Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Jón Þór Stefánsson skrifar 3. maí 2026 14:57 Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. vísir/ívar Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, telur vert að fólk velti fyrir sér áhrifum sem gervigreind geti haft á til dæmis fyrirhugaða Evrópusambandsþjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst.
Þetta var á meðal þess sem hann minntist á í viðtali um gervigreind í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. „Ég held að það sé mjög vert að staldra aðeins við hér vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB,“ sagði Hafsteinn, skömmu eftir að Kristján Kristjánsson þáttarstjórnandi upplýsti um að hann væri stanslaust að sjá falsaðar myndir á netinu. „Margir eru líklega að nýta sér gervigreindina til að leita sér upplýsinga, og þá svarar hún kannski með miklu öryggi og vísar í einhverjar heimildir. Það er ekkert ljóst að þessar heimildir séu réttar. Það er fullt af bulli á internetinu, og því meira af bulli því meiri líkur á að gervigreindarlíkönin vísi í það.“ Því hafi komið upp spurningar um hvort stóru tæknifyrirtækin eigi þá að fara að ritskoða hvaða heimildir mállíkönin leiti í. „Er það sanngjarnt? Er það eitthvað sem ætti að gera? Hvernig geta þau lagt mat á það hvaða upplýsingar eru réttar og hvaða upplýsingar eru rangar? Á endanum er það kannski lesandinn sem ber ábyrgð á því, en við vitum að það eru ekki allir að fara að sökkva sér í allar heimildir.“ Í viðtalinu fór Hafsteinn um víðan völl. Hann ræddi til að mynda um þann mikla vöxt sem gervigreindin hefur verið á. Hann hefur verið að kenna námskeið þar sem hann hitti nemendur í þrígang, og eftir fyrsta tímann þurfti hann stöðugt að taka fram hvað hefði breyst síðan þau höfðu síðast verið í tíma. „Þegar ég hitti þau í annað skiptið og þriðja skiptið þá þarf ég að segja frá öllu því sem gerðist frá því ég hitti ykkur síðast. Það er ekki mikið af fögum í háskóla þar sem staðan er svona. Ef þú ert að kenna stærðfræði ertu að kenna það sama aftur og aftur. En ef maður er að kenna eitthvað sem tengist gervigreind þá eru hlutirnir að breytast svo svakalega hratt. Maður þarf bara að staldra aðeins við og segja: Það sem ég var að segja ykkur síðast það bara stenst ekki lengur, nú er bara allt búið að breytast,“ segir hann.
Gervigreind Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Tækni Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Sjá meira