Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Freyja Þórisdóttir skrifar 3. júlí 2026 11:53 Í ummælum við færsluna segir að niðurbrotsferlið hafi verið komið svo langt á veg að erfitt væri að meta hvernig feldur hundsins var á litinn. Mynd er úr safni og er af jöklinum en tengist málinu ekki beint. Getty Hundur hefur fundist dauður vestanmegin við Langjökul en ekki er víst hvort hann lá í jöklinum sjálfum og sé að koma undan núna í hlýnandi veðri eða hvort hann hafi legið á ísnum eða við jaðar jökulsins. Ekki er hægt að meta tegund né lit á feldi vegna mikils niðurbrots en hundurinn virðist vera af meðalstærð.
Eru það sjálfboðaliðasamtökin Dýrfinna, sem aðstoða við leit að týndum dýrum, sem auglýsa eftir eiganda hundsins í færslu á Facebook. Þar kemur fram að um háls hundsins sé bólstruð ól og óska samtökin eftir því að eigandi setji sig í samband við þau og geti sagt hvernig ól hundsins sé á litinn. „Líkaminn er það langt kominn í niðurbrots ferlinu að við getum ekki sagt til um tegund með vissu, áætlað er að hann se af meðalstærð. Hundurinn er með ól sem er bólstruð og ætti eigandi að geta sagt okkur hvernig hún er á litinn,“ segir í færslunni. Þar segir einnig að líklegt þyki að hundurinn hafi týnst fyrir nokkru eða horfið þegar hann datt ofan í sprungu eða annað slíkt. Þá hefur þegar verið haft samband við sleðahundafyrirtæki sem heldur úti ferðum þarna á svæðinu yfir veturinn en hundurinn er ekki frá þeim. Eru allir sem geta mögulega upplýst um eiganda hundsins eða veitt aðrar upplýsingar hvattir til að senda Dýrfinnu skilaboð á Facebook. Fjöldi ummæla hefur safnast undir færslunni og hefur þar verið bent á mörg mismunandi hundshvörf en af svörum samtakanna að dæma hafa ábendingarnar ekki enn borið árangur.
Hundar Dýr Borgarbyggð Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Sjá meira