Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Freyja Þórisdóttir skrifar 1. maí 2026 15:31 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands flutti ræðu í Iðnó í tilefni af verkalýðsdeginum. Vísir/Ívar Fannar Kristrún Frostadóttir flutti ræðu á verkalýðskaffi sem Samfylkingarfélagið bauð til í Iðnó í dag. Þar sagði hún að bæjarstjórn Kópavogs væri til skammar fyrir að „hafa ekki úthlutað einni einustu lóð til Bjargs, sem byggir fyrir tekjulægra vinnandi fólk og tryggir fjölskyldum þess öruggt húsnæði“. Hún nefnir þá einnig undrun sína á mótspyrnu pólitískra andstæðinga í tenglsum við lögfestingu réttar til leikskólavistar.
Í dag, verkalýðsdaginn 1. maí, fara fram kröfugöngur og fundir um allan bæ. Meðal þeirra sem tóku sig til og efndu til viðburðar í dag er Samfylkingarfélagið í Reykjavík, með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar í fararbroddi. Sparaði ekki stóru orðin Þar sagði Kristrún í ræðu sinni að stærsta húsnæðismálið á Íslandi í dag væri að Samfylkingin færi með sigur af hólmi í sveitastjórnarkosningunum þann 16. maí. Þá sagði hún að í Kópavogi væru húsnæðismál í ólagi. „Tökum dæmi: Tíundi hver Íslendingur er Kópavogsbúi, en samt hefur bæjarstjórnin í Kópavogi ekki úthlutað einni einustu lóð til Bjargs, sem byggir fyrir tekjulægra vinnandi fólk og tryggir fjölskyldum þess öruggt húsnæði. Núll lóðir, á 10 árum, í næstfjölmennasta sveitarfélagi landsins. Þetta er til skammar, svo ekki sé fastar að orði kveðið,“ sagði Kristrún. Legið eins og ormur á gulli Hún fór svo um víðan völl í ræðu sinni og kom meðal annars inn á nýjan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem og leikskólamál. Í vikunni hafi verið samið um fjórtán hundruð íbúðir á ríkislóðum í Reykjavík. Þá sagðist hún ekki átta sig á því hvers vegna ríkisstjórnir síðustu ára hafi „legið á þessum lóðum, verðmætu en vannýttu byggingarlandi í borginni, eins og ormur á gulli?“ Loks sagðist hún hafa orðið steinhissa á viðbrögðum pólitískra andstæðinga Samfylkingarinnar við „þessu mikilvæga og sjálfsagða baráttumáli okkar jafnaðarfólks“ en um er að ræða lögfestingu réttar til leikskólavistar. Það hafi verið gert á öllum hinum Norðurlöndunum nú þegar. „Það hefur ekki farið framhjá neinum að við viljum lögfesta rétt til leikskólavistar — eins og gert hefur verið á öllum hinum Norðurlöndunum. Með sameiginlegri fjármögnun ríkis og sveitarfélaga. Þetta væri risastórt skref fyrir Ísland — á pari við stóru sigra verkalýðshreyfingarinnar sem við rifjum gjarnan upp á hátíðlegum stundum eins og 1. maí,“ segir Kristrún.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Verkalýðsdagurinn Húsnæðismál Leikskólar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira