Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar 15. júlí 2026 13:33 Ungur tileinkaði ég mér þá hugsun að við værum öll íbúar í sama fjölbýlishúsinu sem kallast jörð. Ekkert land væri í raun og veru eyríki. Sérhvert okkar bæri ábyrgð á heiminum, sameiginlegum bústað okkar allra, og við værum því fyrst og síðast heimsborgarar – global citizens. Það tók mig ekki mörg ár að átta mig á því að þessi hugsunarháttur var mörgu samferðarfólki mínu framandi. Mörg okkar líta fyrst á sig sem íbúa í ákveðnu sveitarfélagi, síðan sem Íslendinga og þá kannski Evrópubúa. En heimsborgarar? Nei takk! Hugtakið global citizen er erfitt að þýða á íslensku. Heimsborgari kemst líklega næst því, þótt orðið hafi hér á landi fremur verið notað um víðförult og menningarlega sinnað fólk. En global citizen er annað og meira. Það hefur siðferðilegan grunntón og á við um einstaklinga sem líta svo á að ábyrgð þeirra og skyldur nái út fyrir landamæri eigin ríkis, þeir tilheyri ekki aðeins þjóð sinni heldur stærra samfélagi mannkyns. Heilaga þrenningin, land, þjóð og tunga, hverfur hins vegar ekki úr sjálfsmyndinni. Við kjarnann bætist einfaldlega stærri hringur sem nær utan um allan heiminn. Víða erlendis er hugmyndin um hnattræna borgaravitund ekki aðeins viðurkennd heldur hluti af menntun barna og ungmenna. Undir heitinu Global Citizenship Education fá nemendur tækifæri til að ræða og takast á við málefni sem virða engin landamæri: loftslagsbreytingar, stríð og frið, mannréttindi, fátækt og misskiptingu. Markmiðið er að auka skilning þeirra á því að þau tilheyra jafnframt stærra samfélagi og beri, eins og aðrir, ábyrgð á sameiginlegri framtíð þess. Ég leyfi mér að efast um að hugmynd um sérstaka kennslu í hnattrænni borgaravitund yrði tekin fagnandi hér á landi. Líklega yrði ekki langt að bíða ásakana um pólitíska innrætingu, glóbalískan áróður og atlögu að þjóðlegum gildum. Sú hugsun ein segir kannski meira en mörg orð um viðhorf okkar til heimsborgarahugtaksins. Upplifun mín er sú að alþjóðahyggja fái oft á sig neikvæðan blæ í umræðunni. Að vera kallaður „glóbalisti“ er sjaldnast hrós og orðið alþjóðasinni getur í munni sumra hljómað eins og lýsing á varhugaverðum manni sem beri minni tryggð til eigin þjóðar en annarra. Eins og ást á eigin landi og áhugi á heiminum séu andstæður. En hvers vegna? Af hverju ætti mér að þykja minna vænt um Ísland vegna þess að mér er líka umhugað um heiminn? Ættjarðarást og alþjóðahyggja útiloka ekki hvor aðra. Þvert á móti ætti þjóð sem stendur traustum fótum í eigin menningu og sjálfsmynd að geta leyft sér að horfa óhrædd út fyrir landsteinana, jafnvel stolt. Skýringa á viðhorfum margra Íslendinga er sjálfsagt að leita í sögu þjóðarinnar. Brauðstritinu, örbirgðinni, óblíðri náttúrunni og fámenninu. Við bjuggum öldum saman við meiri einangrun en flestar nágrannaþjóðir okkar, þurftum að berjast fyrir sjálfstæði, varðveita sérstætt tungumál og menningu og byggja upp samfélag á afskekktri eyju þar sem flest var okkur mótdrægt. Úr þeirri sögu varð til sterk þjóðernisvitund og sumpart skiljanleg tortryggni gagnvart erlendu valdi og áhrifum. Sjálfstæðisbaráttan kenndi okkur að líta inn á við og standa á eigin fótum. Það var styrkur okkar. Sá styrkur má hins vegar ekki breytast í veikleika og blinda okkur sýn á alþjóðasamvinnu sem tækifæri fremur en ógn. Smáríki eiga öðrum fremur allt sitt undir friði, viðskiptum, alþjóðlegum leikreglum og því að réttur ráði fremur en máttur. Við höfum því síst af öllum efni á að líta svo á að heimurinn utan landsteinanna komi okkur ekki við. Íslendingar til forna áttu ágæta myndlíkingu um þann sem sá ekki út fyrir sinn þrönga reynsluheim. Hann hafði asklok fyrir himin. Þótt askurinn sé flestum gleymdur finnst mér stundum eins og asklokið byrgi enn mörgum sýn og viðhaldi óþarfa þröngsýni þegar umræðan snýst um Ísland og umheiminn. Er ekki kominn tími til að lyfta lokinu? Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar