Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2026 14:32 Enzo Maresca er nýr knattspyrnustjóri Manchester City en bæði City og hann þurftu að greiða Chelsea bætur. Manchester City Enzo Maresca var í dag kynntur sem nýr knattspyrnustjóri Manchester City. Þetta staðfestir félagið sjálft á samfélagsmiðlum. Hann hefur skrifað undir samning sem gildir til sumarsins 2029.
Fyrrverandi stjóri Chelsea mun koma í stað Pep Guardiola en í janúar lauk tíma Maresca á Stamford Bridge eftir stormasamt tímabil. Hann átti þrjú og hálft ár eftir af samningi sínum. Chelsea hefur nú birt sína útgáfu af því sem gerðist í nýlegri fréttatilkynningu: „Það varð okkur ljóst að hann hafði sterka löngun til að taka við af Guardiola og að hann var fullkomlega staðráðinn í því að elta þetta tækifæri, þrátt fyrir að vera með langtímasamning sem hann hafði ekki rétt á að segja upp, segir í yfirlýsingu Chelsea. „Okkur fannst við eðlilega svikin, þar sem við upplifðum að bæði hugur hans og hjarta væru einbeitt að öðru félagi og öðru tækifæri, þrátt fyrir að hann hefði nýlega komið til Chelsea árið áður,“ segir þar enn fremur. „Ekkert knattspyrnufélag vill skipta um aðalþjálfara um mitt keppnistímabil. Í ljósi ákvörðunar hans um að sinna ekki skyldum sínum út tímabilið átti félagið hins vegar engra annarra kosta völ en að vernda leikmenn okkar, stuðningsfólk okkar og merki félagsins og samþykkja uppsögn hans,“ segir í yfirlýsingunni og þar kemur einnig fram að Manchester City borgi Chelsea bætur. „Að teknu tilliti til aðstæðna og gagnkvæmrar virðingar milli félaganna hefur verið gert trúnaðarsamkomulag við Manchester City sem felur í sér greiðslu bóta. Einnig hefur verið gert trúnaðarsamkomulag við fyrrverandi aðalþjálfara þar sem hann mun greiða bætur,“ segir í yfirlýsingunni. Maresca hefur einnig beðið sitt gamla félag afsökunar. „Ég geri mér grein fyrir því að brottför mín frá Chelsea um mitt tímabil olli óróa hjá félaginu og ég biðst afsökunar á því. Það var hvorki ætlun mín né ósk,“ skrifar Ítalinn í yfirlýsingu.
Enski boltinn Manchester City Chelsea FC Mest lesið „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Íslenski boltinn Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Fótbolti Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Fótbolti Haukar komnir upp í Lengjudeildina Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Íslenski boltinn Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Íslenski boltinn