Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar 23. júlí 2026 12:30 Stöðugleiki er eitt mest notaða orðið í umræðunni um gjaldmiðlamál. Sjaldnar er hins vegar spurt hvað átt sé við. Felst stöðugleiki fyrst og fremst í föstu gengi gjaldmiðils (miðað við aðra gjaldmiðla) eða í því að hagkerfið geti tekist á við áföll án langvarandi samdráttar? Þessu tvennu er gjarnan ruglað saman, þótt um ólík fyrirbæri sé að ræða. Hagkerfi verða reglulega fyrir áföllum. Sum eiga rætur að rekja til innlendra þátta, svo sem breyttra náttúruskilyrða og jafnvel náttúruhamfara en einnig mistaka í hagstjórn. Önnur verða vegna breytinga á ytri aðstæðum, til dæmis vegna verðbreytinga á alþjóðamörkuðum. Gengisfyrirkomulag ræður ekki því hvort slík áföll verða. Það hefur hins vegar áhrif á hvaða úrræði standa til boða þegar hagkerfið þarf að laga sig að þeim. Gengi sem aðlögunartæki Hagkerfi verða ekki stöðug þótt gengi gjaldmiðla þeirra sé fast. Stöðugleiki byggist fyrst og fremst á styrkum efnahagslegum undirstöðum: skynsamlegri hagstjórn, sjálfbærum ríkisfjármálum, samkeppnishæfu atvinnulífi og menntuðum mannauði. Gengisfyrirkomulag getur haft áhrif á þróun efnahagsmála, en langt frá því að það geti komið í stað þessara grunnforsendna. Mikilvægt er að átta sig á hlutverki gengis eða virðis gjaldmiðla þjóða miðað við aðra gjaldmiðla. Gengi gjaldmiðilsins er umfram allt aðlögunartæki. Það er lykilþáttur í því hvernig hagkerfi geta aðlagast þegar áföll dynja yfir. Í sumum hagkerfum getur aðlögun að áföllum að verulegu leyti farið fram með aukinni framleiðslu. Það á ekki með sama hætti við um Ísland. Stór hluti útflutningstekna landsins verður til í atvinnugreinum þar sem framleiðslan er bundin af náttúrulegum eða tæknilegum takmörkunum. Fiskveiðar ráðast af sjálfbærri nýtingu fiskistofna en ekki af því hversu miklar gjaldeyristekjur hagkerfið þarf á hverjum tíma. Álframleiðsla verður ekki heldur aukin að vild þar sem hún ræðst af uppbyggðri afkastagetu og orkuframboði. Þegar framleiðslan getur ekki tekið við áfallinu þarf aðlögunin að fara fram með öðrum hætti. Aðlögun án eigin gjaldmiðils Í þessu liggur mikilvægasta hlutverk eigin gjaldmiðils. Þegar ytri skilyrði breytast getur hluti aðlögunarinnar farið fram í gegnum gengi gjaldmiðilsins. Sé því aðlögunartæki kastað fyrir róða með upptöku erlends gjaldmiðils þarf aðlögunin að eiga sér stað með öðrum hætti. Þá er hætt við að aðlögunin færist yfir á atvinnustig, laun og fjárfestingu. Spurningin um gjaldmiðil er því ekki um stöðugleika hagkerfisins – hagkerfið verði fyrir áföllum, hver svo sem gjaldmiðillinn er. Spurningin um gjaldmiðil er hvernig aðlögunin að óhjákvæmilegum áföllum getur orðið í hagkerfinu. Reynslan frá Finnlandi Finnland hefur um langt skeið glímt við veikan hagvöxt þrátt fyrir að vera eitt þróaðasta hagkerfi Evrópu. Ástæður þess eru margar, meðal annars hnignun Nokia, samdráttur í skógariðnaði, breytt viðskiptasamband við Rússland og lýðfræðileg þróun. Hagfræðingurinn Lars Christensen hefur bent á að upptaka evrunnar hafi dregið úr getu finnska hagkerfisins til að bregðast við þessum áföllum og öðrum hliðstæðum. Með eigin gjaldmiðli hefði hluti aðlögunarinnar getað farið fram með gengisbreytingum og sjálfstæðri peningastefnu í stað langvarandi atvinnuleysis og samdráttar í hagvexti. Reynsla ýmissa annarra þjóða í ESB, eins og Ítala, Spánverja og Portúgala, sem hafa orðið að þola langvarandi lítinn efnahagsvöxt og mikið atvinnuleysi í áratugi vegna þess að þær hafa ekki getað aðlagað gengi eigin gjaldmiðils að ríkjandi efnahagsskilyrðum sínum, er annað dæmi um hvernig svokallaður gengistöðugleiki evrunnar getur drepið sum hagkerfi í dróma. Í umræðunni hér á landi hefur gjarnan verið látið að því liggja að upptaka evru sé lykillinn að stöðugra verðlagi, lægri vöxtum og efnahagslegum stöðugleika. Slík framsetning dregur upp villandi mynd af því hvernig hagkerfi starfa. Enginn gjaldmiðill kemur í stað traustrar hagstjórnar og enginn gjaldmiðill kemur í veg fyrir að efnahagsáföll verði. Spurningin er ekki hvort áföll dynji yfir heldur hvernig hagkerfið getur brugðist við þeim þegar þau verða. Fyrir lítið og opið auðlindahagkerfi eins og hið íslenska er þetta ekki tæknilegt aukaatriði heldur eitt af lykilatriðum þjóðarbúskaparins. Reynslan frá Finnlandi minnir á að stöðugleiki sem byggir á föstu gengi getur verið dýru verði keyptur. Þegar hagkerfi afsala sér mikilvægu aðlögunartæki með upptöku evru getur sá stöðugleiki í gengi sem kann að fylgja orðið að heljargreipum fyrir efnahagslífið. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar