Enn eitt dæmið um skipulagsbrot borgarinnar Þórdís Rós Harðardóttir skrifar 11. maí 2026 09:22 „Íbúar máttu búast við þessu”, því þéttingarreitur ber heimildir umfram velferð íbúanna. Þannig hljómar svar skipulagssviðs borgarinnar við erindi húsfélags Mýrargötu 26, með beiðni um afturköllun ákvarðana á samþykktum deiliskipulags Slippa- og Ellingsensreitsins lóðarinnar að Grandagarði 2 101 Reykjavík. Til stendur hjá skipulagssviði Reykjavíkurborgar að framkvæma enn eitt skipulagsslysið á kostnað íbúa sinna. Íbúar og eigendur íbúða í fjölbýlishúsinu að Mýrargötu 26 fylgjast nærgætið með þróun mála á þéttingaráformum skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Nú er meirihluti þeirra rúmlega 360 íbúða á reit Vesturvin og Héðinsreits risinn. Verið er að koma upp 177 íbúðum í Vesturbugt, og sjálf erum við íbúar í þéttingarreit með 69 eignum sem reis 2014. Fyrirætlanir borgarinnar eru á góðri vegferð með áform sín um nýtingarhlutfall lóða almennt um 3,2, með rúmlega 200 nýjar íbúðir norðan Mýrargötu og rúmlega 600 nýjar íbúðir að Vesturvin og Héðinsreit meðtöldu. Nú er aðeins reitur Grandagarðs 2 eftir, þar sem stendur friðlýst hús með gildistöku 2010, Alliance húsið. Samkvæmt deiliskipulagsgögnum, birtum í Stjórnartíðindum B deildar dags. 31.7.2024, áætlaðra framkvæmda við reit Grandagarðs 2, skuli byggja 13 metra háar nýbyggingar að lóðamörkum við vesturhlið Mýrargötu 26, í innan við 8m fjarlægð, auk þess að umlykja friðað hús. Nýbyggingarnar virðast vera með heimild fyrir 3 hæðum, en eru í raun 4 hæðir, þar sem þakhæðin er 3m. Málsaðilum er ljóst að umhverfisáhrifin verða veruleg á 18 eignir vesturhliðar Mýrargötu 26, ásamt því að hylja friðlýst hús. Nýbyggingarnar koma til með að skerða aðgengi dagsljóss, varpa skugga meðan sólar nýtur og skerða útsýni með öllu fyrir þessum íbúum Mýrargötu 26. Deiliskipulag samþykkt frá 2013 fyrir Gömlu höfnina-Vesturbugt birti heimild fyrir nýtingarhlutfalli lóðarinnar í 0,9, sem nú er orðið 2,4 ásamt stækkun lóðarinnar að Rastargötu á kostnað umferðar og aðgengi vegfarenda. Ekki er gert ráð fyrir hjólastígum, göngustígum né grænum reitum. Drög deiliskipulagsins frá þeim tíma sýnir heimild fyrir 3 hæðum með flötu þaki í tengibyggingu við friðlýst hús, sem þó var ekki samþykkt fyrir reit 01 (Grandagarð 2), heldur einungis hvað varðar reit 03-04 (reiturinn við Slippinn). Ekki fæst séð að umhverfismat liggi fyrir á nærliggjandi byggð, né mat Minjastofnunar á að friðlýst hús verði hulið, einsog farið er fram á skipulagslögum sbr.: „21. gr. laga um menningarminjar stendur m.a.: Fornleifum, sbr. 3. mgr. 3. gr., jafnt þeim sem eru friðlýstar sem þjóðminjar og þeim sem njóta friðunar í krafti aldurs, má enginn, hvorki landeigandi, ábúandi, framkvæmdaraðili né nokkur annar, spilla, granda eða breyta, hylja, laga, aflaga eða flytja úr stað nema með leyfi Minjastofnunar Íslands. Og á 2. m.gr. 29. gr. laganna sem hljóðar svo: Óheimilt er að raska friðuðum húsum og mannvirkjum, spilla þeim eða breyta, rífa þau eða flytja úr stað nema með leyfi Minjastofnunar Íslands.“ Sýnt er að skipulagssvið Reykjavíkurborgar hafi ítrekað farið umfram heimildir sýnar með birtingum deiliskipulags fyrir reitinn að Grandagarði 2 101 Reykjavík, fyrst dags.3. febrúar 2014, sem brýtur í bága við skipulagslög 123/2010. Við birta uppfærslu deiliskipulag reitsins dags. 8. maí 2018 bárust víðtækar athugasemdir m.a. frá Skipulagsstofnun sem enn hefur ekki verið komið til móts við. Svo virðist sem eftirlitsaðilar og embættismenn skipulagsstofnana sinni ekki eftirliti, eftirfylgni athugasemda né lagalegri skyldu sinni gagnvart íbúum. Einnig þykir sýnt að skipulagsyfirvöld hafi brotið stjórnsýslulög með framkomu og samskiptaleysi gagnvart málsaðilum og í meðferð gagna og uppdrátta hvað varðar birtingar og gildistöku heimilda, rökfærslur og tilvísanir í tímalínu samþykkta á uppfærslum deiliskipulags reitsins við Grandagarð 2. Leitað var til lögmannsstofu til þess að skrifa bréf og senda Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, auk afrits á borgarráð og abendingar@reykjavik.is. Það var gert 26. Júní 2025. Í bréfinu er gerð krafa þess efnis að Reykjavíkurborg afturkalli gildandi deiliskipulag dags. 31.7.2024 fyrir reit Grandagarðs 2, og endurgeri með tilliti til ákvæða í Aðalskipulagi Reykjavíkur, gagnvart eignum að Mýrargötu 26, hvað varðar gr. 3.6.3. Í gildandi aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er kveðið á um mikilvægi útsýnis og tengdra þátta, en sem dæmi segir í gr. 3.6.3: Við mótun íbúðarbyggðar í deiliskipulagi þarf að huga jöfnum höndum að þeim gæðum sem eru innandyra, innan íbúðanna og utandyra í þeim rýmum sem myndast milli húsanna og ætluð eru til útiveru, samveru og leiks. Við endanlegt mat á umfangi uppbyggingar, ákvörðunum um hæðir húsa og byggingarform í deiliskipulagi þarf ávallt að taka mið af fjölmörgum atriðum sem snerta umhverfisgæði; svo sem dagsbirtu inni sem úti, skuggavarpi, útsýni, loftræsingu, loftgæðum, hljóðvist og sólríkum og skjólgóðum garðsvæðum og öðrum útisvæðum. Hönnun íbúðarhúsnæðis á einstökum reitum þarf einnig ávallt að skoða í samhengi við heildarskipulag viðkomandi hverfis, þau umhverfisgæði og þjónustu sem í boði eru í næsta nágrenni og þá byggð sem er fyrir eða áformuð á nærliggjandi svæðum. Hreint loft, góð dagsbirta og nægt sólarljós, góð loftræsing, útsýni til náttúrunnar og nálægð við fallegan og gróskumikinn gróður gerir okkur gott líkamlega og andlega og eflir lýðheilsuna í samfélaginu. Svar barst frá starfsmanni Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar þann 4. desember 2025, hálfu ári síðar, þar sem kröfu fyrir hönd húsfélagsins að Mýrargötu 26, um afturköllun ákvörðunar um samþykki deiliskipulags Slippa- og Ellingsenreits á lóðinni Grandagarði 2 sé hafnað. Sbr. eftirfarandi niðurstöðu í bréfinu: „Kröfu húsfélagsins Mýrargötu 26 um afturköllun ákvörðunar um samþykki deiliskipulags Slippa- og Ellingsensreitsins á lóðinni Grandagarði 2, sem tók gildi 11. júlí 2007, sem og þeim ákvörðunum sem leiddu til samþykkis breytinga á því deiliskipulagi, er hafnað enda er hvorki efnislega annarmarka að finna á deiliskipulaginu né annmarka á málsmeðferð þess, eða síðari breytinga, sem leitt gætu til ógildingar. Þá hafnar Reykjavíkurborg því alfarið að þær breytingar á deiliskipulagi Slippa- og Ellingsensreitsins á lóðinni Grandagarði 2, sem birtar voru 31. júlí 2024, séu þess eðlis að þær hafi neikvæð áhrif á verðmæti fasteigna á Mýrargötu 26 eða önnur réttindi eigenda þeirra, umfram það sem eðlilegt er á uppbyggingar- og þéttingarsvæði og fasteignaeigendur að Mýrargötu 26 máttu búast við.“ Samanber svar skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar, þykir greinarhöfundi ljóst að yfirlýsingar í Aðalskipulagi Reykjavíkur eigi ekki við um okkur, íbúa 18 eigna fjölbýlishússins okkar að Mýrargötu 26. Velferð okkar er greinilega ekki mikilvæg og virðis rýrnun eigna okkar skiptir borgarstarfsmenn ekki máli. Samkvæmt svari starfsmanns skipulags Reykjavíkur áttum við beinlínis að búast við því að borgin kæmi til með að refsa okkur fyrir að velja húsnæði á þróunarreit og að enn eitt hótelið kæmi til með að draga úr velferð okkar íbúanna. Það hefði okkur átt að vera ljóst þegar við keyptum eign okkar árið 2014. Beitt er öllum brögðum, hjá skipulagssviði Reykjavíkurborgar, til að ná markmiðum sínum fram, þó markmiðin séu öllum íbúum til ama. Álag af túrisma á svæðinu er umtalsvert, þó er aðgengi þeirra með farangur sinn í meira lagi óaðgengilegt um stíga sem eru þeim, gangandi og hjólandi hættulegir. Íbúum er talin trú um að ferðast á reiðhjólum, þó eru engir hjólreiðastígar. Götur eru aðþrengdar og gangstígum lokað mánuðum jafnvel árum saman án þess að lausnir séu leiddar til öryggis vegfarenda. Ófremdar ástand ríkir við horn Seljavegs, Mýrargötu og göngustígs yfir á Rastargötu, þar sem strætó, túristastrætó frá flugvellinum, olíuflutningabifreiðum, og svo okkur íbúunum á bifreiðum, hjólum og gangandi er gert að finna farveg okkar innan um lokanir vegna framkvæmda og ófrágengnum lóðum sem innihalda þó mikilvæga stíga fyrir samgöngur. Ég hlýt því að spyrja, hvert hlutverk skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er? Fyrir hvern er þetta fólk að vinna? Hér með eru tilmæli send til stjórnenda borgarinnar og skipulagsyfirvalda: Að virða rétt íbúanna sem búa í borginni, og veita okkur í raun aðgengi að grænum reitum sem hlúð er að, ásamt því að fyrirbyggja að hótel séu reist gagngert til að fjarlægja útsýni og aðgengi dagsbirtu eignanna sem fyrir eru. Að búa íbúum og vegfarendum öryggi, þannig að ef við eigum að hjóla eða ganga, þá sé stígakerfi sem virkar, og gufar ekki skyndilega upp, þjónustað með hálkuvörnum og gert aðgengilegt og öruggt öllum stundum. Að samþykktir yfirvalda séu ekki birtar í þeim einum tilgangi að troða fótum á rétti íbúanna til velmegunar og velferðar. Að endurskoða heildrænt raunhæf byggingaráform reitsins að Grandagarði 2, þar sem friðað Alliance hús fái sín notið, ekki síst í ljósi þess að þéttingaráform eru nú þegar uppfyllt með fjölda nýbygginga á Slippa- og Ellingsen reit, Vesturbugt, Vesturvin og Héðinsreit. Virðingarfyllst, Þórdís Rós Harðardóttir Greinarhöfundur er íbúi og meðeigandi Mýrargötu 26 101 Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson skrifar Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson skrifar Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Síli veidd í skólpi Jónas Már Torfason ,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Sjá meira
„
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun