Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar 3. júlí 2026 12:30 Þessari spurningu svarar Bjarni Már Magnússon lögmaður og doktor í hafrétti á Evrópuvefnum þann 29. júní sl. Efnislega heldur hann því fram að aðild Íslands að Evrópusambandinu feli ekki í sér að Ísland tapi fullveldi sínu. Hann bendir á að það sé einmitt einkenni fullvalda ríkja að geta tekið á sig alþjóðlegar skuldbindingar og gengið í alþjóðastofnanir af fúsum og frjálsum vilja. Að hans mati er aðild að ESB því beiting fullveldis en ekki afsal þess. Til stuðnings þessu vísar hann meðal annars til þess að Bretland hafi getað sagt sig úr sambandinu með Brexit og líkir stöðu ríkja við lögráða einstakling sem nýtir frelsi sitt til að gera bindandi samninga án þess að missa lögræði sitt. Þessi skilningur á fullveldi á sér trausta stoð í hefðbundnum þjóðarétti. Hins vegar vaknar spurningin hvort hann lýsi nægilega þeirri valdatilfærslu sem felst í aðild að yfirþjóðlegu samstarfi á borð við Evrópusambandið. Það er óumdeilt að fullvalda ríki getur ákveðið að ganga í Evrópusambandið og síðar ákveðið að ganga úr því. Sú ákvörðun er í sjálfu sér beiting fullveldisréttar ríkisins samkvæmt þjóðarétti. Ég tel hins vegar að þetta svari annarri spurningu en þeirri sem umræðan snýst um. Ágreiningurinn snýst ekki um hvort Ísland hafi heimild til að gerast aðili að ESB, heldur hvaða stjórnskipunarlegu afleiðingar slík aðild hefur á meðan hún varir. Bjarni Már líkir þessu við lögráða einstakling sem tekur lán eða ræður sig í vinnu og bendir á að hann afsali sér ekki lögræði sínu heldur nýti það. Sú samlíking er að mínu mati ekki alveg heppileg. Einstaklingurinn tekur á sig verulegar skuldbindingar en framselur almennt ekki öðrum heimild til að taka ákvarðanir í sinn stað. Ef leita ætti hliðstæðu í einkarétti væri nær að líkja þessu við að einstaklingur fæli fjárhaldsmanni umsjón með hluta eigna sinna eða veitti öðrum víðtæka prókúru til að taka bindandi ákvarðanir fyrir sína hönd. Hann er áfram lögráða og getur jafnvel síðar afturkallað slíkar ráðstafanir ef skilyrði eru fyrir hendi. Á meðan þær eru í gildi hefur hann þó fært öðrum raunverulegt ákvörðunarvald á tilteknum sviðum. Það er mun nær því sem felst í framsali valdheimilda til yfirþjóðlegra stofnana. Bjarni vísar réttilega til þess að Bretland gat sagt sig úr ESB. Sú staðreynd segir hins vegar fyrst og fremst eitthvað um rétt ríkja til að segja sig úr sambandinu, en minna um valdaskipanina á meðan aðild varir. Leigjandi hættir ekki að vera leigjandi vegna þess eins að hann geti síðar sagt upp leigusamningi sínum. Starfsmaður hættir heldur ekki að lúta stjórnunar- og boðvaldi vinnuveitanda síns vegna þess að hann geti sagt upp starfi sínu síðar. Á meðan samningarnir eru í gildi hafa þeir raunveruleg réttaráhrif og fela í sér raunverulegar takmarkanir á ákvörðunarvaldi viðkomandi. Þessi munur birtist ekki síst í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins. Frá fyrstu árum Evrópusamstarfsins hefur dómstóllinn byggt á því að aðildarríkin hafi á afmörkuðum sviðum framselt valdheimildir til hins nýja réttarkerfis sambandsins. Í dómum á borð við Van Gend en Loos og Costa gegn ENEL voru mótaðar meginreglur um bein réttaráhrif og forgangEvrópuréttar. Þessi dómaframkvæmd undirstrikar að ESB byggir á annars konar stjórnskipulegu fyrirkomulagi en hefðbundnir þjóðréttarsamningar. Því er að mínu mati ekki fullnægjandi að svara áhyggjum um framsal ríkisvalds með því einu að vísa til þess að Ísland geti síðar sagt sig úr Evrópusambandinu. Spurningin er ekki hvort Ísland yrði áfram fullvalda ríki heldur að hvaða marki valdheimildir á sviði löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds á tilteknum sviðum yrði fært til stofnana Evrópusambandsins. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar