Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Jón Þór Stefánsson skrifar 7. júlí 2026 14:14 Myndin er úr safni. Getty Netöryggisfyrirtækið Syndis rannsakar nú alvarlega netárás þar sem talið er að gervigreindarlíkani hafi verið beitt, en þau eiga að vera búin öryggishömlum sem eiga að koma í veg fyrir misnotkun af þessu tagi. Í tilkynningu segir að þetta sé ein flóknasta og þróaðasta netárás sem fyrirtækið hafi rannsakað til þessa. „
Það sem vekur sérstaka athygli sérfræðinga er að árásirnar byggja á veikleika sem hefur CVSS-einkunnina 7,5. Þótt sá veikleiki falli í flokkinn „High“ telst hann hvorki með alvarlegustu veikleikum né í „Critical“-flokki. Þar að auki krefst nýting hans mjög flókinna og sértækra aðstæðna sem hingað til hafa takmarkað áhuga árásaraðila á honum,“ segir í tilkynningu. „Markmiðið virðist hafa verið að tryggja að jafnvel þótt hluti aðgangsins yrði uppgötvaður og fjarlægður gæti árásaraðilinn endurheimt stjórn á umhverfinu með öðrum leiðum. Slíkt umfang er sjaldséð og bendir til mjög markvissrar notkunar á þekkingu sem áður hefði almennt aðeins verið aðgengileg reyndum sérfræðingum eða skipulögðum hópum.“ Þá segir að ekkert í rannsókninni bendi til þess að þarna hafi skipulagður hópur verið að verki. „Þvert á móti virðist árásin vera framkvæmd af einum einstaklingi sem nýtir sér gervigreind sem öflugan aðstoðarmann við skipulagningu, þróun og framkvæmd árásarinnar.“ Rannsókn málsins stendur enn yfir. „Ef staðfest verður að stór gervigreindarlíkön hafi verið nýtt til að hanna, samræma og hraða þróun svo flókinna árása gæti það breytt landslagi netöryggis verulega á næstu árum.“
Netöryggi Gervigreind Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira