Enginn kaus Bjarna eða Brynjar Gunnar Salvarsson skrifar 23. maí 2026 15:31 Hugtakið lýðræði felur í sér að lýðurinn ráði, kjósendur velji fulltrúa til setu í sveitarstjórnum eða á alþingi. Veruleikinn er annar. Lýðræðið er mjög takmarkað. Í flestum tilvikum hefur valið þegar farið fram innan stjórnmálaflokkanna áður en kjósendur mæta á kjörstað. Enginn kaus til dæmis Bjarna Guðjónsson eða Brynjar Níelsson, eða nokkra aðra sex frambjóðendur í efstu sætum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Flokkurinn hefur síðustu áratugi í sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík fengið sex til níu fulltrúa. Kjósendur flokksins velja því á kjörstað, með því að merkja við D-listann, frambjóðendurna í sætum sex til níu. Hinir eru allir sjálfkjörnir. Þeir voru valdir af kjörnefnd og samþykktir í fulltrúaráði flokksins. Þeir voru valdir í Valhöll. Ég nefni Sjálfstæðisflokkinn sérstaklega vegna þess að fastafylgi hans í Reykjavík hefur verið mjög stöðugt síðustu áratugi. Hinn stóri flokkurinn í borginni, Samfylkingin, hefur verið með óstöðugra fylgi og farið niður í þrjá borgarfulltrúa. En með sama hætti má segja að efstu tveir frambjóðendur á lista Samfylkingarinnar í nýafstöðnum kosningum hafi verið sjálfkjörnir. Kjósendur höfðu í sjálfu sér ekkert um þá að segja. Í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna í Reykjavík héldu aðeins Píratar opið prófkjör. Hjá öðrum framboðum voru listar ákveðnir af kjörnefndum, stjórnum eða fámennum hópum innan flokkanna. Þetta er veikleiki í íslensku lýðræði sem sjaldan er ræddur. Kjósendur velja flokka en flokkskerfið velur fólkið. Raunverulegt val kjósenda á einstaklingum er mun minna en almennt er talið. Styrkja persónukjör - draga úr miðstýringu flokka Ég er ekki að gera lítið úr mikilvægi stjórnmálaflokka. En veikleiki þeirra blasir við þegar æðsta vald innan flokka fær í raun úrslitavald um það hvaða kjörnir fulltrúar veljast til starfa í umboði flokks. Í því ljósi má eðlilega spyrja hvort lýðræðið sé orðið helst til óbeint. Til þess að endurræsa lýðræðið þyrfti að styrkja persónukjör og draga úr miðstýringu flokka, skapa sterkari tengingu milli kjörinna fulltrúa og hverfa eða svæða. Í stuttu máli: Opnari listar og raunverulegt persónukjör gætu fært valdið nær kjósendum sjálfum. Í mörgum öðrum löndum hafa kjósendur meiri áhrif á einstaklingana sjálfa. Í Finnlandi er persónukjör áberandi og í Sviss geta kjósendur jafnvel breytt listum verulega. Þar er tengingin milli kjósenda og kjörinna fulltrúa beinni en hér. Í minningunni voru hér áður fyrr bæjarlistar og óháð framboð mun sýnilegri í íslenskum sveitarstjórnum en þau eru í dag. Þróunin virðist vera að færast í átt að yfirráðum stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram á landsvísu. Af stærri sveitarfélögunum er L-listinn á Akureyri nánast söguleg undantekning. Ópólitískt þjónustuhlutverk sveitarstjórna Í aðdraganda kosninganna fyrr í mánuðinum hafði ég á tilfinningunni að umræðan snerist oft á tíðum minna um sveitarfélagið sjálft en meira um stöðu stjórnmálaflokka á þingi. Framboð á höfuðborgarsvæðinu voru nær öll tengd landsmálaflokkum eða skýrum pólitískum fylkingum. Umræðan litaðist af landsmálum, ríkisstjórn og stjórnarandstöðu sem rímar illa við sveitarstjórnir því þær hafa fyrst og fremst miklu ópólitísku þjónustuhlutverki að gegna. Þær reka leikskóla og grunnskóla, sinna skipulagsmálum, félags- og velferðarþjónustu, samgöngum, íþróttaaðstöðu og fjölmörgu öðru sem snertir daglegt líf fólks með beinum hætti. Þetta eru verkefni sem kalla í fæstum tilvikum á hugmyndafræðileg átök eins og þau birtast í landsmálunum. Lýðræði á ekki einungis að snúast um réttinn til að kjósa flokka. Tryggja þarf að kjósendur hafi raunverulegt val um frambjóðendur, um fólk. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar