ára samning og snýr aftur eftir mörg ár hjá Flensburg-Handewitt, áður en hann fór til ungverska liðsins Pick Szeged árið 2025. Eftir aðeins níu mánuði í Ungverjalandi rifti Pick Szeged þriggja ára samningnum, sem olli Gottfridsson miklum vonbrigðum og skildi hann eftir með óbragð í munninum. Nú snýr hann aftur heim til IFK Ystad, þar sem ferillinn hófst. Gottfridsson var aðeins tvítugur þegar hann yfirgaf Ystads IF árið 2013 en hann spilaði í tólf ár með Flensburg-Handewitt. Hann hefur skorað 536 mörk í 176 landsleikjum fyrir Svíþjóð og vann fern verðlaun á stórmótum, þar á meðal Evrópumeistaratitilinn 2022 og silfur á HM 2021 og EM 2018. Hann var kosinn mikilvægastur á bæði EM 2018 og EM 2022.
Sænski handboltinn Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira