Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar 1. júlí 2026 21:33 Í umræðunni, hvort skynsamlegt sé að vísa til þjóðarinnar spurningunni um að ljúka viðræðum við ESB um hugsanlega aðild, er ýmsu haldið fram sem kitlað hefur hláturstaugarnar duglega. Þegar andstæðingar þessarar lýðræðislegu ákvörðunar staglast sífellt á því að mikið skorti á að allar upplýsingar liggi fyrir til að raunhæft sé að landsmenn geti tekið afstöðu til þess eins að halda áfram, er á sama tíma fullyrt að allt liggi ljóst fyrir þeim sjálfum eins og stafur á bók hvað myndi standa í væntanlegum samningi um inngöngu. Þess vegna óþarfi að láta reyna á það. Bara spyrja þá sjálfa. Þar verði allt af okkur tekið: auðlindir, jarðir, fiskimiðin, fjármunir og frelsið sjálft. Á þessu hafi forvitringarnir þegar áttað sig enda þótt þeir hafi aldrei bent á dæmi þess að ESB hafi beitt aðildarríki slíkum fautaskap, aldrei. Þess í stað einbeita andstæðingar viðræðna sér að þeim tvískinnungi að fá annars vegar ekki nægar upplýsingar frá íslenskum yfirvöldum en vita hins vegar sjálfir allt um samning sem enginn hefur séð! Fullyrða að það sem muni standa í honum verði hvorki landi eða þjóð til farsældar án þess að rökstyðja það með nokkrum hætti. Þetta er stundum kallað að tala tungum tveim. Svo er þrástagast á því að við séum bara með 5% vægi ef við göngum endanlega inn í ESB og áhrifalaus. Þess vegna er ekkert vit að berjast fyrir málstað þjóðarinnar þó hann skipti okkur miklu máli; þegja þess í stað og láta lítið fyrir okkur fara frammi á gangi í skjóli EES-samningsins enda þögnin okkar sterkasta vopn! Geta slík og þvílík viðbrögð orðið öllu snautlegri fyrir þjóð sem vill kalla sig fullvalda? Sem betur fer var þessi hugsunarháttur ekki uppi meðal leiðtoga þjóðarinnar þegar ákveðið var að ríða á vaðið og krefjast fullrar lögsögu á hafsvæðinu kringum landið. Vitað var að öll stærstu lönd meginlandsins myndu mótmæla útfærslu landhelginnar harðlega enda óttuðust þau að þeim yrði vísað frá gjöfulum veiðimiðum hér í framhaldi af því. Íslendingar létu þau viðbrögð sér í léttu rúmi liggja en þöndu út brjóstkassann, hófust handa við að afla fylgis við útfærsluna og höfðu loks fullan sigur. Datt aldrei í hug að smækka sjálfa sig í einhver 5% eða biðjast afsökunar á tilveru sinni og kröfum sem settar voru fram á alþjóðavettvangi. Þessi sigur hefði aldrei unnist ef hugsunarháttur nei-sinna um þessar mundir hefði ráðið för. Nú er afrakstur þessarar baráttu grunnurinn að alþjóðasamþykktum um hafréttarmál og sýnir gjörla hvað lítil þjóð getur gert ef hún undirbýr málflutning sinn vel og fylgir eftir af ákveðni og festu. Hin afstaðan, að vilja ekkert gera, hanga frammi á gangi og tala ýmist um að það vanti upplýsingar eða að þau viti sjálf væntanlegar niðurstöður upp á tíu er tæpast boðlegur málfutningur. Minnir miklu frekar á orð séra Jóns á Bægisá sem sagði: „Eitt rekur sig á annars horn, eins og graðpening hendir vorn.” Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar