Gunnlaugur Árni í bráðabana um laust sæti á U.S. Open Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2026 22:57 Gunnlaugur Árni Sveinsson sýndi styrk sinn með frábærri spilamennsku í dag. Getty/Tanner Pearson Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson á enn möguleika á sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í ár eftir að seinni hringurinn kláraðist. Hann er á leiðinni í fjögurra manna bráðabana um þrjú laus sæti á risamótinu.
Gunnlaugur Árni lék 36 holur í dag og þær samtals á 135 höggum eða 9 höggum undir pari. Gunnlaugur lék fyrri hringinn á 67 höggum en þann seinni á 68 höggum. Gunnlaugur Árni var um tíma í öðru sæti á seinni hringnum en varð fyrir áfalli þegar hann fékk skramba á fyrstu holu á seinni níu. Gunnlaugur byrjaði hringinn sinn á tíundu holu og það var því fyrsta hola vallarins sem reyndist honum svo skeinuhætt. Hann lék par fjögur holuna á sex höggum. Gunnlaugur datt niður töfluna en lét þetta áfall ekki buga sig heldur svaraði með tveimur fuglum í röð og þremur fuglum á næstu fjórum holum. Fyrir vikið hoppaði hann aftur upp fyrir línu og var meðal fjögurra efstu þegar þrjár holur voru eftir. Taugarnar héldu og hann paraði síðustu fjórar holurnar sem tryggði honum sæti í umspilinu. Vaughn Harber komst í hópinn með því að spila þrjár síðustu holurnar á fjórum höggum undir pari, fékk örn og svo tvo fugla. Davis Thompson var efstur og er sá eini sem er öruggur um sæti á US Open. Gunnlaugur Árni varð í öðru með þeim Sam Udovich, Harber og J.B. Holmes. Udovich fékk skolla á síðustu tveimur holunum sínum og bættist því í hópinn.
Golf Opna bandaríska Mest lesið Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Enski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Auðvitað var auka hjartsláttur“ Óliver heldur áfram að slá í gegn Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? LIV-mótaröðin í uppnámi en Rory Mcllroy ekki spenntur að fá kylfinga þaðan Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Óliver: „Mjög mikill heiður“ Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn McIlroy áhyggjufullur eftir erfiða reynslu Óliver var með funheitan pútter Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Óliver kominn í undanúrslit á sterku móti Efnilegur ástralskur kylfingur lést aðeins átján ára Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti „Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Sjá meira