Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Lovísa Arnardóttir skrifar 1. júlí 2026 16:58 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. Vísir/ÍVar Fannar Dómsmálaráðuneytið hefur skrifað undir samning við Alþjóðafólksflutningastofnunina, IOM, um framkvæmd DNA-sýnatöku og aðstoð við afhendingu ferðaskilríkja vegna mála sem tengjast fjölskyldusameiningu hér á landi.
Heildarkostnaður nemur um 505 þúsund evrum eða 72,7 milljónum íslenskra króna. Samningurinn gildir til 31. desember 2028. Fjármögnun samningsins er tryggð samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins og ónotað fjármagn verður endurgreitt til ráðuneytisins. Útlendingastofnun verður aðaltengiliður við IOM og leggur fram beiðnir um vinnslu einstakra mála samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins um málið. Verði hægt að ganga úr skugga um tengsl „Íslensk stjórnvöld hafa hingað til ekki látið framkvæma DNA-rannsókn til að staðfesta fjölskyldutengsl áður en dvalarleyfi er veitt á grundvelli fjölskyldusameiningar. Með samningnum verður hægt að ganga úr skugga um að þau fjölskyldutengsl sem umsókn byggist á séu raunveruleg og við færum okkur nær þeirri framkvæmd sem tíðkast á Norðurlöndunum,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar kemur einnig fram að að mati ráðuneytisins skipti miklu máli að samningurinn sé í höfn því Ísland hafi takmarkað fyrirsvar erlendis. Með samningnum verði hægt að tryggja nauðsynlega þjónustu fyrir þau sem sækja um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar frá löndum þar sem hvorki er íslenskt sendiráð né ræðisskrifstofa. Starfsfólk Útlendingastofnunar verður tengiliðir við starfsfólk IOM. Vísir/Vilhelm Í tilkynningu kemur fram að það hafi, til að mynda, verið flókið að taka DNA-sýni. Slíkt geti þó verið nauðsynlegt þegar umsækjendur koma frá ríkjum þar sem opinber gögn eru talin óáreiðanleg, fölsun gagna algeng eða skráningu í manntal ábótavant. Í þeim tilvikum hafi Útlendingastofnun veitt fólki dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar með þeim fyrirvara að DNA-rannsókn fari fram eftir komuna til Íslands. Börnin ekki líffræðilega skyld meintu foreldri Á undanförnum árum hafi svo komið upp nokkur mál þar sem DNA-rannsókn á barni eftir komuna til landsins hafi leitt í ljós að barnið hafi ekki verið líffræðilega skylt meintu foreldri. Í tilkynningu segir að þetta kalli á flókna málsmeðferð. Erfitt hafi reynst að staðfesta fjölskyldutengsl í upprunaríki og stjórnvöld þurft að meta hvað sé barninu fyrir bestu og tryggja því viðeigandi umsjá hér á landi. Í þessum löndum hafi einnig verið erfitt að afhenda fólki sem hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar bráðabirgðaferðaskilríki eða vegabréfsáritanir. Fólkið hafi því ekki getað ferðast með lögmætum hætti til Íslands þrátt fyrir að uppfylla önnur skilyrði.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hælisleitendur Innflytjendamál Flóttafólk á Íslandi Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira