„Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sigurgeir Þorkelsson skrifar 20. ágúst 2026 20:29 Bogi Nils gat ekki fullyrt að starfað yrði samkvæmt íslenskum kjarasamningum í leiguflugum félagsins komi til þess að þau verði gerð út á maltnesku flugrekstrarleyfi. Samsett „Það á eftir að koma í ljós,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, aðspurður um hvort íslenskar áhafnir muni manna vélar dótturfélags sem fyrirtækið hyggst koma á fót undir erlendu flugrekstrarleyfi. Fyrr í dag var greint frá kaupum Icelandair á 49 prósenta hlut í FlyPlay Europe sem býr yfir maltnesku flugrekstrarleyfi sem Icelandair ásælist. Bogi segir skrefið styrkja starfsemi Icelandair á Íslandi.
Kaupin vöktu á sínum tíma óöryggi meðal starfsfólks og voru síst til þess fallin að láta kjaraviðræður við f-stéttirnar svokölluðu – flugmenn, flugfreyjur og flugvirkja – ganga betur en samningar þeirra höfðu þá verið lausir mánuðum saman. Eftir létta pústra milli flugmanna og Icelandair þar sem meira en tuttugu brottfarir frá Íslandi voru felldar niður setti ríkissáttasemjari upp verkáætlun fyrir viðræðurnar, sem standa myndu út sumarið. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, sagði á föstudaginn síðastliðinn að ágætis gangur væri í viðræðum en að best væri að vera ekki með stórar yfirlýsingar á þessum tímapunkti. Ekkert hefur frést af viðræðum stéttarfélaga flugfreyja og flugvirkja síðustu mánuði. Mögulega ætla þau félög að leyfa flugmönnum að ríða á vaðið og kíkja í pakkann, ef svo má að orði komast. „Það þarf að fara yfir það þegar nær dregur,“ sagði Bogi Nils þegar Smári Jökull fréttamaður spurði forstjórann út í hvort að það að manna vélar dótturfélags Icelandair með erlendum flugmönnum bryti ekki gegn svokölluðu forgangsákvæði í kjarasamningi flugmanna. Ákvæðið segir til um að félagsmenn FÍA eigi forgang í að manna flug á vegum Icelandair. Kaupin auki hagræði og sveigjanleika Í tilkynningu frá Icelandair um kaupin á hlutnum kom fram að félagið myndi með kaupunum öðlast aðgang að viðbótarflugrekstrarleyfi innan Evrópu. Sagt var að kaupin ykju sveigjanleika og hagræði í rekstri félagsins, styddu við áframhaldandi uppbyggingu og sköpuðu ný viðskiptatækifæri. Félagið hefur greint frá því að síðustu Boeing 757-vélar félagsins muni yfirgefa flotann á næstu mánuðum. Flugvélategundin er komin til ára sinna og hefur Icelandair síðustu ár hægt og rólega skipt henni út fyrir nýrri og sparneytnari vélar. Til stendur að þær 757-vélar sem eftir eru færist yfir til leiguflugsarms Icelandair-samstæðunnar, Loftleiða. Vélarnar verði færðar yfir á maltneska flugrekstrarleyfið þaðan sem þær geti bæði verið leigðar áfram til annarra flugfélaga og sinnt leiguflugi á vegum Icelandair. Bogi Nils segir að eftir verði yfir tuttugu Boeing 737 MAX-vélar og að hinar nýju Airbus A321-vélar félagsins verði brátt orðnar fjórtán talsins. Bogi segir að kaupin á hlutnum í FlyPlay Europe muni auka hagræði í rekstri Icelandair og gera félaginu kleift að einblína betur á rekstur félagsins hér á Íslandi. Kaupin breyti því ekki að flugrekstur félagsins verði áfram fyrst og fremst gerður frá Íslandi. Ekki er um að ræða stóra fjárfestingu fyrir félag sem veltir tugmilljörðum en kaupin hljóða upp á 686 þúsund bandaríkjadali, eða um 84 milljónir íslenskar. Fyrir það eignast Icelandair 49 prósenta hlut í maltneska félaginu en heimild er í samkomulaginu til að auka við hann síðar meir. Kaupin eru háð samþykki maltneskra yfirvalda. Keflavík áfram heimahöfn Icelandair „Við erum með mun meiri árstíðasveiflu heldur en flest önnur flugfélög sem við erum að keppa við en minni sveigjanleika til að bregðast við því,“ segir Bogi Nils. Stjórnendur félagsins hafa í gegnum tíðina verið gagnrýnir á sterka kjarasamninga flugmanna og flugfreyja og sagt þá vinna gegn sveigjanleika í rekstri. Bogi Nils segir að mögulegt verði að bregðast betur við árstíðasveiflunni með því að færa vélar þangað yfir vetrartímabilið. „Það er framtíðarstefnan okkar hvað þetta varðar en allt snýr þetta að því að styrkja starfsemina hér á Íslandi,“ sagði Bogi Nils í kvöldfréttum okkar.
Icelandair Play Flug Keflavíkurflugvöllur Gjaldþrot Play Efnahagsmál Ferðaþjónusta Kjaramál Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira