Hetjan Torres: „Þetta voru örlögin“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. júlí 2026 22:45 Ferran Torres snertir heimsmeistarastyttuna sem Spánn hefur nú hampað í tvígang. getty/Alex Pantling Ferran Torres reyndist hetja Spánar gegn Argentínu í úrslitaleik HM 2026. Hann skoraði eina markið í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar. Torres segir að þungu fargi hafi verið af sér létt þegar hann sá boltann í netinu. „
Ég held að á endanum hafi markið komið frá 47 milljónum Spánverja, ekki bara okkur sem erum hér. Þetta voru örlögin. Okkur var ætlað að sigra. Við erum langt frá fólkinu okkar í dag en við reyndum að vera eins nálægt því og mögulegt var,“ sagði Torres eftir úrslitaleikinn á MetLife-leikvanginum í New Jersey. Spánverjar voru miklu meira með boltann í leiknum og sóttu stíft að marki Argentínumanna. Stíflan brast þó ekki fyrr en á 106. mínútu. „Úrslitaleikir eru erfiðir. Þegar þú ert með [Lionel] Messi í liði andstæðingsins hefurðu áhyggjur en við höfðum alltaf trú á okkur. Við reyndum að sýna okkar fótbolta og ég held að okkur hafi tekist það enn og aftur,“ sagði Torres. „Það var mikill léttir [að skora]. Ég hef verið gagnrýndur allt mótið en eins og ég sagði voru þetta örlögin. Guði sé lof, hann gefur mér alltaf styrk til að halda áfram og á endanum verðlaunar hann þá sem verðskulda það mest.“ Markið hjá Torres í kvöld var hans 25. fyrir spænska landsliðið, í 65 leikjum. Hann leikur með Barcelona en er uppalinn hjá Valencia.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Argentínumaðurinn Leandro Paredes var rekinn af velli eftir úrslitaleik HM gegn Spánverjum fyrir slagsmál. 19. júlí 2026 22:29 Mest lesið „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Enski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Íslenski boltinn Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Fótbolti Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ „Þurfum að nýta góðu kaflana betur“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Rúnar Alex fékk á sig fjögur þegar FCK tapaði fyrsta deildarleiknum „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Ísak skoraði og klúðraði víti í íslenskum nýliðaslag Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjá meira
Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Argentínumaðurinn Leandro Paredes var rekinn af velli eftir úrslitaleik HM gegn Spánverjum fyrir slagsmál. 19. júlí 2026 22:29