Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. júlí 2026 09:45 Þrátt fyrir að vísbendingar séu um fámennari Þjóðhátíð er hún ein vinsælasta hátíð ársins. Vísir/Viktor Freyr Umræðan meðal íbúa í Vestmannaeyjum er að það verði heldur fámennari Þjóðhátíð í ár heldur en áður. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir óvenjulega marga miða eftir í ferjuna en formaður Þjóðhátíðarnefndar segist vera að taka miðsöluna „á langhlaupinu“.
Fréttastofu hafa borist ábendingar um að það gangi almennt hægt og jafnvel brösuglega að leigja út íbúðir og hús miðað við undanfarin ár. Þá berast einnig fregnir af því að nokkrir þeirra sem leigðu húsin með töluverðum fyrirvara séu að skipta um húsnæði þar sem nú sé hægt að fá þau á lægra verði. Ef leigusíður Vestmannaeyja og síðan tileinkuð Þjóðhátíð á Facebook eru skrunaðar má sjá fjöldann allan af auglýsingum fyrir húsnæði sem standa enn til boða. Töluvert af lausum miðum í Herjólf Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, staðfestir sömuleiðis í samtali við fréttastofu að óvenjulega mikið af miðum til Vestmannaeyja fyrir Þjóðhátíð séu enn óseldir. Sömuleiðis er töluvert af lausum miðum frá Eyjum á mánudeginum og þriðjudeginum. „Ég get sagt það við þig að miðað við þennan tíma er meira laust heldur en oft áður í þessar ferðir,“ segir hann. Ólafur Jóhann tekur fram að veðrið síðustu ár kunni að hafa áhrif á eftirspurn hátíðarinnar. Hann tekur þó fram að ÍBV, sem sér um hátíðina, kaupir stóran hluta miðanna og selur sjálft til að bjóða þjóðhátíðargestum upp á ákveðinn pakka. Á síðustu Þjóðhátíð þurftu fjölmargir gestir sem hugðust gista í tjöldum að leita sér skjóls í Herjólfshöll. Þrumuveður, rok og rigning léku skipuleggjendur grátt, hvíta tjaldið fauk, hætt var við að kveikja í brennunni og þurfti að aflýsa ferðum með Herjólfi vegna veðurs. Þá voru heldur mörg tjöld sem fuku árið 2024, líkt og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan. Tekið á langhlaupinu „Nú er forsölunni að ljúka á föstudaginn og ég hef trú á því að það komi kippur í þetta núna í dag og á föstudag,“ segir Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndarinnar. „Ég hef heyrt að það er erfiðara að selja á viðburði í dag og það eru margir viðburðir undir.“ Gríðarlega mikill fjöldi hefur sótt Þjóðhátíð í Eyjum undanfarin ár. Hann segir að það hafi aðeins fækkað í hópnum á síðasta ári en miðasalan sé að nálgast þá tölu. „Við erum ekki að fara ná þessari 2024 hátíð en við verðum held ég með hefðbundna Þjóðhátíð, ég hef haldið í vonina.“ Jónas viðurkennir að miðasalan hafi farið hægar af stað en búast mátti við og sé ef til vill tilefni til að endurskoða lengd forsölutímans. „Það sem ég heyri er að fólk er seinna við að kaupa, ég veit ekki hvort það séu ungu krakkarnir sem eru ekki að kaupa miða í mars fyrir viðburð í ágúst. Það er einhver breyting á þessu og mögulega er það þessi forsölutími sem þarf eitthvað að skoða,“ segir hann. „Við tökum þetta á langhlaupinu.“ Hann hafi þó trú á Þjóðhátíð sem sé stórt vörumerki. Aðspurður hvort það hafi einhver áhrif að í fyrsta skipti í langan tíma mun FM95BLÖ ekki stíga á svið í Eyjum heldur á Akureyri segir hann að það geti mögulega haft áhrif. „Það er líka búið að vera mikið í boði á þessu ári, meira heldur en venjulega og það hefur áhrif.“
Þjóðhátíð í Eyjum Vestmannaeyjar Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira