„Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 20. júlí 2026 22:18 Klósettpappír var troðið í gluggann á baðherbergi íbúðarinnar sem Kolbrún leigir út. Myndin hægra megin er úr safni og er ekki tengd fréttinni beint. Samsett Leigusali segir farir sínar ekki sléttar af viðskiptum við óprúttið par sem vildi fá gistinótt endurgreidda en reyndist svo hafa notað aðstöðu íbúðarinnar og lagt hana í rúst. Málið sé hrein svik en „leiðinlegast er hvernig er farið með eigur manns.“
Kolbrún Hauksdóttir leigir út íbúðir, bæði í gegnum Airbnb og vefsíðuna Booking.com, og hefur gert síðastliðin tíu ár. Í síðustu viku deildi hún reynslu sinni af ferðamönnum sem hafi lagt íbúðina í rúst en fengið gistinóttina endurgreidda. Parið, sem hafði leigt íbúðina í gegnum Booking, hafi sent Kolbrúnu skilaboð og sagst vilja afbóka gistinguna. Þau hafi síðan hringt í hana og sagst ekki geta leigt íbúðina vegna óhreininda og vilji afbóka gistinóttina og fá hana endurgreidda. Hún hafi ekki vitað hvað parið hafði dvalið lengi í íbúðinni áður en þau höfðu samband en enginn á hennar vegum hafi verið á staðnum til þess að fara til parsins og kíkja á íbúðina. „Akkúrat þarna er enginn á staðnum til að fara til þeirra, þannig að ég vil bara trúa þeim, maður vill trúa kúnnunum sínum, þó svo ég vissi innst inni að þetta væri ekki raunin þar sem ég þreif sjálf þetta hús bara fyrr um daginn,“ segir Kolbrún sem var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. „Svo kem ég á staðinn og þá kemur í ljós að þau eru búin að dvelja eitthvað þarna inni, þar sem að það er búið að nota rúmið, kveikt á sjónvarpinu, allt í drasli. Búið að fara í sturtu, klína klósettpappír í gluggana, búið að smúla fram fyrir sturtuna,“ segir Kolbrún. Atvikið hafi verið viljaverk en allt baðherbergið hafi verið á floti. Kolbrún segir gott gler vera fyrir sturtunni þannig það þurfi að hafa mikið fyrir því að toga sturtuhausinn fyrir glerið og sprauta vatni um allt baðherbergið. Hún telur mögulegt að umrætt par sé ferðamenn á ferðabílum sem vilji „bara komast í almennilega sturtu og smá tjill og svo bara halda áfram með sinn bíl.“ Kolbrún segir uppákomur sem þessar ekki algengar en leiðinlegast sé hvernig er farið með eigur fólks. „Það er náttúrulega mismunandi hvernig fólk gengur um en við höfum ekki lent í svona rosalegu.“ „Maður lærir af þessu“ Hún hafi strax í kjölfarið reynt að hafa samband við parið en þau hafi lokað á númerið hennar. Hún hafi þá reynt að hringja úr öðru íslensku númeri en sínu eigin en þau hafi ítrekað skellt á. Á endanum hafi hún gefist upp og hringt í teymi Booking-síðunnar sem sé að fara yfir málið en hún hafi enn ekkert heyrt. Vegna þess að Kolbrún samþykkti endurgreiðsluna áður en hún fór á staðinn fái parið gistinóttina endurgreidda eins og staðan er núna. „Af því ég samþykkti þetta þá fá þau í rauninni endurgreitt. En maður lærir af þessu, að endurgreiða ekki fyrr en maður er búinn að ná að kíkja á þetta.“ Lögreglan hafi öðrum hnöppum að hneppa Hún sagði frá atvikinu í Facebook-hóp fyrir fólk sem starfar i ferðaþjónustu eða hefur áhuga á henni. Hún hafi viljað vara aðra sem starfi í ferðaþjónustu við parinu en færslan fékk töluverða athygli. Margir hafi hvatt Kolbrúnu til þess að leita til lögreglu vegna málsins en hún segir lögregluna ekkert geta gert í slíkum málum þar sem skemmdirnar séu betur fer ekki meiriháttar vegna snöggra viðbragða. „Við náðum að komast hjá öllum skemmdum þar sem við komum í tæka tíð á staðinn, þannig að í rauninni hafa þeir [lögreglan] nóg að gera við eitthvað annað en að eltast við þetta.“ Reglulega koma upp mál þar sem fólk lendir í gestum sem gangi illa um, neiti að borga og þar fram eftir götunum, að sögn Jóhanns Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, í síðustu viku. Ef skemmdir séu unnar á eignum eða ekki greitt fyrir gistingu liggi beinast við að láta lögreglu vita en málið geti flækst þegar gisting er bókuð í gegnum þriðja aðila.
Ferðaþjónusta Reykjavík síðdegis Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Sjá meira