Átta rauð spjöld í sama leiknum Andri Broddason skrifar 10. júní 2026 15:17 Brasilía fékk dæmt á sig átta rauð spjöld í gær gegn Bandaríkjunum í vináttulandsleik. Leandro Bernardes/PxImages/Icon Sportswire via Getty Images Brasilía tók á móti Bandaríkjunum í vináttuleik í fótbolta kvenna. Dómari leiksins hafði nóg að gera þar sem lið Brasilíu fékk á sig átta rauð spjöld.
Bandaríska landsliðið vann leikinn eftir að Sophia Wilson framherji Bandaríkjanna skaut í varnarmann Brasilíu og þaðan í markið. Þetta var eina mark leiksins og endaði hann 1-0. Brasilíska landsliðið var hins vegar allt annað en sátt við dómara leiksins. Þjálfari brasilíska landsliðisins fékk að líta rauða spjaldið undir lok seinni hálfleiks ásamt þremur öðrum úr starfsliði Brasilíu. Það var aðeins byrjunin á ótrúlegum lokamínútum leiksins. Tarciane, varnarmaður Brasilíu, fékk beint rautt spjald í uppbótartíma eftir að hafa gefið Wilson olnbogaskot í andlitið. Aðeins fimm mínútum seinna fékk Bia Zaneratto, framherji Brasilíu, sitt annað gula spjald við að ýta við mótherja sínum Emily Sonnett. Bandaríska landsliðskonan ýkti hversu fast Zaneratto ýtti í hana og skiljanlega voru liðsfélagar Zaneratto pirraðar yfir því að hún hafi verið rekin út af. Brazil was issued two red cards in added time, including one for an apparent elbow on Sophia Wilson 😳 pic.twitter.com/nSW2J4jEDj— TNT Sports U.S. (@TNTSportsUS) June 10, 2026 Stuttu eftir flautaði dómari leiksins til leiksloka en þá hópuðust brasilísku leikmennirnir að henni. Kerolin varð heitt í hamsi í umræðum við dómara og fékk að líta rauðaspjaldið eftir leik. Þegar það gerðist klappaði Ludmila kaldhæðnislega að dómara og fékk einnig rautt spjald. Hitinn hjá Brasilíu var orðinn gríðarlegur og þurfti óeirðalögregla að hlaupa inn á völlinn með skildi til að verja dómara leiksins. Emma Hayes, þjálfari bandaríska landsliðsins, sagðist aldrei áður hafa upplifað leik þar sem annað liðið fékk átta rauð spjöld. Þessi leikur mun því vera eftirminnilegur. CENAS LAMENTÁVEIS, final de jogo dramático, confusões e expulsões marcaram a partida! 👀Estados Unidos vencem com gol contra! 🇧🇷 0 x 1 🇺🇸#FutebolNaGlobo #AmistosoDaSeleçãoFeminina #AmistosoDaSeleçãoFemininaNaGlobo pic.twitter.com/ALWvDdzx7g— TV Globo 📺 (@tvglobo) June 10, 2026
HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Fleiri fréttir Systraþrenna og Ísland er skrefi nær HM: „Ég var smá stressuð“ Leik lokið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Njarðvík - Tindastóll | Gestirnir koma heitir frá Evrópu Ronaldo í bann hjá Portúgal Systurnar saman í byrjunarliði Íslands „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Sjá meira