Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. maí 2026 06:47 Indigó hefur síðustu ár flutt út íslenska listamenn til að koma fram. Hér tryllir Aron Can lýðinn. Útlit er fyrir að rúmlega eitt þúsund íslenskir framhaldsskólanemar verði á grísku eynni Krít í byrjun júní. Stórt verkefni er að koma öllum til og frá eynni og þarf að nýta leiguflug til að ferja mannskapinn.
Fimmtán framhaldsskólar munu á næstunni halda í útskriftarferðir á vegum ferðaskrifstofunnar Indigó. Þegar tvö stór holl skarast á eynni Krít verða þar 900 manns, þar á meðal nemendur úr Menntaskólanum við Sund. Þá verða þar einnig fjöldi útskriftarnema á vegum ferðaskrifstofunnar Tripical á sama tíma, þar á meðal frá Menntaskólanum í Kópavogi. Geir Zoëga er verkefnastjóri hjá Indigó.Indigó Geir Zoëga er verkefnastjóri hjá Indigó og vinnur meðal annars við að skipuleggja útskriftarferðir framhaldsskólanema. Geir segir að þrátt fyrir stærðina sé oftast hægt að koma hópum fyrir á einu og sama hótelinu. „Við reynum að nota hótel sem við höfum áður notast við, við viljum stór hótel og ákveðið umburðarlyndi,“ segir hann kankvís. Varðandi tegund ferðarinnar fullyrðir Geir að hótelin viti alveg á móti hvers konar hóp þau taka, en bætir þó við: „Það eru ekkert endilega öll hótel til í það.“ Geir segir fjöldann á þeirra vegum svipaðan og síðustu þrjú ár. „Þetta er í raun frekar hefðbundinn fjöldi, við erum ekki að sjá mikla breytingu milli ára.“ Aukin áhersla hefur síðustu ár verið lögð á heilnæma dagskrá. Hér sjást útskriftarnemar bregða á leik. Indigó Breyttar aðstæður á flugmarkaði Eitthvað sem hefur þó breyst milli ára eru aðstæður á flugmarkaði. „Vegna aðstæðna í Mið-Austurlöndum höfum við séð verð á þotueldsneyti hækka um 110 prósent frá því í lok síðasta árs. Inni í samningum um leiguflug er klausa sem leyfir flugfélögum að bregðast við svona breytingum með að hækka verð til okkar. Við höfum þó verið alveg ákveðin í að bera þá verðhækkun ekki áfram til viðskiptavina, enda er hér um að ræða hóp sem er viðkvæmur fyrir verðhækkunum.“ Þegar Geir er spurður hvað útskriftarnemar greiði fyrir þessar ferðir segir hann það í þeirra höndum hvaða pakka þeir velji og reynt sé að setja saman ferð sem hentar hverjum og einum hóp. Samkvæmt heimildum fréttastofu borga útskriftarefni frá Menntaskólanum við Sund um 350 þúsund krónur fyrir tíu daga ferð á vegum Indigó. Nemendur Menntaskólans í Kópavogi greiða á sama tíma 300 þúsund krónur fyrir ellefu daga ferð til Krítar á vegum Tripical. Útskriftarnemar gera sér glaða stund eftir þrjú ár með nefið ofan í bókunum.Indigó Foreldrar óöruggir Útskriftarferðir geta vakið óöryggi hjá foreldrum. Samkvæmt Geir er alvanalegt að foreldrar setji sig í samband við ferðaskrifstofuna. „Það er meira en sjálfsagt, en algengasta ástæðan er kannski að það sé misræmi í þeim upplýsingum sem berast frá nemanum, eða kannski skortur á upplýsingum,“ segir Geir. Aðspurður hvort Indigó sé undirbúið fyrir erfið mál og alvarlegar aðstæður sem upp geta komið segir hann að teymi þeirra á staðnum sé reynslumikið og búi að gagnlegri menntun, líkt og hjúkrunarfræði. „Það er viðmið að fjöldi fararstjóra fari aldrei undir einn fararstjóra fyrir hverja hundrað, en sem dæmi þá eru níu fararstjórar þegar við verðum með 500 manna hóp undir lok mánaðarins.“ Prúðbúinn hópur skálar fyrir útskrift. Indigó Íslenskur listamaður treður upp Ferðirnar hafa vakið athygli fyrir veglega dagskrá og hefur síðustu ár tíðkast að flytja út íslenska listamenn til að koma fram fyrir hópinn. „Já, við höfum síðustu ár hægt og rólega verið að stækka dagskrána.“ Geir segist ekki vera tilbúinn að gefa upp hvaða listamaður kemur fram í ferðum í ár, „En sem dæmi um listamenn sem hafa komið fram síðustu ár get ég nefnt Aron Can og Birni.“ Það er ljóst að suðræn stemning á vel við Aron Can, það hreinlega geislar af honum. Indigó Geir segir ferðirnar þó ekki vera tómt partýstand en sífellt meiri eftirspurn sé frá nemum eftir heilsusamlegri dagskrárliðum. „Við höfum síðustu ár lagt aukna áherslu á heilnæmari ferðir og höfum bætt inn dagskrárliðum eins og strandblaki, CrossFit-æfingum og golfi,“ segir Geir, „Í fyrra buðum við upp á tíu kílómetra morgunhlaup með Aroni Can,“ segir Geir, en bætir þó við að tímasetningin klukkan sex um morgun hafi ekki slegið í gegn. Að neðan má sjá myndband úr útskriftarferð framhaldsskólanema til Krítar á síðasta ári sem skipulögð var af ferðaskrifunni Indigó.
Ferðalög Grikkland Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Íslendingar erlendis Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira