Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Birgir Olgeirsson skrifar 5. maí 2026 11:53 Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, segir fylgst með stöðu leigjenda hjá Félagsbústöðum og blessunarlega vænkist hagur fólks frá því það fær úthlutað íbúð í almenna húsnæðiskerfi Reykjavíkurborgar og þurfi þá ekki lengur á þessum stuðningi að halda. Vísir Um tvö til þrjú prósent leigjenda hjá Félagsbústöðum eru nú til skoðunar vegna þess að tekjur þeirra kunna mögulega að vera komnar yfir viðmið. Það jafngildir um 64 til 96 heimilum af tæplega 3.200 íbúðum í útleigu.
Ummæli um hverjir eigi að vera í félagslega leigukerfinu vöktu athygli á pallborðsumræðum Leigjendasamtakanna í síðustu viku. Þar sagði Bjarni Guðjónsson, sem skipar annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, að „okkur gruni“ að dálítið stór hluti fólks í íbúðum Félagsbústaða sé hugsanlega kominn yfir tekjumörk og að hægt væri að taka tiltölulega hratt til í því. DV greindi fyrst frá þessum ummælum. Samkvæmt reglum um almennt félagslegt leiguhúsnæði þurfa einstaklingar að vera með tekjur undir 7 milljónum og 874 þúsund krónum á ári til að eiga rétt á úthlutun. Fyrir hjón og sambúðarfólk eru mörkin um ellefu milljónir króna á ári og hækka um 1,9 milljónir fyrir hvert barn undir tvítugu. Tekjumörkin miðast við meðaltal tekna síðustu þriggja ára og eignamörk eru 8,4 milljónir króna. Bjarni Guðjónsson skipar annað sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg. Framkvæmdastjóri Félagsbústaða segir að þó að slíkar stöður komi upp sé það ekki endilega óeðlilegt, enda geti hagur fólks batnað eftir að það fær úthlutað íbúð. „Og auðvitað geta aðstæður fólks breyst frá því að það fær úthlutað íbúð og sem betur fer er það oft til batnaðar þannig að fólk þarf ekki lengur á þessum stuðningi að halda,“ segir Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða. Velferðarsvið sér um eftirlitið Félagsbústaðir eru með um 3.200 íbúðir í útleigu en það er velferðarsvið Reykjavíkurborgar sem sér um úthlutun íbúðanna og fylgist með því hvort leigjendur uppfylli áfram skilyrði kerfisins. Félagsbústaðir taka hins vegar við þegar úthlutun hefur farið fram og sinna hlutverki leigusala. Sigrún segir því að upplýsingar um tekju- og eignastöðu leigjenda liggi ekki hjá Félagsbústöðum sjálfum heldur hjá velferðarsviðinu. Samkvæmt þeim upplýsingum sem hún hafi fengið sé nú verið að líta til um tveggja til þriggja prósenta leigjenda sem gætu mögulega verið með tekjur umfram viðmið. Segir húsnæðisöryggi skipta sköpum Að sögn Sigrúnar er mikilvægt að missa ekki sjónar á því hlutverki sem félagslegt húsnæði gegnir fyrir tekjulægsta hópinn. Markmiðið sé að tryggja fólki stöðugt húsnæði og skapa aðstæður þar sem því gefst færi á að rétta úr kútnum. „Það húsnæðisöryggi sem félagslegt húsnæði veitir tekjulægsta hópnum er gríðarlega mikils virði fyrir fólk,“ segir hún. Hún bætir við að öruggt húsnæði sé ein af grunnþörfum fólks og geti auðveldað því að koma undir sig fótunum.
Húsnæðismál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Félagsmál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Fleiri fréttir Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Sjá meira