Bæjarstjóri í þriðja skipti Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. júlí 2026 08:27 Pétur tekur við stöðu bæjarstjóra Grindavíkur. Grindavík Pétur G. Markan hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra Grindavíkur. Er þetta í þriðja skiptið sem hann tekur að sér að leiða stjórn bæjar.
Pétur starfaði síðast sem bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og þar áður gegndi hann embætti biskupsritara og stýrði samskiptamálum þjóðkirkjunnar. Hann var þá sveitarstjóri Súðavíkurhrepps um fimm ára skeið auk þess sem hann hefur gegnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélög og opinbera aðila. „Við erum afar ánægð með að fá Pétur til starfa í Grindavík. Fram undan eru stór og mikilvæg verkefni við áframhaldandi endurreisn samfélagsins og við teljum að reynsla hans, þekking og leiðtogahæfni muni nýtast sveitarfélaginu afar vel,“ er haft eftir Ásrúnu Helgu Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur. Pétur var einn af 23 sem sóttust eftir því að feta í fótspor Fannars Jónassonar, fyrrverandi bæjarstjóra Grindavíkur. Í tilkynningunni er tekið fram að við valið hafi verið lögð áhersla á leiðtogahæfni, farsæla stjórnunarreynslu og getu til að leiða endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur. „Það er mér mikill heiður að taka að mér að verða bæjarstjóri Grindvíkinga, nær og fjær,“ er haft eftir Pétri. „Markmiðið er tvíþætt, að tryggja markvissa uppbyggingu Grindavíkur og vinna Grindavík til baka og meira til. Ég kem til starfa með metnað til að vinna að hagsmunum Grindvíkinga og tala þeirra máli.“
Grindavík Vistaskipti Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Sjá meira