Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Freyja Þórisdóttir skrifar 7. maí 2026 23:59 Þetta er önnur árás netþrjótanna síðasta mánuðinn en hún hittir einstaklega illa á enda eru nemendur um allan heim á kafi í prófatörn. Vísir/aðsend Canvas-námsumsjónarkerfið liggur niðri á ný og samkvæmt erlendum miðlum hefur hópur netþrjóta sem kallast ShinyHunters lýst yfir ábyrgð á netárásunum. Nemendur Háskóla Íslands sem voru inni á síðunni þegar hún var tekin niður segjast hafa fengið upp á skjáinn skilaboð frá netþrjótunum. Frá þessu er meðal annars greint í frétt bandaríska fjölmiðilsins CNN en svo virðist sem netþrjótahópurinn hafi verið að senda skólunum skilaboð. „Já, ég var að taka kaflapróf á Canvas og fer á milli flipa, svo þegar ég fer inn á Canvas aftur þá koma upp þessi skilaboð,“ segir María Mist Þórs Sigursteinsdóttir nemandi í Keili. Hún bætir við að það hafi birst listi yfir skóla sem mættu sæta netárásum og þar á meðal var Keilir, Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands og Menntaskólinn á Egilsstöðum. Í gær, þann 6. maí, fengu nemendur Háskóla Íslands tölvupóst frá skólanum þar sem segir að ekki liggi fyrir vísbendingar um að viðkvæm gögn hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Á skjáborði hvers nemanda í Canvas birtast þau námskeið sem viðkomandi er skráður í, ásamt tilkynningum, mikilvægum dagsetningum, umræðum og öðrum upplýsingum sem tengjast hverju námskeiði. Í framhaldi af tilkynningu Háskóla Íslands í gær um alvarlegt öryggisatvik sem varð hjá þjónustuaðila Canvas-námsumsjónarkerfisins, Instructure, viljum við taka eftirfarandi fram: Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur óviðkomandi aðili komist ólöglega yfir hluta gagna innan Canvas-kerfisins sem tengjast notendum í fjölda háskóla um allan heim, þar á meðal Háskóla Íslands. Gögnin kunna að innihalda netföng og skilaboð milli notenda Canvas. Við áréttum að Canvas geymir hvorki lykilorð né kennitölur notenda Háskóla Íslands og ekki liggja fyrir vísbendingar um að fjárhagsupplýsingar eða önnur viðkvæm gögn hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Við hvetjum notendur Canvas til að sýna aðgát gagnvart óvenjulegum tölvupóstum, skilaboðum eða beiðnum um upplýsingar sem kunna að tengjast málinu. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og verður áfram fylgst náið með framvindu þess. Háskóli Íslands mun upplýsa notendur eftir því sem nýjar upplýsingar berast eða tilefni verður til frekari aðgerða. Rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld var send út tilkynning frá upplýsingaöryggisstjóra Háskóla Íslands þar sem fram kom að Instructure ynni að því að rannsaka málið og koma kerfinu aftur í eðlilegt horf. „Við fylgjumst náið með stöðunni og munum senda frekari upplýsingar þegar þær liggja fyrir,“ stóð þar og einnig var beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kynni að valda. Mörg þúsund skólar urðu fyrir árásunum Canvas er með yfir 30 milljónir virkra notenda á heimsvísu, að því er móðurfyrirtækið Instructure heldur fram á vefsíðu sinni, og þjónustar yfir 8.000 stofnanir. Margir þessara nemenda eru á kafi í annasömu vorprófatímabili. Um fimm þúsund skólar og stofnanir voru útlistuð í skilaboðum ShinyHunters en þar stóð einnig að gagnalekinn væri til kominn vegna þess að „fórnarlambið greiddi ekki lausnargjald eða sýndi samstarfsvilja og fór ekki að kröfum ShinyHunters-hópsins“. Ekki í fyrsta sinn Þetta er annað gagnabrotið í þessum mánuði sem bitnar á skólum og háskólum. Tölvuþrjótahópurinn ShinyHunters hefur lýst yfir ábyrgð á báðum árásunum en líkt og fyrr segir krafðist hópurinn þess að Instructure setti sig í samband við sig til að koma í veg fyrir frekari gagnaleka. Ekki er ljóst hvort að krafist sé gjalds. „ShinyHunters hefur brotist inn hjá Instructure (aftur),“ stóð í viðvörun á aðgangi nemanda við University of Washington um hádegisbil að staðartíma, en þetta kemur jafnframt fram í umfjöllun CNN. „Í stað þess að hafa samband við okkur til að leysa málið hunsuðu þeir okkur og gerðu einhverjar „öryggisuppfærslur“,“ stóð þar einnig. Instructure sagði á vefsíðu sinni seint á fimmtudagseftirmiðdegi að Canvas væri „í viðhaldsham“ og bætti við að málið væri í rannsókn. Fyrirtækið gaf þó til kynna að notendanöfnum, netföngum og nemendanúmerum hefði verið lekið. „Instructure hefur enn frest til loka dags 12. maí 2026 til að hafa samband við okkur,“ stóð í skilaboðunum á fimmtudag. Uppfært kl. 06.30, 8. maí: Nemendur Háskóla Íslands geta nú aftur komist inn á Canvas. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér. Skóla- og menntamál Netglæpir Háskólar Tækni Hagsmunir stúdenta Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira
Frá þessu er meðal annars greint í frétt bandaríska fjölmiðilsins CNN en svo virðist sem netþrjótahópurinn hafi verið að senda skólunum skilaboð. „Já, ég var að taka kaflapróf á Canvas og fer á milli flipa, svo þegar ég fer inn á Canvas aftur þá koma upp þessi skilaboð,“ segir María Mist Þórs Sigursteinsdóttir nemandi í Keili. Hún bætir við að það hafi birst listi yfir skóla sem mættu sæta netárásum og þar á meðal var Keilir, Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands og Menntaskólinn á Egilsstöðum. Í gær, þann 6. maí, fengu nemendur Háskóla Íslands tölvupóst frá skólanum þar sem segir að ekki liggi fyrir vísbendingar um að viðkvæm gögn hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Á skjáborði hvers nemanda í Canvas birtast þau námskeið sem viðkomandi er skráður í, ásamt tilkynningum, mikilvægum dagsetningum, umræðum og öðrum upplýsingum sem tengjast hverju námskeiði. Í framhaldi af tilkynningu Háskóla Íslands í gær um alvarlegt öryggisatvik sem varð hjá þjónustuaðila Canvas-námsumsjónarkerfisins, Instructure, viljum við taka eftirfarandi fram: Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur óviðkomandi aðili komist ólöglega yfir hluta gagna innan Canvas-kerfisins sem tengjast notendum í fjölda háskóla um allan heim, þar á meðal Háskóla Íslands. Gögnin kunna að innihalda netföng og skilaboð milli notenda Canvas. Við áréttum að Canvas geymir hvorki lykilorð né kennitölur notenda Háskóla Íslands og ekki liggja fyrir vísbendingar um að fjárhagsupplýsingar eða önnur viðkvæm gögn hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Við hvetjum notendur Canvas til að sýna aðgát gagnvart óvenjulegum tölvupóstum, skilaboðum eða beiðnum um upplýsingar sem kunna að tengjast málinu. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og verður áfram fylgst náið með framvindu þess. Háskóli Íslands mun upplýsa notendur eftir því sem nýjar upplýsingar berast eða tilefni verður til frekari aðgerða. Rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld var send út tilkynning frá upplýsingaöryggisstjóra Háskóla Íslands þar sem fram kom að Instructure ynni að því að rannsaka málið og koma kerfinu aftur í eðlilegt horf. „Við fylgjumst náið með stöðunni og munum senda frekari upplýsingar þegar þær liggja fyrir,“ stóð þar og einnig var beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kynni að valda. Mörg þúsund skólar urðu fyrir árásunum Canvas er með yfir 30 milljónir virkra notenda á heimsvísu, að því er móðurfyrirtækið Instructure heldur fram á vefsíðu sinni, og þjónustar yfir 8.000 stofnanir. Margir þessara nemenda eru á kafi í annasömu vorprófatímabili. Um fimm þúsund skólar og stofnanir voru útlistuð í skilaboðum ShinyHunters en þar stóð einnig að gagnalekinn væri til kominn vegna þess að „fórnarlambið greiddi ekki lausnargjald eða sýndi samstarfsvilja og fór ekki að kröfum ShinyHunters-hópsins“. Ekki í fyrsta sinn Þetta er annað gagnabrotið í þessum mánuði sem bitnar á skólum og háskólum. Tölvuþrjótahópurinn ShinyHunters hefur lýst yfir ábyrgð á báðum árásunum en líkt og fyrr segir krafðist hópurinn þess að Instructure setti sig í samband við sig til að koma í veg fyrir frekari gagnaleka. Ekki er ljóst hvort að krafist sé gjalds. „ShinyHunters hefur brotist inn hjá Instructure (aftur),“ stóð í viðvörun á aðgangi nemanda við University of Washington um hádegisbil að staðartíma, en þetta kemur jafnframt fram í umfjöllun CNN. „Í stað þess að hafa samband við okkur til að leysa málið hunsuðu þeir okkur og gerðu einhverjar „öryggisuppfærslur“,“ stóð þar einnig. Instructure sagði á vefsíðu sinni seint á fimmtudagseftirmiðdegi að Canvas væri „í viðhaldsham“ og bætti við að málið væri í rannsókn. Fyrirtækið gaf þó til kynna að notendanöfnum, netföngum og nemendanúmerum hefði verið lekið. „Instructure hefur enn frest til loka dags 12. maí 2026 til að hafa samband við okkur,“ stóð í skilaboðunum á fimmtudag. Uppfært kl. 06.30, 8. maí: Nemendur Háskóla Íslands geta nú aftur komist inn á Canvas. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Í framhaldi af tilkynningu Háskóla Íslands í gær um alvarlegt öryggisatvik sem varð hjá þjónustuaðila Canvas-námsumsjónarkerfisins, Instructure, viljum við taka eftirfarandi fram: Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur óviðkomandi aðili komist ólöglega yfir hluta gagna innan Canvas-kerfisins sem tengjast notendum í fjölda háskóla um allan heim, þar á meðal Háskóla Íslands. Gögnin kunna að innihalda netföng og skilaboð milli notenda Canvas. Við áréttum að Canvas geymir hvorki lykilorð né kennitölur notenda Háskóla Íslands og ekki liggja fyrir vísbendingar um að fjárhagsupplýsingar eða önnur viðkvæm gögn hafi komist í hendur óviðkomandi aðila. Við hvetjum notendur Canvas til að sýna aðgát gagnvart óvenjulegum tölvupóstum, skilaboðum eða beiðnum um upplýsingar sem kunna að tengjast málinu. Rannsókn á málinu stendur enn yfir og verður áfram fylgst náið með framvindu þess. Háskóli Íslands mun upplýsa notendur eftir því sem nýjar upplýsingar berast eða tilefni verður til frekari aðgerða.
Skóla- og menntamál Netglæpir Háskólar Tækni Hagsmunir stúdenta Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira