24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson skrifar 17. júlí 2026 13:02 Um síðustu mánaðarmót létu samtökin Heilsuvon Maskínu gera könnun meðal Íslendinga til að meta tíðni alvarlegra veikinda í kjölfar bólusetningar með COVID-19 bóluefnunum. Spurt var: „Hefur þú eða einhver sem þú þekkir orðið fyrir alvarlegum heilsufarsvandamálum sem þú/viðkomandi telur að hafi komið fram í kjölfar COVID-19 bólusetningar? Með alvarlegum heilsufarsvandamálum er átt við einkenni sem leiddu til læknisheimsóknar, sjúkrahúsinnlagnar eða skertrar starfsgetu.“ Niðurstaðan var sláandi. 6,1% sögðust sjálf hafa skaðast alvarlega og þriðjungur landsmanna þekkti einhvern sem hafði orðið fyrir slíkum skaða. Báðar tölurnar styðja hvor aðra. Það virðist eitthvað meiriháttar hafa gerst. Þetta bætist við þá staðreynd að í lok árs 2022 höfðu borist 6.197 tilkynningar um mögulegar aukaverkanir af COVID-bóluefnunum. En af hverju eru yfirvöld þá þögul? Ærandi þögn Í mars síðastliðnum höfðu aðeins 12 fengið bætur úr sjúkratryggingum vegna skaða eftir COVID-19 bólusetninguna. Af sumum úrskurðum má sjá að yfirvöld virðast krefjast meiri sönnunarbyrði af einstaklingum til að sýna fram á skaðsemi bóluefnanna en krafist var af lyfjafyrirtækjunum sjálfum til að sýna fram á öryggi þeirra. En hvað ætli sé að frétta af lýðheilsu þjóðarinnar þegar svona risaáföll skella yfir? Samkvæmt fréttum virðast alls konar sjúkdómar sem fæstir könnuðust við áður vera komnir á flug. Þar má nefna POTS, ME, Long COVID og andlitslömun, sem hefur fimmfaldast frá því árið 2017. Það er reyndar varað við andlitslömun sem mögulegum fylgikvilla á fylgiseðli bóluefnanna, en samt er eins og megi ekki ræða það. Þetta er þó mögulega aðeins lítill hluti vandans. Áhrifanna kann einnig að gæta í tíðni mun algengari kvilla eins og hjartavandamála, blóðrásarvandamála, krabbameina og jafnvel ófrjósemi. Margt af þessu er hins vegar enn óljóst sem kallar á frekari rannsóknir og að fylgst sé mjög náið með þróuninni. En miðað við hve fáir hafa fengið bætur, þá liggur nokkuð ljóst fyrir að ákveðin afneitun er í gangi. En hvernig ætli gangi að meðhöndla sjúkdóm sem heilbrigðisyfirvöld neita að sé til? Hætt er við að þá verði aðeins ráðist á einkennin, meðan orsök veikindanna fær áfram að grassera. Þegar kerfið neitar tilvist vandans hafa læknar oft fá önnur úrræði en að vísa bóluefnasköðuðum í Long COVID-meðferð, þó það sé annar sjúkdómur. Enginn veit hversu margir af þeim sem eru að eiga við þessa nýju sjúkdóma eru í raun að berjast við bóluefnaskaða. Slíkur skaði getur kallað á meðferðir sem beinast að áhrifum broddpróteinsins en ekki bara að einkennunum. Valblinda er ekki afsökun Sama á líka við um aðrar hættur sem kunna að steðja að. Ef grunur er um að efni eða prótein tengd bólusetningunum geti setið eftir í líkamanum og valdið skaða, þá ætti að vera sjálfsagt að rannsaka það skipulega. Af hverju eru heilbrigðisyfirvöld hér á landi ekki líka að skima eftir slíku í blóði, vefjum og æxlum þar sem alvarleg veikindi koma fram? Af hverju eru ekki rannsökuð sérstaklega þau alvarlegu heilsufarsvandamál sem þegar er varað við á fylgiseðlum bóluefnanna? Og af hverju hafa yfirvöld ekki borið saman heilsufarsþróun bólusettra og óbólusettra? Það fer ekki saman að ríkið lofi bótum vegna bóluefna sem framleiðendur vildu ekki ábyrgjast, en hunsi síðan eigin rannsóknarskyldu. Ekki er hægt að varpa þeirri byrði yfir á veikt fólk. Þessi einfalda spurningakönnun sem Maskína lagði fyrir virðist benda til þess að þarna fari ekki saman hljóð og mynd. Nú þarf almenningur að krefja yfirvöld um svör. Höfundur er formaður Ábyrgrar framtíðar og situr í stjórn Heilsuvonar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ábyrg framtíð Jóhannes Loftsson Heilbrigðismál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Ræður Ísland eitt við heilbrigðisverkefni framtíðarinnar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg stefna í alþjóðamálum Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Raunverulegt sjálfstæði Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson skrifar Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson Skoðun
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar
Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar
Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson Skoðun