Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. apríl 2026 10:32 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Inga Sæland mennta-og barnamálaráðherra segir meiri líkur en minni á að hugmyndir forvera hennar um svæðisskrifstofur framhaldsskóla verði slegnar út af borðinu. Þess í stað eigi að virkja enn frekar tengsl milli menntamálaráðuneytisins og framhaldsskólanna. Hún segist vona að kerfisbreytingar muni liggja fyrir í haust, meðal annars tilhögun á skipunum skólameistara.
Þetta er meðal þess sem fram kom á fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis í morgun þar sem Inga sat fyrir svörum um áform um skipulagsbreytingar á framhaldsskólastiginu. Áform um nýtt stjórnsýslustig fyrir framhaldsskólana voru kynnt í september í fyrra, í tíð Guðmundar Inga Kristinssonar sem mennta-og barnamálaráðherra og kynnti sá ráðherra áform um að opnaðar yrðu fjórar til sex svæðisskrifstofur í nærumhverfi framhaldsskóla landsins. Ekki á sömu vegferð „Er búið að slá þær alveg út að borðinu? Nei. Þetta er það sem við erum að vinna í akkúrat núna, en hinsvegar sagði ég að hugur minn hneigist meira, eftir þessar skipulagsbreytingar inni í ráðuneytinu, þar sem við erum komin með tengiliði inn í framhaldsskólanna, að þá erum við að leggja línur að öðru skipulagi. Þetta hefur ekki formlega verið slegið út af borðinu, en þetta er það sem við erum að vinna í núna,“ sagði Inga meðal annars á fundinum. Hún sagði á fundinum að brýnt væri að ná fram fyrirsjáanleika í rekstri framhaldsskólanna. Benti á að ellefu framhaldsskólar væru að skila mismiklum halla. Sagðist hún telja að það myndi efla starf skólanna ef fjárreiður þeirra yrðu færðar í frekara mæli til ráðuneytisins og sagði Inga að kortlagning á nýju kerfi væri í fullum gangi. Allir skólar ættu að fá það fjármagn sem þeir þyrftu. Sagði ráðherrann jafnframt að ekki stæði til að sameina framhaldsskóla í hennar tíð. „Ég vil vera skýr, við erum að taka á þessum rekstrarmálum framhaldsskólanna, það er ekki búið að slá þetta allt út af borðinu hvað lýtur að þessum svæðisskrifstofum en samt eru meiri líkur, og það verður sennilega ofan á: Ég vil leggja áherslu á með þessari kerfisbreytingu sem við höfum komið á inni í ráðuneytinu og tengingu við skólana, að við erum að ráðast í vegferð sem er ekki sú sama og var fyrir mína tíð. Ég myndi segja að það væri bjart framundan og hlakka til að vinna með því fólki sem hefur tekið að sér að koma börnunum okkar til manns.“ Verklag um skipanir skólastjóra liggi fyrir í haust Þá var Inga spurð á fundinum hvort það væri á stefnuskrá hennar að auglýsa allar skipaðar stöður skólameistara en í tíð forvera hennar voru tvær stöður skólameistara auglýstar, staða skólameistara Borgarholtsskóla og skólameistar Menntaskólans á Egilsstöðum. Vísaði þáverandi ráðherra í breytingar á framhaldsskólastiginu. „Það er skilyrt samkvæmt lögum að ef það kemur til breytinga þá verðum við að auglýsa stöður með sex mánaða fyrirvara,“ segir Inga á fundinum um skipanir skólameistara. Hún segir að ekki muni koma til þess að auglýsa þurfi fleiri stöður fyrr en í haust, þá verði skipunartími fleiri skólameistara kominn á tíma og segir Inga að þá ætti skipulag að liggja fyrir. „Það hafa tveir skólameistarar fengið vitneskju um það að þeirra stöður hafa verið auglýsar, það er skólinn í Borgarholti og skólinn á Egilsstöðum. Það kemur ekki til þess að það þurfi að auglýsa fleiri stöður fyrr en í haust.“
Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira