Af hverju flytjum við fólkið, í stað þjónustunnar? Sif Huld Albertsdóttir skrifar 14. maí 2026 17:52 Fyrir rúmum tveimur vikum skrifaði ég greinina „Heilbrigðisþjónusta eftir póstnúmeri“ og birti á Visir.is þar sem ég fjallaði um ferðakostnað og álag fjölskyldna á landsbyggðinni sem þurfa að sækja sérfræðiþjónustu langt að heiman. Síðan þá hefur setið í mér önnur spurning: Hvað ef við myndum færa þjónustuna nær fólkinu í stað þess að færa fólkið endalaust að þjónustunni? Þegar kerfið tekur ekki við Ég man þegar ég var ólétt af öðrum syni mínum og var sagt að það væri ekki hægt að búa á landsbyggðinni með barn sem þarf reglulega sérfræðiþjónustu. Að kostnaðurinn og álagið væri einfaldlega of mikið. Þessi orð festust í mér. Ekki vegna þess að ég trúði þeim heldur vegna þess að ég ákvað að þau mættu ekki vera sönn. Ég bý í Ísafjarðarbæ. Hér hef ég alið upp börnin mín, öll ólík og með ólíkar þarfir og hér hef ég kynnst því af eigin raun hvað það þýðir þegar þjónustan er ekki nægilega aðgengileg fyrir þá sem þurfa lífsnauðsynlega á henni að halda. Þegar barn þarf á langtíma heilbrigðisaðstoð að halda erum við öll sammála um að hún ætti að vera auðsótt og auðfengin. Að kerfið grípi bæði barn og foreldra. Við vitum hins vegar að raunveruleikinn er sá að um leið og landsbyggðar barn þarf stuðning sem ekki fæst í heimabyggð hefst þrotlaus barátta foreldra fyrir þeim réttindum sem við erum svo sammála um að ættu að vera sjálfsögð, þá á það ekki að þýða að foreldrar taki upp stöðuga baráttu við kerfið. Það á að þýða að kerfið taki við. Undanfarin ár hafa vissulega orðið breytingar til batnaðar. Reglurnar voru endurskoðaðar þannig að niðurgreiddar ferðir vegna endurtekinna sérfræðikoma fóru úr tveimur í fjórar á ári. Það skipti máli og var mikilvægt skref í rétta átt. En vandinn var ekki leystur, þó svo það hafi dregið aðeins úr honum. Kostnaðurinn hverfur ekki Raunveruleikinn er sá að fólk á landsbyggðinni stendur enn frammi fyrir kostnaði og álagi sem aðrir þurfa sjaldan að hugsa um. Ferðirnar eru nær alltaf fleiri en kerfið gerir ráð fyrir, dagarnir sem fara í ferðalög eru margir og kostnaðurinn safnast upp. Flug, akstur, gisting, tekjutap og skipulag heimilisins verður hluti af meðferðinni sjálfri. Kostnaðurinn hverfur ekki þó hann sé ekki greiddur af kerfinu. Hann færist í heilu lagi yfir á einstaklinga og fjölskyldur sem nú þegar standa höllum fæti vegna veikinda eða langvarandi kvilla. Yfir á foreldra sem nú þegar þurfa að taka sér frí frá vinnu, börn sem missa úr skóla og fólk sem þarf að ferðast langar leiðir til að sækja þjónustu sem ætti að vera aðgengilegri. Færum þjónustuna nær fólki Ég trúi því að við gætum nýtt fjármagnið betur ef horft væri heildstætt á kerfið í stað þess að byggja það á því að fólk ferðist endalaust milli landshluta. Það hlýtur að vera hagkvæmara til lengri tíma að færa hluta þjónustunnar nær fólki, nýta fjarheilbrigðisþjónustu betur og skapa raunverulegt samstarf milli sérfræðinga á höfuðborgarsvæðinu og heilbrigðisstarfsfólks úti á landi. Við þurfum að horfa meira til þess hvernig við færum þjónustuna nær fólki í stað þess að færa fólk endalaust til þjónustunnar. Við vitum að það er hægt. Sumir sérfræðingar gætu starfað tímabundið úti á landi, aðrir farið reglulega milli staða og byggt upp þjónustu í samstarfi við heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni. Það myndi skipta gríðarlegu máli fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Sérfræðingur sem þjónustar 10 börn á Ísafirði gæti sinnt þeim öllum á tveimur vinnudögum á Hvest. Það er einn flugmiði fram og til baka, í stað 20, svona til að setja dæmið upp á einfaldann máta. Auðvitað eru líka sérfræðingar sem ekki er raunhæft að flytja milli staða og mikilvægt er að áfram sé hægt að nýta niðurgreiddar ferðir hjá Sjúkratryggingum Íslands þegar þörf er á. En við eigum samt að spyrja hvort við séum að nýta tæknina, tímann og fjármagnið eins vel og hægt er. Tækninni hefur fleygt fram síðustu ár, og stór hluti þeirra viðtala sem bæði börn og fullorðnir þurfa að sækja til Reykjavíkur gæti hæglega farið fram í gegnum fjarfundarbúnað. Með hjúkrunarfræðingi eða sjúkraliða á staðnum er hægt að mæla hæð og þyngd, fylgjast með framvindu og eiga samtal við sérfræðing án þess að fjölskyldan þurfi að leggja af stað í dýra og tímafreka ferð.Það er ekki bara kostnaðurinn sem skiptir máli heldur líka tíminn, umstangið, skipulagið og fórnirnar Tími læknisins er dýrmætur en það er tími fjölskyldunnar einnig, tíminn sem fer í að taka sér frí frá vinnu, rífa börn úr skóla og ferðast milli landshluta til að sækja þjónustu sem ætti að vera aðgengilegri. Við verðum að virða alla þætti. . Fólk á landsbyggðinni á ekki að þurfa að velja á milli búsetu og þjónustu og börn eiga ekki að hafa lakara aðgengi að heilbrigðiskerfinu vegna póstnúmersins síns. Við eigum að byggja kerfi sem færir þjónustuna nær fólki þegar það er hægt, nýtir tæknina betur og horfir á raunverulegar þarfir fjölskyldna. Því þegar veikindi verða hluti af lífinu, á ferðalagið ekki að verða stærsta hindrunin. Höfundur er formaður Breiðra Brosa félagasamtök barna og aðstandenda með skarð í vör og/eða tanngarði og búsett á Ísafirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sif Huld Albertsdóttir Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar