Kæmu úr okkar eigin vösum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 6. maí 2026 07:15 Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið myndum við Íslendingar greiða meira í sjóði þess en skilaði sér til baka eins og til dæmis Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og þingmaður Viðreisnar, gekkst við nýverið í hlaðvarpinu Lyklavöldin. Þar á meðal í bæði landbúnaðar- og byggðastyrki. Ástæðan er einkum miklar þjóðartekjur okkar miðað við það sem gerist víðast hvar innan sambandsins. Þar myndi muna fleiri milljörðum króna árlega. Við myndum þannig vera í hópi þeirra tíu ríkja Evrópusambandsins sem greiða með sér. Hin 17 ríki sambandsins fá hins vegar mun meira úr sjóðum þess en þau greiða í þá og munar þar mjög miklu. Flest þeirra gengu í Evrópusambandið fyrir meira en 20 árum síðan og sér ekki fyrir endann á því að þau fái meira frá sambandinu en þau greiða til þess. Þá eru tíu ríki samþykkt umsóknarríki eða möguleg umsóknarríki sem öll munu fá meira en þau leggja af mörkum. Fyrir vikið var áhugavert að lesa grein Eiríks Björns Björgvinssonar, félaga Pawels í þingflokki Viðreisnar, á Vísi í gær þar sem hann hélt því fram að innganga í Evrópusambandið yrði til hagsbóta fyrir hérlend sveitarfélög einkum þar sem þau gætu þá komizt í styrktarsjóði sambandsins. Þessa styrki sem kæmu í raun úr okkar eigin vösum og miklu meira en það. Væri ekki nær að nýta þá milljarða í uppbyggingu hér á landi frekar en uppbyggingu í öðrum Evrópuríkjum?Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið myndum við Íslendingar greiða meira í sjóði þess en skilaði sér til baka eins og til dæmis Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og þingmaður Viðreisnar, gekkst við nýverið í hlaðvarpinu Lyklavöldin. Þar á meðal í bæði landbúnaðar- og byggðastyrki. Ástæðan er einkum miklar þjóðartekjur okkar miðað við það sem gerist víðast hvar innan sambandsins. Þar myndi muna fleiri milljörðum króna árlega. Við myndum þannig vera í hópi þeirra tíu ríkja Evrópusambandsins sem greiða með sér. Hin 17 ríki sambandsins fá hins vegar mun meira úr sjóðum þess en þau greiða í þá og munar þar mjög miklu. Flest þeirra gengu í Evrópusambandið fyrir meira en 20 árum síðan og sér ekki fyrir endann á því að þau fái meira frá sambandinu en þau greiða til þess. Þá eru tíu ríki samþykkt umsóknarríki eða möguleg umsóknarríki sem öll munu fá meira en þau leggja af mörkum. Fyrir vikið var áhugavert að lesa grein Eiríks Björns Björgvinssonar, félaga Pawels í þingflokki Viðreisnar, á Vísi í gær þar sem hann hélt því fram að innganga í Evrópusambandið yrði til hagsbóta fyrir hérlend sveitarfélög einkum þar sem þau gætu þá komizt í styrktarsjóði sambandsins. Þessa styrki sem kæmu í raun úr okkar eigin vösum og miklu meira en það. Væri ekki nær að nýta þá milljarða í uppbyggingu hér á landi frekar en uppbyggingu í öðrum Evrópuríkjum?Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar