„Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 30. júní 2026 18:53 Hanna Katrín var ekki hrifin af hegðun starfsmanna Hvals hf. Samsett Atvinnuvegaráðherra gagnrýnir harðlega hegðun starfsmanna Hvals hf. sem sveifluðu getnaðarlim hvals og biður þá um „að haga sér eins og fullorðið fólk“. Slíkur fíflaskapur sé ekki gerður með orðspor þjóðarinnar á erlendri grundu í huga.
Tíundi hvalur vertíðarinnar var dreginn að landi fyrr í morgun á hvalveiðistöðinni í Hvalfirði. Á meðan hvalurinn var dreginn var þjóðsöngur Íslands spilaður, hrópaði einn „áfram Ísland“ og tók annar starfsmaður sig til og sveiflaði getnaðarlim hvalsins að tökumanni fréttastofunnar. Þá stillti hann sér upp og lét taka mynd af sér á meðan hann hélt á getnaðarlimnum. Einn stillti sér upp á mynd.Vísir/Vilhelm Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra gaf lítið fyrir hegðunina. „Nýtingin á þjóðsöngnum við þessar aðstæður er auðvitað óviðeigandi, ég held ég geti sagt það. En heilt yfir virðist þetta vera komið út í tóma vitleysu,“ sagði hún í viðtali við Tómas Arnar Þorláksson, fréttamann Sýnar. „Við þurfum auðvitað að bera virðingu fyrir aðalatriðum oss, það er dýravelferðin og svo eru það viðskiptahagsmunir okkar á alþjóðagrundu. Ég get fullyrt það að þessi fíflaskapur sem átti sér stað á höfninni í Hvalfirði í dag var sannarlega ekki gerður með þá hagsmuni í huga né orðspor okkar á erlendri grundu.“ Virðingarleysi Ferðaþjónustan, ein stærsta atvinnugrein landsins, sé undir en Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt hvalveiðarnar og nemi ferðamenn þaðan um þrjátíu prósentum allra ferðamanna hér á landi. „Líka með þá staðreynd að hvalaskoðun er ein vinsælasta afþreyingin hér á landi. Þannig að grunnstefið í þessari hegðun er fullkomið virðingarleysi. Það er virðingarleysi gagnvart dýrinu, virðingarleysi fyrir því hvernig við nýtum sjávarauðlindirnar okkar og virðingarleysi gagnvart stóru atvinnugreininum okkar sem að sannarlega skipta máli fyrir samfélagið okkar.“ Forsvarsmenn atvinnugreinanna þurfi nú að ráðast í umfangsmikla skaðaminnkun. „Það er ekkert launungarmál, við höfum byggt upp þessa mikilvægu atvinnugrein, sjávarútveginn, á því hvernig við umgöngumst sjávarauðlindirnar, af virðingu fyrir þessum dýrum sem við erum að veiða. Virðingarleysið sem birtist í dag er allt annað en við viljum vera þekkt fyrir.“ Klippa: Megi líta í eigin barm Hanna Katrín telur að full ástæða sé fyrir eftirlitsstofnanir að skoða aðbúnað hvalveiða. „Við erum auðvitað í grunninn matvælaframleiðsluland, við erum útflutningsdrifið hagkerfi. Þetta skiptir okkur máli, þetta er ekki einkamál einhverra vel stæðra einstaklinga sem leika sér að því að koma svona fram. Þetta er miklu stærra mál en það, hvernig sem á það er litið,“ segir hún. Báðar hliðar megi líta í eigin barm „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk,“ sagði Hanna Katrín aðspurð um hvort hún vildi koma einhverjum skilaboðum áleiðis til starfsmannanna. Hún tekur þó undir að bæði starfsmennirnir en einnig Paul Watson og félagar þurfi að líta í eigin barm. Það sé alvarlegt mál þegar sjómönnum sem starfa við hvalveiðar sé hótað lífláti. „Það liggur alveg fyrir að við munum gæta velferðar, heilsu og lífs íslenskra sjómanna með öllum ráðum sem eru tiltæk og auðvitað er það ólíðandi að aðgeðrarsinnar geri sér leik að því að hóta fólki sem er að stunda sína atvinnu hér. Það er hin hliðin á þessu. Paul Watson og hans fólk má alveg heyra undir þann hóp sem ég hvet til þess að haga sér eins og fullorðið fólk, eins og siðmenntað fólk.“ Paul Watson er nú um borð í skipinu Bandero, innan efnahagslögsögu Íslendinga, auk hóps fólks sem hefur það að markmiði að stöðva hvalveiðar á Íslandi. Leiðangursstjóri aðgerðarinnar, sem nefnist Aðgerð 86, sagði í viðtali í Reykjavík síðdegis í gær að markmið þeirra væri að sökkva hvalveiðiskipunum tveimur, bókstaflega eða táknrænt. Landhelgisgæslan fylgist með hreyfingum Bandero en hefur ekki heimild til að vísa þeim frá landi þar sem skipið er ekki staðsett innan landhelgi Íslands. Hins vegar, fari skipverjar að ógna öðrum innan lögsögunnar, hefur Landhelgisgæslan heimild til að skerast í leikinn.
Hvalir Hvalveiðar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Sjá meira