Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Freyja Þórisdóttir skrifar 30. maí 2026 18:03 Norska lögreglan byrjaði að ganga út frá því að Anne-Elisabeth hafi verið myrt stuttu eftir hvarf hennar, þrátt fyrir skilaboð meintra mannræningja þess efnis að hún væri á lífi. Norska lögreglan Norskur maður á sextugsaldri hefur fengið stöðu sakbornings í máli Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018 og hefur verið skráð myrt daginn sem hún hvarf í kerfum lögreglu síðan í janúar 2020.
Maðurinn, sem er norskur ríkisborgari, neitar allri aðild að málinu samkvæmt umfjöllun norska ríkissjónvarpins (NRK) en lögreglan hefur lagt hald á muni í eigu mannsins og fær hann því sjálfkrafa stöðu sakbornings. Hann hefur nýtt sér grundvallarrétt sinn til að gefa ekki skýrslu fyrir lögreglu, segir verjandi hans, Victoria Holmen, við NRK. „Málið er rannsakað sem morð,“ segir saksóknarinn Guro Holm Hansen í samtali við NRK og bætir hún við að málið sé enn í rannsókn en að „fyrir utan haldlagninguna sjái þau enga ástæðu til frekari réttaraðgerða“. Þann níunda janúar 2019 tilkynnti lögreglan opinberlega að Anne Elisabeth Hagen hefði horfið frá heimili sínu við Sloraveien á Fjellhamar í Lørenskog tíu vikum áður. Í september 2019 staðfesti lögreglan að rannsóknin beindist einna helst að umslagi og pappírsörk sem fannst á heimilinu en meintir mannræningjar skildu eftir bréf á vettvangi þar sem þeir kröfðust milljóna í lausnargjalds í órekjanlegri rafmynt. Eiginmaðurinn grunaður um morð Hún hvarf úr húsinu einhvern tímann á milli klukkan 9:15 og 9:48 miðvikudaginn 31. október 2018, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Hún var gift milljarðamæringnum Tom Hagen og hefur hann útskýrt að hann hafi komið heim um klukkan 13:30 og tilkynnt lögreglu rúmlega hálftíma síðar. Þann 28. apríl 2020 var Tom Hagen svo handtekinn og ákærður fyrir morð eða hlutdeild í morði á Anne Elisabeth Hagen. Hann var látinn laus eftir rúmlega viku í gæsluvarðhaldi. Ákæran á hendur Tom Hagen var felld niður árið 2024 á grundvelli þess að „ekkert refsivert athæfi teljist sannað“ segir í frétt NRK. Hann var hreinsaður af sök í málinu og þar með var enginn lengur ákærður í Lørenskog-málinu, sem hefur enn sem komið er verið óupplýst, næstum átta árum eftir hvarfið.
Noregur Anne-Elisabeth Hagen Erlend sakamál Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira