Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 21. júlí 2026 17:01 Ég var aðeins þriggja ára þegar ég fór fyrst í sveitina til ömmu og afa. Þar kviknaði virðing mín fyrir fólkinu sem ræktar landið og framleiðir þær gæðavörur sem við njótum á hverjum degi. Þau kenndu mér að bera virðingu fyrir náttúrunni, dýrunum og þeirri miklu vinnu við að rækta landið. Ég lærði að ekkert verður til af sjálfu sér. Bændur eru ein af lykilstoðum íslensks samfélags. Þeir tryggja ekki aðeins byggð um allt land, heldur eitt mikilvægasta öryggismál þjóðarinnar – fæðuöryggi. Ég trúi því að flestir bændur eigi sér sama draum og aðrir sem reka fyrirtæki. Að sjá jörðina sína blómstra og byggja upp rekstur sem stendur undir góðum lífsgæðum. Að börnin þeirra sjái framtíð í búskapnum ef þau kjósa að taka við og að geta lifað af vinnu sinni með reisn. Framtíðin bíður ekki Í leiðtogafræðum spyrjum við: „Hvað get ég gert betur í dag en í gær?" Þessi spurning á ekki aðeins við um einstaklinga. Hún á við um íslenskan landbúnað og samfélagið í heild sinni. Samfélagið breytist hratt. Neysluvenjur breytast. Tæknin þróast. Nýjar hugmyndir verða til. Þau fyrirtæki sem dafna best eru þau sem hafa hugrekki til að læra, þróast og skapa ný verðmæti í takt við þarfir viðskiptavina sinna. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hefur ítrekað lagt áherslu á mikilvægi hugrekkis. Mér finnst það orð eiga einstaklega vel við þegar við horfum til framtíðar íslensk landbúnaðar. Hugrekki til að spyrja nýrra spurninga. Hugrekki til að skoða nýjar leiðir. Hugrekki til að ræða breytingar af virðingu og með opinn huga fyrir góðum lausnum. Mig langar með þessari grein að hefja slíka umræðu. Ekki vegna þess að ég tel mig hafa svörin heldur vegna þess að ég tel að við þurfum að spyrja betri spurninga og leita nýrra lausna. Neytandinn hefur breyst Þegar ég var barn keypti ég heila ýsu í fiskbúðinni sem var vafin inn í dagblað. Í dag gera neytendur allt aðrar kröfur. Þeir vilja vita hvaðan maturinn kemur, hvernig hann var framleiddur, kröfur um gæði, dýravelferð, sjálfbærni og hreina náttúru. Hvert er eitt stærsta samkeppnisforskot Íslands í landbúnaði? Ísland verður aldrei stærsti matvælaframleiðandi Evrópu. En við getum orðið meðal þeirra bestu í hreinum náttúrlegum afurðum. Við eigum ekki að keppa við önnur lönd í magni heldur í gæðum og náttúrulegri sérstöðu. Sama jörðin getur skapað fleiri og meiri verðmæti Víða um land hafa bændur þegar sýnt okkur nýjar leiðir. Þeir framleiða ekki aðeins mjólk eða kjöt heldur reka einnig gistingu, matvælavinnslu, beinsölu, skógrækt, hestaferðir og aðra upplifun sem byggir á sérstöðu jarðarinnar. Góður bóndi sagði nýlega við mig brosandi: "Ég er hættur að mjólka kýrnar. Nú mjólka ég ferðamennina." Þessi setning er sögð í gamni en lýsir stórri breytingu. Jörðin er ekki lengur aðeins vettvangur matvælaframleiðslu. Hún getur einnig orðið uppspretta fjölbreyttra verðmæta fyrir bóndann, fjölskyldu hans og samfélagið. Frá bónda til frumkvöðuls Kannski er stærsta tækifærið fólgið í því þegar bóndinn sér sig sem frumkvöðul. Framtíðarbóndinn verður ekki aðeins framleiðandi heldur einnig markaðsmaður, vöruþróunaraðili, gestgjafi og sögumaður sem finnur sífellt nýjar leiðir til að skapa verðmæti á sömu jörðinni eða nokkrir saman. Það felast tækifæri í gæðamatvælum, ferðaþjónustu, heilnæmi, kyrrð, náttúruupplifun, matarmenningu og því sem ég kalla lífsrækt – að skapa aðstæður sem efla bæði heilsu fólks og styrkja samfélagið. Framtíðin tilheyrir þeim sem nýta jörðina á sjálfbæran hátt og skapa mestu verðmætin á sama tíma. Hugrekki til að skoða nýja möguleika Hvort sem Ísland verður innan Evrópusambandsins eða utan þess, stöndum við frammi fyrir sömu grunnspurningunum: Hvernig byggjum við upp bú sem geta staðið undir góðum tekjum, eðlilegum vinnutíma, fjárfestingum? Hvernig gerum við búskap að spennandi framtíðarstarfi fyrir ungt fólk? Þegar ný tækifæri opnast – hvort sem þau tengjast tækni, nýjum mörkuðum eða hugsanlegum samningi við Evrópusambandið – eigum við að hafa hugrekki til að skoða þau áður en við lokum dyrum. Hugrekki felst ekki í því að vera alltaf sammála. Hugrekki felst í því að afla upplýsinga, hlusta á ólík sjónarmið og taka síðan upplýsta ákvörðun. Þetta er aðeins upphaf að dýpra samtali Ég hef ekki svörin. Mig langar að opna umræðu meðal þeirra sem þekkja best til og vilja vinna saman að því að byggja upp enn öflugri íslenskan landbúnað. Í næstu greinum langar mig meðal annars að skoða: Hvernig getur sama jörðin eða sameinaðar, skapað meiri verðmæti? Hvernig getum við byggt upp sterk alþjóðleg vörumerki fyrir íslensk gæðamatvæli? Hvernig er hægt að samþætta matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu og upplifun til að styrkja rekstur bænda? Hvaða rekstrarform og samvinna geta tryggt bændum sambærileg lífsgæði og öðrum á vinnumarkaði? Hvað getum við lært af þeim löndum sem hafa náð mestum árangri? Hvaða tækifæri og áskoranir gætu falist í nánara samstarfi við Evrópu ef við veljum að skoða þá leið? Framtíðin verður ekki til af sjálfu sér. Hún verður til þegar fólk hefur hugrekki til að spyrja nýrra spurninga, vinna saman og skapa ný tækifæri. Ef bændur og tengdir aðilar hugsa um þarfir mannsins á hverjum tíma og sýna frumkvæði, trúi ég því að íslenskur landbúnaður geti orðið einn sá framsæknasti á heimsvísu. Við skulum ekki bíða eftir framtíðinni. Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun, áhugamaður um leiðtogastjórnun og framtíð Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Landbúnaður Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson skrifar Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson skrifar Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Síli veidd í skólpi Jónas Már Torfason ,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Sjá meira
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun