Lesblindir og skóli án aðgreiningar Guðmundur S. Johnsen skrifar 4. maí 2026 14:16 Hugtakið „skóli án aðgreiningar“ fór að ryðja sér til rúms á Íslandi á níunda áratug síðustu aldar en var formlega staðfest sem stefna í íslenskri menntastefnu með grunnskólalögum árið 1995. Þar segir að: „Allir nemendur eigi rétt á að stunda nám í heimaskóla sínum, óháð fötlun, námsörðugleikum eða öðrum sérþörfum.“ Í kjölfarið urðu sérskólar og sérúrræði sífellt sjaldgæfari og fókusinn færðist yfir í að aðlaga almenna skólaumhverfið að fjölbreyttum þörfum nemenda. Síðan þá hefur stefnan verið efld, meðal annars með áherslu á einstaklingsmiðað nám og stuðningsúrræði innan almennra skóla. Eðlilega velta skólamenn, kennarar og stjórnmálamenn því fyrir sér hvernig hefur tekist til eftir að skóli án aðgreiningar var tekinn upp. Við lesblindir veltum því einnig fyrir okkur og Félag lesblindra á Íslandi hefur staðið fyrir umræðu og mati á því. Meðal annars til að skilja betur hver staða lesblindra er í dag og hvað mótar velferð þeirra og þroska innan skólakerfisins. Við höfum reynt að vekja athygli á prófamenningu og námsmati og hvaða áhrif það hefur á skólagöngu lesblindra. Stundum finnst okkur að það skorti upplýsingar um hvaða áhrif sú stefna sem felst í skóla án aðgreiningar hefur á þessa þætti og þá um leið skólagöngu lesblindra. Hafa nemendur með sérþarfir dregist aftur úr? Þegar rýnt er í niðurstöður námsrannsókna sést ekki skýr tölfræðileg fylgni milli innleiðingar skóla án aðgreiningar og breytinga á meðaleinkunnum í samræmdu prófunum. Vísbendingar eru þó um að dreifing einkunna hafi aukist og að skólar eigi erfiðara með að mæta öllum nemendum jafnt án aukins stuðnings. Sér í lagi hafa nemendur með sérþarfir og nemendur sem þurfa meiri stuðning dregist aftur úr þegar almennur stuðningur nær ekki að mæta fjölbreyttum þörfum. Við vitum ekki nákvæmlega hvaða áhrif þetta hefur á lesblinda en sumt vekur áhyggjur. Við hjá Félagi lesblindra erum að reyna að vekja athygli á því en allur gangur er á því hvort skólayfirvöld séu að hlusta. Kannski finnst þeim þau hafa nóg með sitt. Horfum til fjölbreytileikans Við hjá Félagi lesblindra á Íslandi viljum skóla sem tekur mið af fjölbreytileika. Skóla sem viðurkennir að börn eru ólík, hafa mismunandi styrkleika, fara ólíkar leiðir við að læra og búa yfir margvíslegri og ólíkri hæfni. Það er einfaldlega ekki hægt að troða öllum í sömu skóstærðina. Skóli án aðgreiningar getur vel rúmast innan skóla fjölbreytileikans en hvernig til tekst veltur alltaf á framkvæmdinni. Það er til lítils að setja upp nýtt kerfi eins og skóla án aðgreiningar ef ekki er stutt við það í framkvæmdinni. Eftir sem áður þarf að sinna og aðstoða börn með sérþarfir. Ef kennarinn fær slíkan bekk í fangið án verulegrar aðstoðar þá er verr af stað farið en heima setið. Þó að dregið sé úr aðgreiningu þarf áfram að hjálpa þeim sem hafa sérþarfir og á því finnst okkur lesblindum að sé nokkur skortur. Í sumum tilvikum verulegur skortur. Höfundur er formaður Félags lesblindra á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur S. Johnsen Mest lesið Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Sjá meira
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar