Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 2. júlí 2026 07:33 Dæmin sem Ingólfur Sverrisson kaus að taka í grein á Vísi nýverið um meint erlent réttlæti og innlent ranglæti til þess að reyna að rökstyðja inngöngu Íslands í Evrópusambandið voru afar áhugaverð. Fyrsta dæmið var Jón Hreggviðsson sem Íslandsklukka Halldórs Laxness fjallar um og gefið var að sök að hafa orðið embættismanni Danakonungs að bana. Saga hans gerðist einkum á 17. öld þegar Ísland var ekki aðeins hluti af Danmörku heldur konungurinn einvaldur. Dómsvaldið hér á landi, sem Jón barðist við, heyrði þannig undir hið danska yfirvald landsins. Enda var Jón til að mynda sendur til Danmerkur til afplánunar. Dæmi tvö var dómur Mannréttindadómstóls Evrópu á níunda áratug síðustu aldar um að það færi gegn mannréttindasáttmála álfunnar að sami embættismaður færi bæði með ákæru- og dómsvald. Nokkuð sem Ingólfur sagði hafa átt sér stað „fyrir nokkrum árum“. Það getur sjálfsagt verið teygjanlegt orðalag fyrir einhverjum. Hins vegar heyrir Mannréttindadómstóllinn ekki undir Evrópusambandið heldur Evrópuráðið sem Ísland á aðild að ásamt nær öllum ríkjum Evrópu og hefur ekkert með sambandið að gera. Mjög langur vegur er vitanlega frá því að allt sem kemur erlendis frá sér sjálfkrafa af hinu góða. Dæmi þrjú var Icesave-málið. Þar benti Ingólfur réttilega á að Ísland hefði að lokum verið sýknað í því af EFTA-dómstólnum. Enda voru lögin okkar megin. Hins vegar minntist hann ekkert á það að Evrópusambandið lagði ríka áherzlu á að málið færi ekki fyrir dómstóla. Hvað þá að sambandið veitti brezkum og hollenzkum stjórnvöldum „óhaggandi stuðning“ gegn Íslandi þrátt fyrir „efnahagslega eyðileggingu“ landsins eins og segir í nýlegri rannsóknargrein Eiríks Bergmanns Einarssonar, prófessors í stjórnmálafræði, um málið. Stefndi Evrópusambandið sér að lokum inn í málið fyrir EFTA-dómstólnum gegn Íslandi. Hins vegar hefði dómstóll Evrópusambandsins að öllum líkindum dæmt á annan veg eins og Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins hefur fjallað um. Það er að segja Íslandi í óhag. Það vildi hins vegar svo heppilega til að dómstóll sambandsins hafði ekki dæmt í hliðstæðu máli þegar Icesave-málið fór fyrir EFTA-dómstólinn og fyrir vikið var sá síðarnefndi ekki bundinn af fordæmi hins fyrrnefnda sem annars hefði verið raunin. Með öðrum orðum var ekkert réttlæti í boði af hálfu Evrópusambandsins í Icesave-málinu. Þvert á móti reyndi sambandið að koma í veg fyrir að Ísland nyti réttlætis Við Íslendingar unnum sigur í Icesave-málinu í krafti fullveldisins rétt eins og í þorskastríðunum áður og fleiri hagsmunamálum þjóðarinnar í gegnum tíðina, stórum og smáum. Vegna þess að við höfðum valdið hér innanlands til þess að taka ákvarðanir í samræmi við hagsmuni lands og þjóðar. Fyrir vikið þurftum við ekki að ósekju að axla ábyrgð á skuldum einkabanka líkt og raunin varð í Grikklandi og á Írlandi sem bæði eru innan Evrópusambandsins. Innan sambandsins hefði raunin orðið önnur sem fyrr segir þar sem valdið hefði ekki lengur verið í okkar höndum og vægi okkar færi einkum eftir íbúafjölda landsins. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar