Vex Ísland í eina átt? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 23. júní 2026 07:32 Ein helsta skýringin á vexti höfuðborgarsvæðisins er sú að þar hefur stærstur hluti ríkisvalds, stjórnsýslu og opinberrar þjónustu safnast saman. Alþingi, ráðuneytin, stærstu ríkisstofnanirnar og meirihluti opinberra starfa eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Þegar ákvarðanir eru teknar um ný verkefni eða stofnanir hefur niðurstaðan oft verið sú að þær verði einnig staðsettar þar. Ákvarðanir á einum stað Þetta hefur skapað ákveðna keðjuverkun. Opinber störf laða að sér fólk, fjölskyldur, fyrirtæki og þjónustu. Fjölgun íbúa leiðir síðan til frekari uppbyggingar og fleiri starfa. Á sama tíma hefur víða í landsbyggðunum reynst erfiðara að halda í eða fjölga störfum. Þau sem taka flestar ákvarðanir um skipulag samfélagsins, fjárveitingar og opinbera þjónustu búa sjálf á höfuðborgarsvæðinu. Þau upplifa því daglega þær þarfir og áskoranir sem þar eru fyrir hendi en hafa síður beina reynslu af aðstæðum í dreifðari byggðum eðli málsins samkvæmt. Gæti það haft áhrif á forgangsröðun verkefna og fjárfestinga? Auðvelt á einum stað Miðstýring hefur þróast með einföldum hagkvæmni sjónarmiðum. Með því að hafa stjórnsýslu, sérfræðinga og stofnanir nálægt hvert öðru er auðveldara að samræma starfsemi, draga úr kostnaði og tryggja skilvirkari þjónustu. Gefið að öll eða sem felst búi á einum og sama staðnum. Fólk á einum stað Vandamálið snýst ekki aðeins um hvar fólk býr heldur einnig um hvar vald, áhrif og opinber störf eru staðsett. Tvennt; til að styrkja landsbyggðirnar þarf að dreifa ríkisstörfum og opinberum störfum mun betur um landið og setja aukna áherslu á atvinnusköpun og bættar samgöngur. Samþjöppun á einn stað Er samþjöppun valds og þjónustu eðlileg og sjálfsögð og er hún svo mikil að hún veikir möguleika annarra landshluta til að vaxa og dafna? Ímyndum okkur Ísland sem stórt tré. Höfuðborgarsvæðið er stofninn þar sem mestur kraftur og vöxtur hefur safnast saman. Upp úr stofninum liggja greinar um allt land. Ræturnar eru auðlindir sem næra tréð og halda því á lífi. Ef allur áburður, orka, vatn og sólarljós beinast að stofninum styrkist hann. Fái greinarnar sífellt minna af næringu veikjast þær smám saman og brotna. Við höggvum ekki stofninn niður til að grisja. Hann er nauðsynlegur. En verður hann enn sterkari ef við nærum greinarnar. Þegar greinarnar vaxa styrkist tréð í heild sinni. Eða skiptir þetta kannski engu máli og öll sátt við stöðu mála í byggðaþróun á Íslandi? Höfundur er kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rekstur hins opinbera Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Byggðamál Stjórnsýsla Hjálmar Bogi Hafliðason Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar