Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Lovísa Arnardóttir og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 26. maí 2026 07:55 Valdimar Víðisson lætur senn af störfum sem bæjarstjóri í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins og fráfarandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir síðustu daga hafa verið krefjandi og ýmislegt hafi verið sagt sem hann taki nærri sér. Um þúsund hafa mótmælt nýjum meirihluta og að Framsókn sé ekki með í honum. Nýr meirihluti kynnir sáttmála sinn í dag. „
En allir hafa rétt á sinni skoðun og að tjá hana. Ég sjálfur hef tamið mér það að sýna öllum virðingu í orði og verki, ég er orðvar og legg áherslu á heiðarleika og einlægni. Það eru eiginleikar sem ég er stoltur af og hafa einkennt öll mín störf hvort sem það er skólastjóri, bæjarfulltrúi eða bæjarstjóri,“ segir hann í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í morgun. Gengur stoltur frá borði Þar segir hann að senn líði að því að hann láti af störfum sem bæjarstjóri og að hann gangi stoltur frá borði. „Við í Framsókn unnum afar góðan sigur í kosningunum þann 16. maí. Bættum við okkur 11% fylgi og einum bæjarfulltrúa. Framsókn mun halda áfram að vinna vel og af heilindum fyrir ykkur. Því getið þið treyst,“ segir hann og óskar nýjum meirihluta alls hins besta í þeirra störfum. Hann stefni nú á nokkurra vikna frí og sé spenntur fyrir nýjum kafla. „Ég kveð ykkur með hlýju, virðingu og bjartsýni fyrir hönd Hafnarfjarðar. Ég mun halda áfram að vera úti um allt í Hafnarfirði með ykkur Hafnfirðingum enda hvergi betra að vera.“ Viðburðarríkir dagar Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í bænum og til stendur að kynna meirihlutasáttmála flokkanna á félagsfundum þeirra í dag. Í kjölfarið hyggjast oddvitar undirrita sáttmálann og kynna efni hans á blaðamannafundi í Hamranesi. Meirihlutaviðræður í sveitarfélaginu hafa verið viðburðarríkar en fyrst stóð til að endurnýja samstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem mynduðu meirihluta á síðustu tveimur kjörtímabilum. Þær viðræður fóru svo fljótt út um þúfur þar sem Valdimar Víðisson bæjarstjóri og oddviti Framsóknarmanna var sakaður um trúnaðarbrest. Í framhaldinu hittust fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar og náðu þau fljótlega samkomulagi sem kynnt verður formlega síðar í dag. Þúsund mótmæla Rúmlega þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftarlista gegn nýju meirihlutasamstarfi. Rúm 30 þúsund búa í bænum. Aðstandendur undirskriftalistans benda á að Framsókn hafi verið á meðal sigurvegara kosninganna og fullyrða að fjölmargir hafi kosið sérstaklega með það að markmiði að sjá áframhaldandi samstarf núverandi meirihluta. „Rödd kjósenda á að skipta máli við myndun meirihluta og við val á bæjarstjóra. Með undirskrift okkar lýsum við yfir andstöðu við þessa niðurstöðu og stuðningi við að Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn fari áfram með meirihluta í Hafnarfirði,“segir að lokum í yfirlýsingunni við undirskriftalistann. Töluverðar breytingar urðu á fulltrúum í bæjarstjórn í kosningunum 16. maí. Samfylkingin missti tvo bæjarfulltrúa í kosningunum og bættu Framsókn og Viðreisn í stað þess við sig einum manni hvor. Miðflokkurinn fékk einnig mann inn í bæjarstjórn en Sjálfstæðisflokkurinn missti bæjarfulltrúa og fór úr fjórum í þrjá. Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin eru núna með sjö fulltrúa af ellefu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Tengdar fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Bæjarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin. 23. maí 2026 17:26 Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði segir ólíka túlkun á handabandi snurðan á þræði meirihlutaviðræðna. Hann telur þó alla vinna af heilindum og vonast til að Framsókn komist aftur að borðinu. 22. maí 2026 20:32 Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Oddvitar Sjálfstæðisflokkanna í Reykjavík, Hafnarfirði og í Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Við förum yfir helstu tíðindi úr meirihlutaviðræðum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. 22. maí 2026 18:14 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira
Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Bæjarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin. 23. maí 2026 17:26
Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði segir ólíka túlkun á handabandi snurðan á þræði meirihlutaviðræðna. Hann telur þó alla vinna af heilindum og vonast til að Framsókn komist aftur að borðinu. 22. maí 2026 20:32
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Oddvitar Sjálfstæðisflokkanna í Reykjavík, Hafnarfirði og í Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Við förum yfir helstu tíðindi úr meirihlutaviðræðum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. 22. maí 2026 18:14