Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Sigurgeir Þorkelsson skrifar 13. júní 2026 07:55 Áttatíu prósent af öldrun húðarinnar er til komin vegna sólarljóss, segir Dr. Elísabet. Vísir/Getty Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta ráðið til að verða brúnn skjótt án þess að skaða húðina.
Elísabet segir að oft þegar talað sé um sólarvarnir sé einungis talað um krem eða áburð en sólarvörn geti líka verið fatnaður, sólgleraugu eða einfaldlega að vera í skugganum. „Það að vera í skugganum er þó ekki nóg,“ segir Elísabet, sem var til viðtals í Reykjavík síðdegis. Sólin sé mikilvæg fyrir gleði og andlega heilsu. „En hún þarf ekki að grilla á okkur húðina. Við eigum að vernda hana," segir Elísabet og minnir á mikilvægi sólarvarna gegn skaðlegum útfjólubláum geislum sem berast til okkar með sólarljósi. Sólarvörn verndar gegn útfjólubláum geislum Útfjólubláum geislum má skipta í A- og B-geisla (UVA og UVB). A-geislar fara djúpt inn í húðina, geta borist gegnum gler og rúður, valda öldrun húðar og geta valdið húðkrabbameini. B-geislar eru hins vegar orkumeiri en fara ekki jafn djúpt í húðina. Þeir hraða öldrun húðar, skemma DNA í húðfrumum og geta þannig valdið húðkrabbameini. SPF-stuðull í sólarvörnum segir til um hve vel hún ver okkur gegn B-geislum en Elísabet segir það ekki nóg. Fólk þurfi einnig að horfa til þess hvort vörnin verji gegn A-geislum og sé merkt með UVA-vernd. „SPF gildir bara um B-geislana og það eru þeir sem brenna húðina en sólarvörnin þarf alltaf að vera merkt UVA líka til að vernda okkur gegn öllu rófi útfjólublárra geisla.“ Fölsk vörn geti falist í að vernda sig aðeins fyrir B-geislunum þar sem húðin sem enginn sýnilegur sólbruni komi þá fram. Skaðinn sem sólarljósið sé að valda húðinni sé þá ekki jafn sýnilegur og húðin sé enn óvarin fyrir A-geislunum. „Ef þú ert til dæmis að vernda þig með mjög háum SPF-stuðli en það er léleg A-vörn í sólarvarnarkreminu geturðu verið að valda meiri skaða á húðinni meðan þú brennur ekki.“ Þá séu það líka B-geislarnir sem myndi brúnku sem sé náttúruleg vernd húðarinnar gegn sólarljósi. „Þó svo að B-geislarnir sem brenna húðina skaði hana þá vernda þeir hana líka því þeir auka myndun verndandi efnis. Brúnkan er í raun það sem er að vernda okkur. En A-geislarnir framleiða enga nýja brúnku.“ Sólin er góð fyrir andlega heilsu en það á ekki að grilla sig, segir Elísabet.Getty Gerir skjólstæðinga hissa þegar hún ræðir sólarvörn Sólarvörnin þarf því að hafa háan SPF-stuðul, fimmtíu eða hærri, og innihalda UVA-vörn. Næsta sem Elísabet bendir á er mikilvægt er að vera á sig af þykkt lag af kreminu. „Það sem fólk klikkar oft á er að nota allt of þunnt og lítið og ég hef verið að reyna að kenna mínum skjólstæðingum að þú átt að ímynda þér að þú sért að búa til föt á þig. Fólk verður oft hvítt en svo þornar það inn í húðina á svona korter tuttugu mínútum. Þetta er ekki eins og rakakrem, þú ert ekki að bera ofan í húðina heldur ertu að bera utan á hana. Þú ert eiginlega að búa til hjúp utan um þig. Elísabet segir að þetta komi skjólstæðingum sínum alltaf á óvart. „Það eru allir alveg hissa: Bíddu, á ég að nota svona mikið?“ Segir brúnku komna í tísku Elísabet segir brúnkutísku ríkja en mikilvægt sé að hafa í huga að sólargeislar flýti öldrun húðar og auki líkur á húðkrabbameini. Húðkrabbameinum megi gróflega skipta í tvennt: annars vegar sortuæxli og hins vegar önnur húðkrabbamein. Þau séu yfirleitt aðeins hættuleg þeim sem eru með skert ónæmiskerfi. Fjöldi þeirra sem séu með skert ónæmiskerfi hafi aukist með tilkomu líftæknilyfja. „Fyrir krabbameinin sem eru ekki sortuæxli gildir bara: því fleiri tímar í sól, því meiri líkur á húðkrabbameini. Það hefur aldrei verið mikilvægara að vernda sig gegn sólinni.“ „Sólin veldur skaða á erfðaefninu í húðinni, húðin reynir að gera við skaðann en er kannski ekki fullkomin í því og þá getur myndast húðkrabbamein.“ Þá þurfi fólk líka að átta sig á því að sólarljós flýti öldrun húðarinnar. „Eitthvað sem margir vita ekki er að áttatíu prósent af öldrun húðarinnar, hrukkur og svona, er tengd sólinni.“ Það er í tísku að vera brúnn og ljósabekkjanotkun eykst meðal ungs fólks. Getty Elísabet segir að yfir sumarmánuðina þurfi að verja sig fyrir sólinni hér á Íslandi. Það gildi ekki bara þegar maður liggur í sólbaði á Tenerife. „Almenn útivera útsetur mann fyrir mikilli sól. Sumir vinna utandyra, sumir eru í útivist.“ Elísabet býður að lokum upp á einfalt ráð sem gerir fólki kleift að verða brúnt fljótt án þess að valda húðinni skaða. Besta leiðin sé brúnkukrem. „Þau eru alveg tilvalin. Það er hægt að komast upp á mjög gott lag með að nota þau og þau eru til í alls konar verðflokkum. Það gerist að fólk finni fyrir ofnæmi en þá sé bara að prófa aðra sort.“
Heilbrigðismál Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Sjá meira