Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Atli Ísleifsson skrifar 15. júní 2026 13:18 Sigurjón Rúnar Vikarsson og Þórmundur Bergsson. BIG Sigurjón Rúnar Vikarsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra birtingahússins Mediacom á Íslandi.
Í tilkynningu segir að fyrirtækið hafi um árabil verið í samstarfi við stærsta birtingafyrirtæki heims, EssenceMediacom, sem nú sé hluti af WPP Media og starfi í yfir 80 löndum. „Sigurjón tekur við starfinu af Þórmundi Bergssyni, sem verið framkvæmdastjóri félagsins frá stofnun. Þórmundur, sem er í dag 67 ára, hefur starfað lengur en flestir aðrir á sviði auglýsingabirtinga á Íslandi eða í tæp 40 ár. Hann og Mediacom hafa getið sér gott orð en fyrirtækið þjónar fjölda innlendra og erlendra viðskiptavina. Þórmundur færist nú í starf ráðgjafa hjá fyrirtækinu,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Þórmundi að það sé ánægjuefni að geta afhent ævistarfið í hendur yngra fólks sem hafi sömu ástríðu og hann sjálfur. „Sigurjón hefur nú þegar komið inn með fjölda nýrra hugmynda um hvernig við getum þjónað viðskiptavinum Mediacom enn betur en áður og ég hlakka til að vinna með honum áfram.“ Sigurjón Rúnar Vikarsson, nýr framkvæmdastjóri Mediacom á Íslandi, er 34 ára og starfaði áður sem rekstrarstjóri Hopp. Þar áður starfaði hann meðal annars við viðskiptaþróun, hugbúnaðarþróun og markaðsmál hjá Nova. Sigurjón er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Þá hefur hann sótt stjórnendanámskeið hjá IESE.
Auglýsinga- og markaðsmál Vistaskipti Mest lesið Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Sjá meira